Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2007, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2007, Blaðsíða 10
fimmtudagur 25. október 200710 Fréttir DV Fulltrúar FBI, bandarísku alríkis- lögreglunnar, leita nú dyrum og dyngjum að James J. Bulger. Alrík- islögreglumennirnir hafa sett sig í samband við starfsbræður sína í Bretlandi á Scotland Yard, því mað- ur sem líktist Bulger náðist á mynd- bandi sem tekið var upp í Evrópu. James J. Bulger, sem er á lista FBI yfir þá tíu einstaklinga sem þeir vilja helst koma böndum á. Bulger er eft- irlýstur vegna átján morða, eitur- lyfjadreifingar og peningaþvættis. Bulger sem er af írsk-amerískum ættum hvarf árið 1994 og alríkislög- reglan í Bandaríkjunum heitir einn- ar milljónar dala verðlaunum þeim sem kemur fram með upplýsingar sem leiða til handtöku hans. Full- trúar FBI hafa sett sig í samband við löggæslustofnanir um alla Evrópu í von um að geta sannreynt að það séu í raun Bulger og lagskona hans, Catherine Greig, sem sjást á mynd- unum, sem voru teknar þann 10. apríl í Taormina á Sikiley. Á mynd- bandinu sem sýnt er á vefsíðu FBI sést maður, sem svipar til Bulgers, á göngu ásamt yngri konu, kíkjandi í búðarglugga á Sikiley. Skaphundur með hníf Á vefsíðu FBI segir að Bulger, sem nú er sjötíu og átta ára, hafi átt þátt í morðum snemma á áttunda áratug og um miðjan níunda áratug síð- ustu aldar, en þá var hann leiðtogi glæpaklíku sem þreifst á kúgunum og eiturlyfjaverslun og annarri ólög- legri starfsemi á svæðinu í kringum Boston í Massachusetts í Bandaríkj- unum. Á vefsíðunni segir einnig að Bulger sé ofbeldisfullur skaphundur og þekktur fyrir að ganga með hníf á sér öllum stundum. Orðrómurinn um að sést hafi til Bulgers á Sikiley hefur hleypt nýju lífi í þá kenningu innan FBI að höf- uðstöðvar hans séu í Evrópu og hann hafi tengsl við Lundúni. Árið 2003 í janúar tilkynnti alríkislög- reglan að í Barclays-bankanum við Piccadilly í Lundúnum hefði fund- ist öryggishólf sem innihélt fimm- tíu þúsund bandaríkjadali og full- yrt var að tilheyrði mafíósanum. Því til staðfestingar upplýsti Willi- am Chase, yfirmaður Boston-deild- ar alríkislögreglunnar, að William M. Bulger, fyrrverandi forseti há- skólans í Massachusetts og bróðir James J. Bulger hefði verið skráð- ur sem tengiliður vegna öryggis- hólfsins. William var yfirheyrður um umsvif James J. Bulgers af þing- nefnd árið 2002 og bar við að hann hefði grunað að þau væru ekki af löglegum toga. Að sögn FBI hafði legið fyrir grunur um öryggishólfið í Lundúnum í nokkur ár. Bulger er auk þess talinn vera með öryggis- hólf á Írlandi, í Florída í Bandaríkj- unum og í Kanada. Síðast er talið að sést hafi til hans árið 2002, þegar viðskipta- maður sagðist hafa séð mann sem líktist honum á Meridian-hótelinu í Lundúnum. Snemma beygist krókurinn James J. Bulger var fyrst handtek- inn árið 1943, þá fjórtán ára að aldri, vegna íkveikju. Glæpaferill Bulg- ers var hafinn og á árunum á milli 1943 og 1947 var hann handtekinn fyrir hótanir og ofbeldi, skjalafals og vopnað rán og fyrir þessi afbrot var hann sendur á endurhæfingar- stofnun fyrir unglinga. Eftir að hon- um var sleppt af þeirri stofnun árið 1948 gekk hann í flugher Bandaríkj- anna. Á þeim tíma sem hann þjón- aði í flughernum eyddi hann þó nokkrum tíma í grjótinu fyrir ýmsar líkamsárásir og árið 1950 var hann handtekinn fyrir fjarvistir án heim- ildar. Eftir að honum var veitt lausn frá herþjónustu árið 1952 snéri hann aftur til Boston og skömmu síðar var hann viðriðinn rán á flutn- ingabíl sem flutti áfengi. Árið 1955 gekk Bulger til liðs við gengi sem framdi bankarán víða á Rhode Island og í Indíana og í janúar 1956 var gefin út handtökuskipun á hendur honum hvar sem til hans næðist í Bandaríkjunum. Hann lagði þá á flótta og fór í felur, en allt kom fyrir ekki og í mars sama ár var hann handtekinn og dæmdur til tuttugu og fimm ára fangelsisvistar. Tilraunadýr leyniþjónustunnar Afplánun hans hófst í fangelsi í Atlanta sem sérstaklega var ætl- að bankaræningjum, en á þeim níu árum sem hann afplánaði var hann fluttur milli hinna ýmsu fang- elsa. Sagan segir að á meðan dvöl hans stóð í fangelsinu í Atlanta hafi hann samþykkt að taka þátt í erf- iðri tilraun á vegum leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA. Með tilraun- inni átti að finna upp sannleikslyf fyrir leyniþjónustuna og tók Bulg- er þátt í henni gegn loforði um styttri fangelsisvist. Í átján mánuði voru Bulger og átján fangelsisnaut- ar hans sprautaðir með ofskynjun- fbi leitar mafíósa Það varð ljóst mjög snemma hvaða stigu James J. Bulger mundi feta. Aðeins fjórtán ára að aldri var hann handtekinn vegna íkveikju og var það aðeins forsmekkurinn að ferli hans. Hann tengdist skipulagðri glæpastarfsemi í Boston, til dæmis veðmálum og eiturlyfjasölu og FBI leitar hans nú logandi ljósi í Evrópu vegna gruns um að til hans hafi sést á Sikiley. KolBeinn þorSTeinSSon blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Á vefsíðunni segir einnig að Bulger sé of- beldisfullur skaphund- ur og sé þekktur fyrir að ganga með hníf á sér öllum stundum. William M Bulger bróðir mafíósans sagðist ekki þekkja til atvinnu James.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.