Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Side 30
þriðjudagur 25. september 200730 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Jónína Benediktsdóttir veltir upp þeirri hugmynd á bloggi sínu að réttast væri kannski að breyta orðinu „bloggvinur“ í „bloggkunn- ingi“. Vangaveltan á rætur sínar í áhyggjum bloggara sem hafði áhyggj- ur af vináttu bloggvina og því hvort hún væri ekta, að sögn Jónínu. Svo segir hún: „Ég er ekki í vafa um að þeir sem vilja gerast bloggvinir þínir eru í raun bloggvinir þínir þó svo að þú haf- ir aldrei við þá talað. Hins vegar væri ef til vill hugmynd að breyta orðinu bloggvinur í t.d. blogg- kunningi. Orðið vinur er í merk- ingunni einhver sem aldrei bregst og aldrei svíkur.“ n Helena Ólafsdóttir, þjálfari kvennaliðs KR, fékk heldur betur að kenna á lærisveinum sínum daginn sem þær unnu Keflavík í úrslitum bikarsins. KR-stelpurn- ar fóru í brúnkuspreymeðferð til að vera enn sætari en venjulega á deginum stóra. Þær lögðu á ráð- in og sáu til þess að Helena fengi þrefalda spreymeðferð í andliti. Þegar í leikinn styttist fóru að renna á Helenu tvær grímur enda var hún orðin mun brúnni í framan en hún kærði sig um. Hún hringdi í leikmennina sem auðvit- að kunnu engar skýringar á óeðli- legu litarhafti þjálfarans. Brúnkan jókst eftir því sem á daginn leið en sem betur fer gerðu KR-stelpur sér lítið fyrir og unnu bikarinn sann- færandi, svo Helena hefur væntan- lega sparað skammirnar. n Nú hefur auglýsing Landsbank- ans um aukakrónurnar sem bara koma og koma eflaust ekki farið fram hjá neinum. Það sem er þó athyglisvert við auglýsinguna – fyr- ir utan blístrið í viðlaginu sem virð- ist festast á heilanum á hverjum þeim sem horfir á auglýsinguna – er að hún er sláandi lík me�íkóskri auglýsingu. Sögur segja að Lands- bankinn sé ekki par sáttur við Ís- lensku auglýs- ingastofuna sem er sögð hafa rukk- að nokkrar milljónir fyrir auglýsinga- vinnu enda höfðu Lands- bankamenn ekki hugmynd um að vinnan sem þeir borguðu fyrir væri einfaldlega stolin hugmynd frá Me�íkó. Hver er maðurinn? „Stefán Máni rithöfundur.“ Hvar ólstu upp? „Ég ólst upp í Ólafsvík þar sem ég bjó í tuttugu og fimm ár.“ Hver eru áhugamál þín? „Ferðalög, bókmenntir og tónlist.“ Eftirminnilegasta bókin? „Kaldaljós eftir Vigdísi Grímsdótt- ur, en ég las hana nýverið og tengdi mikið við hana. Hún gerist á lands- byggðinni og fjallar um Grím. Ég sá sjálfan mig dálítið í honum. Virkaði sterkt á mig.“ Eftirminnilegasta ferðalagið? „Þegar ég fór með bróður mínum til Parísar fyrir tólf árum. Við vorum rosalega duglegir. Skoðuðum borgina frá morgni til kvöld. Þetta er mjög eft- irminnileg ferð.“ Ef ekki rithöfundur, hvað þá? „Góð spurning! Ætli ég væri ekki bara atvinnulaus.“ Hvenær ákvaðst þú að verða rithöfundur? Hvað varð til þess? „Ég var að vinna í frystihúsi en varð svo atvinnulaus eftir að frystihúsið varð gjaldþrota. Ég stóð á algjöru núlli í lífinu og það var ekkert fram undan nema leiðindi. Þetta var stórfurðu- leg tilfinning. Þá kviknaði þessi hug- mynd hjá mér að fara að skrifa. Ég var tuttugu og þriggja ára og hafði ekk- ert skrifað fram að því. Ég skrifaði nú samt nokkrar skúffubækur fyrst.“ Hver er uppskriftin að góðri glæpasögu í stuttu máli? „Trúverðugir karakterar númer eitt, tvö og þrjú. Lesendur þurfa að finna til með fólkinu sem þeir lesa um. Svo þarf að vera flétta, jafnvel fleiri en ein, hún er auk þess mjög mikilvæg. Það þarf að vera nóg að gerast.“ Hvernig líst þér á Forlagið? „Bara vel. Ég er mjög ánægður með samstarfsfólkið á JPV og þar sem ég mun koma til með að vinna með því áfram sé ég ekki að þetta breyti neinu fyrir mig persónulega.“ Hefur þú bara skrifað glæpasögur? „Alls ekki. Ég hef skrifað sjö bæk- ur sem kannski eru allar í áttina að glæpasögum en ég lít ekki á mig sem glæpasagnahöfund.“ Til hamingju með glæpasagna- verðlaunin, kom þetta á óvart? „Já, ég vissi ekkert af þessum verð- launum enda eru þau alveg ný. Ég fékk fallegan verðlaunagrip og þetta er vissulega heiður.“ Lifir þú á því að vera rithöfundur? „Já.“ Hvenær verður Skipið fest á filmu? „Það er verið að vinna í hand- ritsskrifum og fljótlega fer af stað fjármögnun. Það er mikill kraftur í þessu.“ Hvenær kemur næsta bók? „Ég stefni á jólin 2008. Þar verða undirheimarnir og viðskiptalífið sam- an í einni sæng.“ Hvernig fer það saman að vera sjálfstæðismaður og rithöfundur? „Það fer mjög vel saman að vera sjálfstætt starfandi listamaður og sjálf- stæður maður. Ég met einstaklings- og tjáningarfrelsið mikils.“ Er búið að gefa þig út í útlöndum? „Nei, ekki ennþá en það er búið að kaupa réttinn að Skipinu í Danmörku og Tékklandi. Bókin verður gefin út á næsta ári í Danmörku, ég veit ekki með Tékkland.“ Hvað er fram undan? „Bara vinna og að hafa gaman af lífinu; hvort tveggja í einu.“ Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx xx xx xx +4 7 +4 1 xx +3 1 xx xx xx xx xx xx xx xx +3 7 xx +5 7 xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xx +9 4 xx +14 12+12 7 +13 12 +9 7 xx xx xx xxxx xx xx xx xx +12 12 +12 4 +8 1 xx xx xx xx xx +107 +127 -xx -xx MAÐUR DAGSINS veltingur Sigurjón M. egilsson skrifar. DíSill og trukklingur Lofræður eru haldnar og óskað er eftir að við hætt-um að keyra bensínbíla og snúum okkur þess frekar að dísilbílum. Þeir eru sagðir menga minna. Ég efast. Þar sem ég syndi á morgnana hagar þannig til að bílaplan íbúðablokk- ar er skammt frá lauginni. Á plan- inu stendur snemma á hverjum morgni dísilbíll, ekki trukkur, kannski má segja að það sé trukk- lingur. Sá sem keyrir trukklinginn setur í gang laust eftir klukkan sjö. Miklu skiptir að vera búinn að synda dagskammtinn þegar trukklingurinn er settur í gang. Ef ekki, fer í verra. Þegar trukklingurinn er settur í gang breytist allt. Dís-ilmökkinn leggur yfir allt nágrennið og þegar vindar blása þannig sjást varla handa- skil í lauginni. Og svo mikið er víst að dísilmökkur á fastandi maga er ekki góður. Ná- grannar trukka og trukklinga kunna eflaust dæmisögur um mökkinn og hversu afleitur hann er. Vel má vera að dísiltrukklingar mengi minna eftir að þeir hafa blásið úr sér við- bjóðnum sem fylgir þegar sett er í gang, en sá viðbjóður er þvílíkur viðbjóður að efast verður um nið- urstöðuna úr dísil- og bensínjöfn- unni. Vissulega er það skemm-andi að þurfa að synda af miklu kappi til þess að sleppa undan mekki trukklingsins og meðan keppst er við að ljúka sundinu áður en sett er í gang, leitar hugurinn meir og meir til þeirrar fullyrð- ingar að dísill sé betri en bensín. Þau sem segja það verða að gera svo vel að finna mun- inn á hreinu og tæru morgunlofti þar sem fegurðin og unaðurinn virðast endalaus og eftir að trukklingur hefur blásið úr sér eitur- gusu sem skemmir allt það fagra. NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði Lítur ekki á sig sem gLæpasagnahöfund Stefán Máni fékk fyrstur höfunda íslensku glæpasagnaverðlaunin 2007, blóðdropann, fyrir bók sína skipið. stefán er þegar byrjaður á næstu bók og stefnir hann á útgáfu jólin 2008.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.