Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Qupperneq 15

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Qupperneq 15
S VEITA R STJ Ó R N AR M Á L 11 Jónas Pélursson: r Utsvörin og álagning þeirra. I. Nú líður óðum að því, að hreppsnefnd- irnar fari að jafna niður útsvörum fyrir yfirstandandi ár. Tel ég því heppilegt að taka nokkuð til athugunar, hvernig útsvör eru almennt lögð á. Allir, sem við þau mál hafa fengizt, hafa vafalaust komizt að raun um, að þar er um vandamál að ræða. Útsvarslögin kveða svo á, að útsvör skuli lögð á „eftir efnum og ástæðum“, með nokkrum nánari skýringum. Má segja, að sá rammi, sem lögin þannig mynda, sé allrúmur. Er þó hér um mál að ræða, sem skiptir borgarana allmiklu, og því furðulítið aðhald, sem hrepps- nefndum er veitt með lögunum, og lítil trygging fyrir útsvarsgreiðendurna, að rétt og sanngjarnlega verði lagt á. Nema útsvörin víðast það háum upphæðum, að verulegu máli skiptir, að þau raunveru- lega hvíli á eftir efnum og ástæðum. Ýms- ar hreppsnefndir hafa nú á síðari árum farið að skapa sér grundvöll, byggðan á skattaframtölum, til að miða útsvörin við. Þetta hefur þó vfirleitt verið allmikið á reiki og sumar hreppsnefndir jafnvel livggt að mestu á „tilfinningum“ sinum. Við kynni mín af þessum málum nú hin siðari ár hefur mér orðið æ ljósara, eftir því sem ég' héf kynnzt útsvarsálagn- ingum betur, að það ástand, sem nú ríkir í þessum málum, er algerlega óviðunandi. Er það jafnt, hvort sem skoðað er frá þeirri hlið, er snýr að útsvarsgreiðendum og því öryggisleysi, sem í útsvarslögun- uin er fólgið, eða frá sjónarmiði hrepps- nefndanna og þess vanda, sem þeim er á hendur fenginn, án þess að þeim séu sköpuð viðunandi skilyrði til þess að geta Ieyst hann. Eg hef smátt og smátt verið að reynp að brjóta þetta mál til mergjar og skapa grundvöll, er væri sem næst al- gildur, og álagningarkerfi, sem fæli í sér flest þau frávik, sem „ástæður" útsvars- greiðendanna krefjast. Hef ég nú stað- næmzt við ákveðið kerfi, sem ég tel þess vert að kynna og mun leggja áherzlu á, að verði almennt tekið í notkun við út- svarsálagningu, svo framarlega að ekki komi fram rökstudd gagnrýni á þvi, sem sannfæri mig um, að kerfið sé ónothæft. Það skal nú þegar tekið fram, að ég hef hér einkuin í huga útsvör i sveitum og þá l'yrst og fremst álagningu á hændur. Það er allmiklu auðveldara að leggja útsvör á þá, sem lifa á laununi, heldur en á at- vinnurekendur. Eg hef fyrst og fremst um þessi mál hugsað frá sjónarmiði hrepps- nefndarmanns í sveit, enda hygg' ég, að sama kerfi geti gilt í höfuðdráttum fyrir alla atvinnurekendur og þó enn frekar lyrir álagningu á einhlevpl fólk, se.m hef- ur tekjur sínar mestmegnis i kaupi, hvorl sem það býr í sveitum eða kaupstöðum. II. Þá skal fyrst athuguð álagning á bænd- ur. Eg tel, að Ieggja béri útsvar á jarð- irnar, þar sem þær eru hinir raun- verulegu tekjustofnar. Ber þá að iniða við fasteignamat og leggja pro mille gjald á þær. Geri ég ráð fyrir, að hreppsnefndirn- ar byrji á þvi að ákveða, hve mikið út- svar skuli hvílá' á hverri jörð, og ber á- búanda (eða ábúendum) að greiða það. Tel ég hæfilegt að ákveða 2—10 af þús- undi í flestum tilfellum. Verða hreiips- nefndirnar að meta þetta, án tillits til þess, hv.ernig eða hver býr á jörðinni, en miða eingöiigu við gæði jarðanna, hvern- ig þær liggja við.samgöngum, hversu hæg aðstaða er til húrekstrar, og ef einhver sérstök hlunnindi fylgja, t. d. jarðhiti eða jiess háttar. Slíkar jarðir eiga vitanlega að

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.