Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Side 7

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Side 7
Siglufjarðar til ársloka 1907, en lil Dal- víkur frá 1. jan. 1908, þangað til árið 1928. Þá réð hreppsnefnd Ólafsfjarðarhrepps sérstakan lækni til Ólafsfjarðar, og var hann kostaður bæði af sveitarsjóði Ólafs- fjarðarhrepps og rikissjóði. Með löguin nr. 44 28. júní 1932 var Ólafsfjörður á- kveðinn sérstakt læknishérað. Með lögum nr. 40 28. j.an. 1935 var stofnað lögreglu- stjóraemhætti fyrir Ólafsl'jörð, og hefur verið þar sérstakur lðgreglustjóri síðan 1936. Eins og áður segir, er sjávarútvegur að- alatvinnuvegur Ólafsfirðinga. Veiðiskipin eru þilfarsbátar, 12—50 smátestir ‘ að stærð, og opnir vélbátar allt að 5 smál. Munu bátarnir hafa verið um 50 talsins, þegar þeir voru flestir. Vetrarmánuðina verða veiðar ekki stundaðar nema á smá- bátum, sem hægt er að setja á land eftir hvern róður. Veldur því hafnleysið. Aðal- vertíðin stendur venjulega frá því síðast í apríl og lil septemberloka. Stærri vélbát- ar stunda sildveiðar á sumrin. Stóru vél- bátarnir hafa reynzt miklu arðmeiri en trillubátarnir. A kreppuárunum fyrir styrjöldina safnaði útgerðin miklum skuldum og þó minnstu bátarnir tiltölu- lega mestum. Stóratvinnufyrirtæki hafa engin verið í Ólafsfirði fram til þessa, en flestir ibú- anna hafa að einhverju levti verið fram- leiðendur, enda hafa þar nær eingöngu verið hlutaskipti á bátum hæði hvað snertir sjómenn og landmenn við bátana. Enda þótt menn söfnuðu miklum skuld- uin, þegar verst áraði, öfluðu jieir sér þó mikils matar sem hlutarmenn á fiskibát- unum. Fátækraframfæri var því minna í Ólafsfirði en gera hefði mátt ráð fyrir miðað við efnahag fólksins, þar sem lílið var um, að vinnufærir menn þyrftu að leita sveitarstyrks. Síðari hluta vetrar eru sumir stærri bátanna gerðir út frá Suðurlandi eða Siglufirði. Su.mir trillubátanna hafa einnig verið gerðir út frá Siglufirði á vetrum. S. 1. sumar voru gerðir út frá Ólafsfirði 8 vélbátar, 12—50 smál. að stærð, og um 30 trillubátar. Það, sem stendur útgerð í Ólafsfirði mest fyrir þrifum, er hafnleysið. Ólafs- fjörður er opinn fyrir norðaustan átt, og t rá náttúrunnar hendi eru engin þau skil- vrði fyrir hendi, er veiti skipum afdrep á fiskveiðum. Verða Ólafsfirðingar því oft að flýja með báta sína af firðinum og til Eyjafjarðar vegna brims. Stundum hafa Ólafsfirðingar teflt of djarft í þessu efni og orðið of seinir að yfirgefa fjörðinn og bátarnir sokkið í höfninni og önýtzt. Má segja, að á engum tíma árs sé öruggt báta- lægi á Ólafsfirði. Laugardagskvöldið 8. júní 1935, kvöldið fyrir hvítasunnu, var veður hið bezta. Ól- afsfirðingar lögðu bátum sínum á höfn- inni, svo sem venja var til. Um nóttina gerði norðaustan óveður og stórsjó svo skvndilega, að menn, sem voru að gera að fiski rétt við bryggjuna, gátu nauðu- Iega bjargað á land opnum bátum, sem voru þar við bryggjuna. Út í Jiá báta, sem voru á höfninni, varð ekki komizt. Um nóttina sukku eða rak á land 18 báta. Tíu opnir vélbátar og einn 17 smálesta yélbátur ónýttust alveg, en 4 trillubátar og 3 þilfarshátar skemmdust mikið. Ól- al'sfirðingar misstu þannig í vertíðarbyrj- un mestan hluta skipastóls síns. Voru al 1- ir opnu vélbátarnir óvátrvggðir og eigna- tjón hlutaðeigenda Jní mikið. Auk þess olli Jietta miklu atvinnuleysi i kauptún- inu, þar sem atvinna flestra kauptúns- búa var bundin við útgerð báta þeirra, er fórust. Þrátt fyrir fjárhagskreppu J)á, er ])á var, tókst Ólafsfirðingum að byggja upp bátastól sinn að nýju, svo að undan- farin ár hefur Ólafsfjörður verið talinn mesta þorskveiðistöð norðanlands. Eg hef leitazt við að gera mér grein fyrir verðmæti sjávarafurða, útfluttra frá Ólafsfirði undanfarin ár, og hef komizt að þessari niðurstöðu: Árin 1925—1937 400—630 þús. kr. á ári. Arin 1938—1940 830—900 þús. kr. á ári. Síðan 1941 ca. 1% millj. kr. á ári. Auk ])ess er síklarafli vélbáta frá Ólafs-

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.