Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Síða 31

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Síða 31
SVEITARSTJ ÓHNAHMÁI, 27 alvinnuinálaráðuneylið heimilað hreppsnefrid, eftir heiðni hennar, að láta aðal- niðurjöfnun útsvara fram fara síðar á árinu, ef ríkar ástæður mæla með þvi. Útsvars- skrá skal liggja frammi á þingstað hrepps eða öðrum hentugum stað í hreppnum, en í kaupstöðum i skrifstofu bæjargjaldkera eða öðrum hentugum stað, 4 vikur i hreppum og 2 vikur í kaupstöðum, enda skal auglýsa framlagning skrár i hlöðum á staðnum eða með öðrum hætti. 22. gr. Rétt er manni að finna að úlsvari sinu eða að þvi, ef honum liefur verið sleppt af skrá, eða að útsvör annarra manna séu of lág, samanborið við hans, eða að öðr- mn mönnum hafi verið sleppt af skrá. Iværur skulu bréflegar vera, stílaðar til niðurjöfnunarnefndar og komnar í hendur formanni hennar áður liðinn er sá timi, er niðurjöfnunarskrá á að liggja frammi. Skal nefndin úrskurða kærur svo l'Ijótt sem unnt er og ekki síðar én 14 dögum eftir kærufresl. Nefnd er heimilt að hreyta útsvörum hæði til hækkunar og lækkunar, enda hafi aðilja verið send tilkynning um það, að anuar gjaldandi hafi borið sig saman við liann, eða að nefndin hafi i hyggju að hækka útsvar hans, enda þótt enginn gjaldenila hafi borið sig saman við hann. Enn fremur er heimilt að hækka útsvar kæranda, enda þótt hann hafi kært það til lækkunar, enda hafi honum verið sú fyrirætlun tilkvnnt og honum gefinn kostur á að gæta réttar síns. Nefndin skal jafnan, svo fljótt sem þess er kostur, senda aðilja tilkynning', ef hún tekur mann á skrá samkvæmt kæru eða breytir útsvari manns eða kæru hans er ekki sinnt. Ef útsvari manns cr breytt samkvæmt þfessari grein, er honuni heimill að kæra ]>að fyrir yfirskattanefnd, enda þóll hann hafi ekki kært til hreppsnefndar eða niðurjöfnunarnéfndar. . 23. gr. Nú vill maður ekki uná úrskurði niðurjöfnúnarnefndar, og er honuin- þá rélL að bera málið til úrskurðar fyrir viðkomandi vfirskattanefnd, enda sé kæran komin í hendur formanns yfirskattanefndar áður liðnar séu 4 vikur frá dagsetningu úr- skurðar í hreppum og 2 vikur í kaupstöðum. Yfirskattanefnd úrskurðar kærur á næstu tveim vikum, frá lokum kærufresls talið, nema draga verði úrskurð af því að afla þurfi frekari upplýsinga. Niðurjöfnunarnefnd lætur yfirskattanefnd í té útsvarsskrá eða eftirrit af henni. Fyrirmæli I<3. og 22. gr. taka og til yfirskatta- nefndar, enda er lireppsnefnd og niðurjöfnunarnefnd skylt að veita yfirskattanefnd upplýsingar um útsvarsálagning sína eftir föngum. Yfirskattanefnd fær þóknun fvrir störf sin samkvæml þessum lögum, og skal reikna hana eftir lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Þóknun greiðist úr sýslu- sjóði eða bæjarsjóði. Ef ágreiningur verður um þóknun yfirskallanefndar, }>á sker atvinnumála- ráðherra úr. 24. gr. Sá gjaldandi og sú sveitarsljórn, er ekki vill lilíla úrskurði yfirskattanefndar, gelur næstu 2 almanaksmánuði eftir dagsetningu úrskurðar hennár skotið honum til ríkisskattanefndar. Rikisskallanefnd skal hafa lokið úrskurði eigi síðar en 2 mánuðum eftir að kæra kemur til nefndarinnar. Ríkisskattanefnd hefur sama rélt til þess að krefjast upplýsinga sem yfirskattaneínd, en nefndin hreytir aðeins þcim útsvörum, sem úrskurður yfirskattanefndar hefur gengið um og siðan hefur verið áfrýjað lil hennar. Úrskurður ríkisskattanefndar er fullnaðarúrskurður um úts'varsupphæð.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.