Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Page 32
Þakplötur losnuðu og þóttu lík-
legar til fjúka af þaki húss á Lauga-
vegi 75 um tvöleytið í gærdag. Lög-
regla lokaði fyrir umferð gangandi
vegfarenda og bíla við Laugaveginn
á meðan verkamenn gengu frá plöt-
unum.
Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands, býst við
því að þessa snörpu vinda lægi á
næstunni og að í dag geti orðið ró-
lyndisveður um land allt. „Ef að lík-
um lætur stendur það þó ekki lengi.
Önnur lægð er á leiðinni og því má
búast við því að vindur taki sig aft-
ur upp. Þessari lægð kann að fylgja
haugarigning og jafnvel verður hætta
á aurskriðum,“ segir hann. „Það er
mikil væta í spákortunum frá og með
miðvikudeginum.“
Þorsteinn bendir á að hvassar
norðanáttir eins og þær sem nú hafa
gengið yfir landið séu að öllu jöfnu
snarpastar og erfiðastar á Snæfells-
nesinu. „Þessi vindur verður alverst-
ur við Bláfeld og eins getur hann orð-
ið slæmur sums staðar á Austurlandi
og sunnanverðum Austfjörðum,“ seg-
ir hann. Vindhviður fóru yfir þrjátíu
metra á sekúndu við Hvalnesskriður
í fyrrinótt og á sama tíma fór vindur í
47 metra á sekúndu í verstu hviðum
á Kjalarnesi. „Fólk verður helst vart
við þessar stífu hviður á Kjalarnes-
inu, enda er þar mikil umferð.“
Aðrir staðir sem gjarnan finna fyrir
stífum norðanstrengjum eru Vestur-
bær Reykjavíkur og þá helst Seltjarn-
arnesið, að sögn Þorsteins. „Það er
hinn svokallaði Hvalfjarðarstrengur
sem nær fyrir Esjuna, yfir innanverð-
an Faxaflóann og inn á Seltjarnar-
nes. Hvalfjarðarstrengurinn er þekkt
fyrirbæri meðal sjófarenda. Þeir sem
hins vegar búa í Austurbænum finna
mun minna fyrir þessu því að Esjan
veitir gott skjól,“ segir Þorsteinn.
sigtryggur@dv.is
Óánægja ríkir í Árborg með þá
ákvörðun bæjarstjórnar að fjarlægja
tré sem gróðursett voru að frum-
kvæði Vigdísar Finnbogadóttur, fyrr-
verandi forseta. Í stað trjánna kemur
íbúðabyggð.
Ósáttir íbúar í Árborg óttast að
þúsundir trjáa sem Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrrverandi forseti Íslands, gaf
til skógræktar og fjöldi grunnskóla-
barna gróðursetti í nágrenni Selfoss
á árunum 1992 til 1996 verði rifin
upp með rótum. Elísabet H. Harðar-
dóttir er í forsvari fyrir óánægða íbúa
í þessu máli. „Enginn virðist hafa vit-
að af þessu fyrr en of seint,“ segir hún
og gagnrýnir harðlega að farið sé að
rífa upp trén með rótum.
Misskilningur
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjar-
stjóri Árborgar, segir um reginmis-
skilning hjá andstæðingum fram-
kvæmdanna að ræða. Hún segir að
samkvæmt gögnum bæjaryfirvalda
hafi 10 til 15 þúsund trjám verið plant-
að víðs vegar í nágrenni Selfoss á þess-
um árum. „Megnið af þeim var keypt
á almennum markaði. Hluti trjánna
kom þó frá Pokasjóði og Yrkjusjóði.“
Skógræktarbókin Yrkja var gefin út
á sextugsafmæli Vigdísar og var stofn-
fé Yrkjusjóðs afrakstur af sölu bókar-
innar. Að ósk Vigdísar er vaxtatekjum
sjóðsins varið til kaupa á trjáplöntum
fyrir grunnskólanema.
Ragnheiður segir af og frá að ætl-
unin sé að farga trjánum. „Það á ein-
faldlega að færa þau. Annað hefur
aldrei staðið til.“ Hún staðfestir að
byggja eigi íbúðarhús þar sem trén eru
rifin upp en segir það hafa verið sam-
þykkt í aðal- og deiliskipulagi í ársbyrj-
un 2006. Engar athugasemdir bárust
þegar þau skipulög voru auglýst.
Geta hætt við
Gagnrýnendur framkvæmdanna
segja að þeim grunnskólabörnum
sem gróðursettu trjáplöntur fyrir 14
árum hafi verið sagt að þau gætu síðar
farið með börn sín og sýnt þeim ávöxt
starfsins. Ragnheiður segir að fyrstu
trén sem góðursett voru hafi verið sett
niður við svonefnt Gesthús, nokkuð
frá því svæði sem kallast Fagriskógur
og helsta gagnrýnin beinist að. „Trén
eru þar enn.“ Því er ekki loku fyrir það
skotið að garðyrkjumennirnir ungu
geti síðar sýnt afkomendum sínum
þau.
Íbúar lýstu yfir óánægju sinni með
framkvæmdirnar á fundi með bæjar-
yfirvöldum í síðustu viku. „Einu svör-
in sem við fengum voru að það væri
of seint að breyta þessari ákvörðun,“
segir Elísabet. Hún telur enn mögu-
legt að hætta við. „Það skal skýrt tekið
fram að menn eru ekki sáttir og skilja í
raun ekki að þetta skipulag hafi verið
samþykkt.“
Ragnheiður segir að bæjaryfirvöld
skipuleggi framkvæmdirnar í samráði
við landslagsarkitekt. „Við viljum að
þetta verði áfram fallegt og aðlaðandi
svæði.“
þriðjudagur 25. september 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Grænir fingur í Árborg?
VIGDÍSARSKÓGUR LÁTINN
VÍKJA FYRIR ÍBÚÐABYGGÐ
Óánægja í Árborg með byggingu nýrra húsa í Fagraskógi:
Hvassviðri hefur verið um land allt. Þakplötur fjúka við Laugaveg:
Hætta eykst á aurskriðum
Hentu rusli
og fá sekt
Tveir ungir ökumenn voru
kærðir fyrir að henda rusli út úr
bílum sínum við Hótel Selfoss
í síðustu viku. Slíkt er bannað
samkvæmt lögreglusamþykkt Ár-
borgar en mennirnir höfðu losað
töluvert magn af drasli á götuna
þegar lögregla sá til þeirra.
Þá gerði lögreglan á Selfossi
upptæk fíkniefni sem fundust rétt
innan við girðingu fangelsisins á
Litla-Hrauni. Lögreglan telur lík-
legt að einhver hafi kastað þeim
yfir girðinguna og ætlað þau ein-
hverjum refsifanganum þar. Ekki
er vitað hver var að verki og er
málið óupplýst.
Fann lykilinn í
öskubakkanum
Lögreglan á Selfossi hafði
hendur í hári manns sem hafði
brotist inn í bíl í Þorlákshöfn
og stolið honum. Bíllinn fannst
daginn eftir óskemmdur við
Óseyrarbraut í Þorlákshöfn.
Varalyklar höfðu verið geymd-
ir í öskubakka bifreiðarinnar og
blöstu því við þjófinum. Lög-
reglan náði hins vegar í hann
og handtók þar sem hann hafði
skroppið til Reykjavíkur og not-
að bensínkortið. Við yfirheyrslu
viðurkenndi hann þjófnaðinn og
telst málið upplýst.
Lausar þakplötur Verkamenn ganga frá þakplötum sem losnað höfðu af húsi við Laugaveginn í gær. Lögregla lokaði fyrir alla
umferð um stund vegna hættu fyrir vegfarendur. DV-mynd Sigtryggur
Landsbyggð fyrir
landbúnað
„Samþjöppun eignarhalds er ekki
góð á þessu sviði og bændur vilja
tryggja landið fyrir landbúnað,“ segir
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtakanna.
Breytingar á eignarhaldi bújarða
hafa jákvæðari samfélagsleg áhrif
í sveitum á suðurhluta landsins og
nær höfuðborginni en á bújörðum
lengra frá þéttbýli. Þetta kemur fram
í nýrri rannsókn sem Bændasamtök
Íslands létu gera. 72 prósent bænda
telja að breytingar á eignarhaldi
jarða síðastliðin 10 ár hafi haft áhrif
á búsetu í sveitum. Þá telur meiri-
hluti svarenda neikvætt að einn aðili
eigi margar jarðir.
Allsherjarnefnd
til lögreglunnar
Allsherjarnefnd Alþingis heim-
sótti í gærmorgun embætti ríkislög-
reglustjóra, Fangelsismálastofnun
og Útlendingastofnun. Í dag heim-
sækir nefndin svo Lögregluna á höf-
uðborgarsvæðinu.
„Þetta eru stofnanir sem flestar
búa við nýlega löggjöf og margar
hverjar starfa í breyttu umhverfi.
Með svona heimsóknum gefast
forstöðumönnum stofnananna
tækifæri til þess að koma málum á
framfæri við allsherjarnefndina og
nýir nefndarmenn eiga kost á því að
kynna sér starfsemina,“ segir Birgir
Ármannsson, formaður allsherjar-
nefndar.
Olmert sætir
rannsókn
Ehud Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, gæti verið í vondum málum
eftir að dómsmálaráðuneyti lands-
ins tilkynnti að
opinber rann-
sókn færi fram á
húsnæðiskaup-
um hans.
Olmert keypti
hús í Jerúsalem á
tuttugu milljón-
um króna lægra
verði en vænta
mætti miðað við staðsetningu þess
og stærð. Þetta er ekki eina málið sem
Olmert tengist og er til rannsóknar hjá
lögreglu. Sala hans á hlutafé í Leumi-
bankanum er þegar til rannsóknar.
Komist rannsakendur að þeirri nið-
urstöðu að Olmert hafi brotið af sér
gæti það orðið til þess að hann verði
að víkja úr embætti sem forsætisráð-
herra.
Talsmenn Olmerts gera hins vegar
lítið úr ásökununum og segja enga
ástæðu til að rannsaka þær frekar.
ErLa HLynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Gróðursetning Vigdís lagði löngum
mikla áherslu á skógrækt.