Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Síða 3

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Síða 3
SVEITAESTJORNARMAl 13. ÁRGANGUR 3.—4. HEFTI TÍMARIT UM MÁLEFNI ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA UTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA SVEITARFELAGA ÁBYRGDARMAÐUR: JONAS GUÐMUNDSSON Ritnefnd: Jónas Guðmundsson, Karl Kristjánsson, Þorsteinn Þ. Vig- lundsson, Björn Guðmundsson og Erlendur Björnsson. Utanáskrift: SVEITARSTJÓRNARMÁL, Pósthólf 1079, Reykjavik. FRÁ SAMBANDSSTJÓRN i. Skrifstofa sambandsins. Skrifstofa sambandsins er nú flutt í ný húsakynni í Búnaðarbankahúsinu við Aust- urstræti 5 í Reykjavík. Ilefur stjóm sam- bandsins og stjóm Bjargráðasjóðs Islands tek- ið þar sameiginlega á leigu þrjú herbergi, sem notuð eru fyrir skrifstofur beggja og skiptist kostnaðurinn jafnt milli þeirra. Þar sem sambandið hefir ekki lengur sér- stakan framkvæmdastjóra, er fastur skrifstofu- tími aðeins frá 9—12 f. h. alla virka daga, nema laugardaga. Sambandsstjómin ætlast til þess að þeir bæjarstjórar, oddvitar og aðrir sveitarstjóm- amienn, sem til Revkjavíkur koma og sveit- arstjórnarmálum hafa þar að sinna, komi á skrifstofuna og njóti þar þeirrar fyrirgreiðslu, sem hún getur veitt þeim. Þar geta þeir átt aðgang að síma, vélritun og annarri þeirri frrirgreiðslu, sem oddvitum og bæjarstjór- um kemur oft vel að geta átt kost á hér í bænum, auk þess sem skrifstofan mun veita þeim hverja þá fyrirgreiðslu aðra, sem liún getur þeim í té látið. í ráði er að búa eitt af herbergjunum þannig, að þar geti aðkomnir sveitarstjóm- armenn haft athvarf á skrifstofutímanum og starfað að málum sínum. Það er eitt af verk- efnunr sambandsins að stuðla að fyrirgreiðslu í þessum efnum og með tímanum eiga sveit- arstjórnarmenn utan af landi, sem erindi eiga að reka í Reykjavík, að geta gengið að sér- stöku skrifstofuherbergi með síma hjá skrif- stofu sambandsins til þess að geta þar sinnt málum sínum. 2. Árg/öld 1953. Sambandsstjórn minnir sveitarfélögin, sem í sambandinu eru, á, að gjalddagi árgjaldsins fyrir árið 2953 var r. október s. 1. Flest sveit- arfélaganna hafa nú þegar greitt árgjöld sín til sambandsins, en þau fáu, sem enn eru eftir, eru hér með beðin að greiða árgjaldið eigi síðar en í janúarmánuði 1954 til þess að komizt verði hjá að telja nokkur árgjöld ógreidd við reikningslok. 3. FuJJtrúaráðsfundur. Á fundi 2. nóv. s. 1. ákvað stjómin að fresta fulltrúaráðsfundinum, sem halda átti á s. 1. hausti, með tilliti til þess, að þá lá ekkert fyrir um það, livers mætti vænta um nýja tekjulöggjöf fyrir sveitarfélögin, en það er aðalmálið, sem ráðgert var að fjallað skvldi um á fundinum. Stjórnin hafði samráð nm þetta við nefnd þá, sem falið var að boða til bæjarstjórafundar haustið 1953, en einnig

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.