Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2007, Side 20
Fæddir undir
Norskt tryggingafélag skoðar stjörnu-
merki óhappabílstjóra:
norska tryggingafélag
ið Tryg-
Vesta hefur skoðað í hvaða
stjörnumerkjum ökumenn
eru sem lent hafa í umferð-
aróhöppum. Fylgni hef-
ur greinst milli óhappatíðni og þess í
hvaða stjörnumerki óhappabílstjórar
eru fæddir.
Umrædd rannsókn norska trygg-
ingafélagsins nær til fleiri þúsunda
tjóna sem orðið hafa á bílum undan-
farin sjö ár. Kannaður hefur verið ald-
ur ökumannanna og búseta, hversu
lengi þeir höfðu haft ökuréttindi og
tegund og gerð bílanna. Upplýsinga-
fulltrúi tryggingafélagsins sagði við
norska fjölmiðla að upphaflega hefðu
þau sem unnu að rannsókninni sett
inn fæðingardag og ár sem breytu
inn í rannsóknina sér til gamans.
Hið furðulega hefði þá komið í ljós
að greinileg fylgni væri milli tjóna og
þeirra stjörnumerkja sem ökumenn
höfðu fæðst í.
„Þegar við samkeyrðum slys og
fæðingarstund ökumannanna kom
hið furðulega í ljós að þeir sem fæddir
eru í stjörnumerkinu steingeitinni (21.
des.–20. jan.) eru 2,5% líklegri til að
valda umferðaróhöppum.“ Að hennar
sögn er þetta tölfræðilega marktæk-
ur munur sem nær til bæði ábyrgð-
ar- og kaskótjóna. Steingeitin er eina
stjörnumerkið sem sýnir tölfræðilega
marktækan áhættumun.
Danska dagblaðið Jyllands Posten
hafði af þessu tilefni samband við tvo
stjörnuspekinga sem virðast hafa ver-
ið nokkuð undrandi á þessari niður-
stöðu tryggingafélagsins. Þeir kveðast
að óreyndu hefðu fremur trúað því að
slysavalda væri frekar að finna í hrúts-
merkinu. Fólk fætt í steingeitinni væri
yfirleitt varfærið og gerði sér far um að
fara að lögum og reglum, en kannski
virkaði varfærnin þannig í umferð-
inni að steingeitarfólkið væri of lengi
að hugsa sig um og ákveða hvað gera
skyldi og lenti þess vegna í slysum.
óheillastjörnu?
21.12. – 20.01.
Óttast að gera eitthvað rangt og
býst sífellt við hinu versta. Einblínir
á lokatakmarkið án þess að gefa
nánasta umhverfi gaum.
Steingeitin
19.02. - 20.03.
Dreymir dagdrauma
og hugurinn
víðs fjarri akstrinum. F
erðast um
óravíddir hugans og g
leymir að
horfa á veginn.
Fiskurinn
20.01. - 19.02.
Sérvitur og sjálfhverfur. Vís til að
brjóta gildandi reglur þegar mikið er að gerast, eða þá bara af því honum dettur það sísona í hug allt í einu.
Vatnsberinn
20.03. - 20.04.
Skjóthuga, fljótur að ákveða sig,
mikið keppnisskap – vill verða
fyrstur.
Hrúturinn
20.04. - 21.05.
Traustur og rýmir gjarnan til
fyrir öðrum. Getur staðið fast
á eigin rétti.
Nautið
21.06. - 22.07.
Lætur tilfinningarnar
ráða
um of og gleymir þá a
ð
hugsa rökrétt og af
skynsemi.
Krabbinn
21.05. - 20.06.
Akstur liggur vel fyrir fólki sem fætt er
í tvíburamerkinu. Getur átt það til að
gera of margt í einu, eins og að góna á
fólkið á gangstéttinni, tala í farsímann
eða senda SMS í akstri.
Tvíburinn
22.07. - 23.08.
Krefst virðingar og móðgast
auðveldlega og tapar þá yfirsýninni.
Á til að sýna hroka.
Ljónið
23.08. - 23.09.
Of upptekin af smáatriðum og að
hanga í reglum. Tileinkar sér gjarnan
rykkjótt og taugaveiklunarlegt
ökulag.
Meyjan 23.09. - 22.10.
Á til að vera lengi að velja á milli
þeirra kosta sem í boði eru. Á erfitt með að ákveða sig.
Vogin
23.10. - 21.11.
Vantar sveigjanleika. Á til að vera ör í skapi og jafnvel hefnigjarn ef hann telur að einhver hafi beitt hann órétti.
Sporðdrekinn 22.11. - 21.12.
Á til að líta á akstur sem eins
kæran
leik og örvast af hraðanum.
Bogmaðurinn
Stjörnuspekingarnir hafa gert eins konar áhættumat fyrir einstök
stjörnumerki sem birt er í Jyllands Posten en það er svona:
fimmtudagur 25. október 200720 Bílar DV