Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2007, Blaðsíða 11
DV Fréttir fimmtudagur 25. október 2007 11
Rússinn Alexander Pichushkin
var í gær fundinn sekur um fjöru-
tíu og átta morð. Hann er þekkt-
ur sem Taflborðsmorðinginn, því
hann merkti við reit á taflborði fyr-
ir hvern þann sem hann myrti. Þótt
þessi fyrrverandi starfsmaður stór-
markaðs hafi aðeins verið fundinn
sekur um fjörutíu og átta morð hef-
ur hann sjálfur haldið því fram að
fórnarlömb hans séu sextíu og tvö
talsins. Við rannsókn málsins fann
lögregla taflborð og var Pichushkin
búinn að merkja við sextíu og tvo
reiti af sextíu og fjórum. Hann bar
aldrei af sér morðin og sagðist elska
að drepa. Þegar hann játaði á sig
morðin í beinni sjónvarpsútsend-
ingu sagði hann meðal annars að
morð væru ástríða hans: „Fyrir mig
er líf án morða eins og líf án matar
fyrir þig.“
Þekkti fórnarlömbin
Pichushkin sagðist hafa þekkt
flest fórnarlamba sinna og að
hann hefði ekki fundið fyrir neinu
við drápin. Ferill hans hófst árið
2001 og hann stundaði að lokka
fórnarlömb sín, sem flest voru
karlmenn, með loforðum um
drykk, í Bittsa-almenningsgarð-
inn í suðurhluta Moskvu og myrða
þau þar. Hann var handtekinn
árið 2006 eftir að lögreglan fann
miða með nafni hans og síma-
númeri á einu fórnarlambanna.
Upphaflega neitaði hann sök, en
játaði eftir að lögreglan sýndi hon-
um myndband þar sem hann sást
með fórnalambinu. Álitið hefur
verið að hann hafi ekki einungis
ætlað að fylla taflborðið, heldur
einnig að slá met Andreis Chik-
atilo, sem er mesti raðmorðingi
Rússlands. Hann hafði fimmtíu og
tvö mannslíf á samviskunni og var
tekinn af lífi árið 1994.
Alexander Pichushkin, Taflborðsmorðinginn, sekur fundinn:
Fernando José Pinto Monteiro,
yfirsaksóknari í Portúgal, hefur við-
urkennt að portúgölsku lögregl-
una kunni að skorta næga sérfræði-
þekkingu til að fást við barnsrán því
barnsrán væru miklu fátíðari í Portú-
gal en á Englandi. Hann sagði einn-
ig að undir engum kringumstæðum
skyldi þeirri kenningu að Madeleine
McCann hefði verið rænt, varpað
fyrir róða og að öllum vísbendingum
ætti að fylgja eftir. Hann bætti við að
hann gæti ekki ábyrgst að lögreglu-
menn hefðu ávallt starfað innan
ramma laganna við rannsókn máls-
ins.
Í viðtali við portúgalskt dagblað
sagði Monteiro að símahleranir væru
að hans mati stundaðar í of mikl-
um mæli. „Ég sjálfur hef efasemdir
um að minn sími sé ekki hleraður,“
sagði hann. McCann-hjónin höfðu
látið í ljósi grunsemdir um að símar
þeirra væru hleraðir. Þær grunsemd-
ir byggðust á því að spurningar sem
lögreglan beindi til þeirra virtust í of
mörgum tilfellum vera í beinu sam-
hengi við það sem þau höfðu rætt í
síma við vini og fjölskyldu.
Nýir vendir sópa best
Paulo Rebelo, sem nýlega tók
við yfirstjórn rannsóknarinnar í
McCann-málinu, fyrirskipaði fyrir
skömmu að vísbendinga skyldi leit-
að að nýju frá grunni. Leita átti innan
fimmtán kílómetra radíuss frá heim-
ili McCann-hjónanna á Praia da
Luz. Leita átti með ströndinni milli
Praia da Luz og þorpsins Burgau og
á svæðinu á milli strandarinnar og
Ocean Club, þar sem hjónin bjuggu,
og í skóglendi á svæðinu. Leit á þess-
um svæðum var hætt þremur vikum
eftir að Madeleine hvarf því lögregl-
an ályktaði að hún væri dáin. Rebelo
skipaði einnig sex sérfræðinga til að
fara yfir og endurskoða allt sem talist
gætu lausir endar.
Dýrt er drottins orð
Eintak af Kóraninum, hinni heil-
ögu bók múslíma, seldist á sem
nemur rúmlega 1,3 milljörðum
íslenskra króna á uppboði hjá
Christies. Um er að ræða Kóran
frá árinu 1203 og er letrið úr gulli
og athugasemdir skrifaðar í silfri.
Þetta er elsta útgáfa ritsins sem
vitað er um og upphaflega var
reiknað með að hæsta boð yrði í
kringum þrjú hundruð og þrjátíu
milljónir. Tilboð voru gerð í gegn-
um netið og símann og að sjálf-
sögðu á uppboðinu sjálfu og þegar
upp var staðið hafði fengist fjórföld
sú upphæð sem reiknað var með.
Hundruð föst í lest
Fjöldi manns þurfti að leita læknis-
hjálpar í Tókýó í Japan eftir að fimmtán
hundruð manns urðu innlyksa í klukku-
tíma í farþegalest. Straumrof varð þess
valdandi að lestin stöðvaðist inni í lest-
argöngunum og um borð voru tvöfalt
fleiri farþegar en hún er reiknuð fyrir. Í
heilan klukkutíma stóðu farþegarnir eins
og sardínur í dós og án loftkælingar urðu
farþegaklefarnir fljótlega eins gufubað
og leið þá yfir fjölda farþega.
arlyfinu LSD, eða þeir neyddir
til að taka það í fljótandi formi.
Sumir þessara manna urðu geð-
veikir og aðrir frömdu sjálfs-
morð. Talið er að Bulger hafi
síðan þjáðst af svefnleysi, hræði-
legum martröðum og stöku of-
skynjunum. Bulger var sleppt
úr fangelsi árið 1965 og eftir að
hafa unnið um stutt skeið sem
húsvörður gerðist hann einn af
hrottum Donalds Killeen, leið-
toga ráðandi glæpafjölskyldu í
suðurhluta Boston.
Til ársins 1980 var Bulger við-
loðandi veröld mafíunnar í Bost-
on. Breytni hans einkenndist af
slægð og tvískinnungi og skipti
engu máli hvort um var að ræða
samherja eða mótherja, ef hann
sá í þeim keppinauta kom hann
þeim fyrir kattarnef sjálfur eða
sá til þess að það yrði gert. Upp
úr 1970 gerðist hann uppljóstr-
ari fyrir FBI og notaði þau tengsl
óhikað til að koma samkeppnis-
aðilum sínum bak við lás og slá.
Eiturlyf og veðlán
Á níunda áratug síðustu aldar
voru eiturlyf og veðmál í Boston
að stórum hluta á könnu Bulgers
og félaga hans. Bulger kallaði
helstu eiturlyfjaprinsa á svæð-
inu á sinn fund og sagði þeim að
honum væru boðnar háar fjár-
hæðir fyrir að koma þeim fyrir
kattarnef og krafðist hárra fjár-
hæða af þeim sjálfum fyrir að
gera það ekki. Fyrr en varði voru
umsvif Bulgers orðin svo mikil að
það var aðeins spurning hvenær
lögregluyfirvöld hefðu í hönd-
um nægar sannanir til að byggja
upp mál gegn honum. Árið 1994
töldu yfirvöld sig himin höndum
hafa tekið þegar veðmangarar
sem voru í fangelsi samþykktu að
vitna gegn Bulger.
Bulger fékk veður af því að til
stæði að handtaka hann um jóla-
leytið árið 1994 og 23. desember
lagði hann á flótta ásamt sambýl-
iskonu sinni. James J. Bulger hefur
farið huldu höfði síðan þá.
Merkti morð inn á taflborð
Barnsrán fátíðari í Portúgal en á Bretlandi:
Portúgalska lögreglan
þjáist af reynsluleysi
fbi leitar mafíósa
Mynd sem FBI birti árið 2002
Sýnir hvernig hann hefði hugsanlega getað litið út þá.
James J Bulger eins og hann birtist á lista fbi
yfir þá tíu sem þeir helst vilja hafa hendur í hári.
Madeleine McCann Portúgölsku
lögregluna skortir reynslu til að rannsaka
barnsrán.
Alexander Pichushkin „fyrir mig er
líf án morða eins og líf án matar fyrir
þig.“