Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Side 21

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Side 21
SVEITARSTJÓRNARMÁL 17 Skuldir iier að draga frá lausafé.i nema e. t. v. veðskuldir. Að lokum eru svo hreinar tekjur, sem útsvörin eiga að hvila að langmestu leyti á. Frá nettótekjum á skattskrá her að draga hæfilegan framfærslueyri fyrir þá, ef einhverjir eru, sem útsvarsgreiðandi hefur á framfæri sínu. Hve hár sá frá- dráttur á að vera, getur verið álitamál. Mér virðist, að hæfilegt sé 2 þús. kr. fyrir konu og ca. 1500 fyrir aðra, sem eru á framfæri, og það jafnt þótt þeir séu farnir að vinna fyrir sér, ef þeir aðeins ekki eru framteljendur sjálfir. Frádráttur fyrir skólanemendur verður þó að vera all- miklu hærri, einkum við æðri skóla, ef nemendur telja ekki fram sjálfir. En hversu hár sá frádráttur er ákveðinn, fer vitanlega eftir verðlagi á hverjum tíma. og er hér miðað við núverandi ástand. Má þó vel vera, að ég tiltaki hér fullháan frá- drátt. Persónufrádrætti má sleþpa. V. Þegar þetta hefur verið reiknað út, koma fram útsvarsskyldar tekjur. Er þá fengin „efna“hlið tekjuálagningarinnar. En þá getur verið um að ræða ýmsar „ástæður“, sem ekki koma fram í skatta- framtölum. Má þar fyrst og fremst nefna veikindi. Verulegur sjúkrakostnaður, þar sem sjúkrasamlög eru ekki, mun að vísu oftast tekinn til frádráttar við skatt. En auk þess hafa veikindi ætíð í för með sér erfiðleik og stríð, sem sjálfsagt er að tak'a til greina. Tel ég heppilegast, að hrepps- nefndir meti útsvarsgreiðanda hæfilegar ibætur í slíkum tilfellum, sem dragist einnig frá tekjum, áður en þær koma til álagningar. Fleiri óhöpp en sjúkdóma getur verið um að ræða, t. d. bruna eða óvenjuleg vanhöld á búfé eða tap á jarð- argróða. Slíkt kemur að vísu alltaf fram í tekjuframtali (brunatjón undanskilið í þessu sambandi), en óbeinn skaði, erfið- leikar og óþægindi fylgja þó oftast, sem ég' tel einnig rétt að meta hætur fvrir lil frádráttar á tekjum áður en þær koma til álagningar. Þarf að gæta þess, að fullt f í'-.v-H ',m MRVfejlJ j, ... ; . ">1 samræmi sé í slíkum hótiún óg fyrir- hygg.ja, að persónuleg sjónarmið geti þar , komið til greina. Þá ber að taka tillit lil aldurs. Ekki er sanngjarnt, að gamlir menn beri jafnt út- svar og fullfærir menn al' söinu efnum. Ég tel sanngjarnt að lara að taka tillit til aldurs eftir sextugt. Útsvör inanna 60—6ó ára væri hæfilégt að afreikna með 10%, 65—70 ára með 20%, 70—75 ára með 30 —40% og 75 ára og eldri með 50—60%, ef útsvör á svo gamla .menn koma annars til greina. Getur þó verið um stóreignir að ræða og tekjur af þeim, sem óforsvar- anlegt er að sleppa. Á sama hátt verður að leggja lægra á mjög unga gjaldendur. Hæfilegur væri 10% frádráttur á útsvari fyrir hvert ár undir 21 árs aldri, en úr því ekki sanngjarnt að Veita ivilnun fyrir aldur. Þannig greiðir 20 ára maður 90% af fullu útsvari, 19 ára 80%, 18 ára 70% o. s. frv. niður í 15 16 ára aldur', éii sjaldan mun álagning koma lil greina á yngri. Skólanemendur verða vfirleitt jít- svarsfriir. Þó getur verið um svo mikla eign eða tekjur að ræða, að álagning sé réttmæt, og er þá réttast að draga raun- Yerulegan skólakoslnað frá tekjum, eða leggja á eigu, ef hún er veruleg og tekjur nægilegar fvrir námskostnaði. Þegar menn hafa lokið námi, jjótt full- tiða séu, er ósanngjarnt að leggja fullt út- svar á strax næsta ár. Hæfilegt væri, að þeir greiddu þá 75%, annað ár 90% og fullt úr því, án tillits til aldurs. Það mun algengast, að skólanám gangi allnærri nemendum fjárhagslega, svo að segja má, að þeir séu „i sárum“, og þær ástæður er iétl að taka til greina. Það getur komið til álita, hvort draga sltal frá tekjum, áður en útsvar er reikn- að út, útsvar og lekjuskatt greitt árið áð- ur. Eg geri Jjó ekki ráð fyrir því hér frem- ur en við ákvörðun tekjuskatts. Skal ég þó játa, að ekki væri Jiað ósanngjarnt. Margar fleiri ástæður geta vitanlega komið til greina, enda verður tæplega við öllu séð fvrir fram. En flestar ástæður á að vera hiegt að fella inn í kerfi, sein

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.