Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Side 14

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Side 14
10 SVEITARST.IÓRNARMÁL Álagning útsvara. Útsvarslögin hafa nú verið gefin úl með þeim breytingum, sem á þeim hafa verið gerðar að undanförnu. Endurskoð- un hefur þó engin farið fram á ])eim, sem þó þyrfti, og álagningarreglur eru þar engar gefnar. Hefur oft verið um það spurt, hvort ekki séu til neinar fastar reglur um álagn- ingu útsvara, en því verður þar til að svara, að svo er ekki. Hreppsnefndum og niðurjöfnunarnefndum ber að leggja á „eftir efnum og ástæðuin“, og er þeim því í sjálfsvald sett, hvernig þær fara að þessu. Þó er það nú.orðið svo í kaupstöðum og stærri kauptúnum, að niðurjöfnunar- nefndir hafa búið sér til fastar reglur að fara eftir, og er lítið vikið frá þeim, nema sérstaklega standi á. Má segja, að þessir „útsvarsstigar" séu nokkuð svipaðir alls staðar, þó að Reykjavikurstigarnir séu að ýmsu fullkomnastir. Árið 1944 voru kauptúnin beðin um að senda útsvarsstiga sína til mín, og gerðu mörg þeirra það. Hef ég yfirfarið þá og athugað nokkuð. Vegna fram kominna óska margra odd- vita og hreppsnefndarmanna hirtast hér þrír slíkir útsvarsstigar, og hafa tveir þeirra að vísu verið birtir áður, en einn þeirra — Húsavikurstigann hefur odd- viti leyft að birta. Elest sveitarfélög hafa ekki hirt út- svarsstiga sína, og veldur þar sjálfsagt meslu u.m, að þau eru að þreifa sig áfram til þess að fullkomna þá svo sem unnt er. Mjög er nauðsynlegt, áður en nánari löggjöf yrði sett um útsvarsálagninguna sjálfa, að sveitarfélögin hefðu átt þess kost að reyna að samræma útsvarsstiga sína sem hezt, og fyrir því birti ég hér þessa þrjá stiga, ef það gæti flýtt fvrir slíkri samræmingu. Um álagningu í sveitum er nokkuð öðru máli að gegna. Þar hafa enn þá rajög ó- víða myndazt fastar reglur svo kunnugt sé og meira því um „handahófsálagningu“ svokallaða að ræða þar. Er þó hin mesta nauðsyn á því, að þar verði fundnar fast- ar reglur til að fara eftir ekki siður en í kaupstöðum og kauplúnum. Mjög athyglisverð grein birtist 12. apríi s. 1. um álagningu útsvara í sveitum i blaðinu ,,I)egi“ á Akureyri. Höfundur greinarinnar er Jónas Pétursson hóndi og hreppsnefndar.maður á Hranastöðum í Eyjafirði. Tel ég grein þessa eitt hið allra athyglisverðasta, sem á síðari árum hefur verið skrifað um þessi mál, og mikil nauð- syn er á því, að hreppsnefndir athugi vel þær tillögur, sem þar eru fram bornar. Birtist því grein Jónasar Péturssonar hér í heild eins og hún kom í ,,Degi“ og með leyfi höfundarins. J. G. Tekjur sveitarfélaganna. Löggjöfin um tekjur sveitarfélaganna er ekki mikil fyrirferðar. Aðaltekjur þeirra eru svo sem kunn- ugt er útsvörin, en auk þess er þeim heim- ilt að leggja á fasteignaskatt. Er sá tekju- stofn nokkuð notaður í kaupstöðum og kauptúnum, en litið í öðruin sveitarfé- lögum. A þingi því, er lauk nú í marzbyrjun, var gerð nokkur breyting á hvorum tveggja þeirra laga, sem aðallega fjalla um tekjur sveitarfélaganna, og tel ég því rétt að hirta lög þessi i „Sveitarstjórnar- málum“ eins og þau eru nú, og eru þá all- ar eldri breytingar einnig færðar inn í texta laganna. ./. G.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.