Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Blaðsíða 10

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Blaðsíða 10
6 SVEITARSTJÓRNARMÁL staðarréttinda. Ekki var uppástunga l>essi tekin alvarlega, en þótti þó strax athug- andi. Reynt var að fá afnumið það ákvæði hafnarlaganna, að bakábyrgð sýslusjóðs þyrfti til handa ríkissjóði. Sú leið reynd- ist ekki tiltækileg. Til þess að ltoma hafn- armálinu í framkvæmd var því ekki fær önnur ieið en sú að slíla Ólafsfjarðar- hrepp úr tengslum við Eyjafjarðarsýslu, þ. e. að gera Ólafsfjörð að sérstöku lög- sagnarumdæmi. Fjölmennir borgarafund- ir voru haldnir um málið og þar sam- þykkt einróma að skora á hreppsnefnd að vinna að því eftir mætti, að Ólafsfjörð- ur fengi kaupstaðarréttindi. Þingmenn kjördæmisins fluttu því haustið 1944 á Alþingi frv. til laga uin bæjarstjórn í Ól- afsfirði, og náði það samþykki Alþingis sem lög nr. (50 31. október 1944, og öðluð- ust þau gildi 1. janúar s. 1. Er bæjarstjórn Ólafsfjarðar skipuð 7 mönnum, og fóru fyrstu bæjarstjórnar- kosningarnar fram (5. janúar s. 1. Jafnframt því, að unnið var að því að afla Ólafsfirði bæjarréttinda, var athug- að, hverjir möguleikar væru á því að vinna að hafnargerð árið 1944, eins og fyrirhugað var. Var þá leitað til Alþingis og þar samþykkt í marz 1944 þingsálykt- unartillaga þess efnis, að ríkisstjórninni heimilaðist að kaupa efni til hafnargerð- arinnar fyrir allt að 200 þús. kr. Var þá ætlazt til, að Ólafsfjarðarhreppur hefði útvegað fé til þess að innleysa efnið, þeg- ar það kæmi til landsins, svo að ríkissjóð- ur þyrfti enga fjárhagslega byrði að hafa af því. Auk þess þurfti Ólafsfjarðarhr. lánsfé til greiðslu vinnulauna og annars kostnaðar. Var þvi boðað lil horgarafund- ar í Ólafsl'irði til þess að ræða málið. Var þar samþykkt að reyna að fá 300 þús. kr. lán, og bundust menn samtiikum um að ábyrgjast slíkt lán allir fyrir einn og einn fyrir alla. Rituðu samtals 107 menn undir slikt ábyrgðárskjal. Útibú Búnaðar- banka Islands á Akureyri lánaði pening- ana, en greiðast skyldu þeir að ári liðnu. Var málið því fjárhagslega leyst í bili, og var því unnið að háfnargerð s. 1. sumar eins og ekkert hefði í skorizt. Eins og áð- ur segir, er ábyrgð sýslusjóðs Eyjafjarð- arsýslu nú ekki lengur nauðsynleg, og strandar hafnarmálið því ekki á henni framvegis. Síðustu árin hafa Ólafsfirðingar gert ýmislegt lil þess að gera kauptúnið sem byggilegast. Þegar vérst vegnaði fyrir út- gerðinni, var hafin ræktun á landi við kauptúnið, þótl jarðvegur sé ekki vel fall- inn til ræktunar. Eiga allmargir kaup- staðarbúar því kýr og kindur. í árslok 1942 tók til starfa í Ólafsfirði 250 hestafla vatnsaflsrafstöð. Er orkuverið um 2 km frá kaupstaðnuiii, og auk þess njóta raf- orkunnar 2 sveitabæir. Minnsl álíka mikil vatnsorka er enn óvirkjuð í nánd við kaupstaðinn. Tæpa 4 km frá kaupstaðnum eru lindir með rúml. 50° heitu vatni. Hefur heita vatnið verið leitt lil kaupstaðarins, og eru næstum öll hús kaupstaðarins hituð upp með því. Hitaveita Ólafsfjarðar tók til starl'a s. 1. haust. Var henni ætlað að full- nægja liitaþörf húsa í allt að 5° frosti, og virðist hún fyllilega ætla að uppfylla þær vonir. Út hitaveitunni er einnig veitt vatni í 8X25 metra sundþró í útjaðri kaup- staðarins. Ólafsfjörður er fjöllum luklur á alla vegu, nema lil norðausturs, er veit að sjó. Byggðin er ekki í neinu bílvegaáambandi við aðrar byggðir landsins. Er þó auð- velt að Ieggja veg milli Ólafsfjarðar og Stiflu í Skagafjarðarsýslu, og er líklegt, að vegasamband fáist á þessu ári eða næsta; þar sem Alþingi hefur nú veitt ríf- lega fjárhæð í því skyni. Ólafsfjarðar- kaupstaður er aðeins (5 k.m frá fjölförn- ustu skipaleið norðanlands, en þó liafa livorki skip Eimskipafélags Islands né strandferðaskip ríkissjóðs ált þangað á- ætlun. Mestallar vörur til Ólafsfjarðar fara lil Akureyrar og eru síðan fluttar til ólafsf jarðar með mótorbátum. Þannig er einnig um fólksflutninga. Verður ekki ráðin bót á þessu fyrr en hafskipabryggja verður gerð í Ólafsfirði. Ólafsfjörður hefur fengið hæjarréttindi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.