Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Side 4

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Side 4
2 SVEITARST J ÓRNARMÁL hún frestaði að kalla þann fund saman af sömu ástæðum. Héðan af mun því fulltrúa- ráðsfundur og bæjarstjórafundur ekki koma saman fyrr en að afloknum kosningunum í janúarlok er nýir bæjarstjórar hafa verið kjömir. Verður þetta nánar tilkynnt full- trúaráðsmönnum með sérstöku bréfi sam- bandsstjómar. 4. Ný tekjulöggjöf fyiii sveitafélögin. Á sameiginlegum fundi fulltrúaráðs og bæjarstjóra haustið 1952 var kosin 5 manna nefnd til þess að semja frumvarp að lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Nefnd þessi hefir starfað nokkuð, en telur þó rétt að bíða með samningu heildarfrum- varps þar til séð er hverjar tillögur koma í febrúar eða rnarz n. á frá milliþinganefnd A!- þings, sem nú starfar að endurskoðun út- svars og skattalaganna. Nefnd sveitarstjórnarsambandsins átti fund með milliþinganefndinni í nóvember s. 1. og ræddu nefndimar endurskoðun þeirr- ar löggjafar, sem tekjur sveitarfélaga bvggjast nú á, og hverjar leiðir væru þar helst færar til skjótra úrbóta. Á fundinum benti nefnd sveitarstjómar- sambandsins á eftirfarandi atriði, en um þau eru allir nefndarmenn í þeirri nefnd sam- mála: 1. að nauðsyn sé nýrrar heildarlöggjafar um tekjur sveitarfélaga. 2. að sú heildarlöggjöf þurfi annað hvort að vera bvggð þannig upp, að sveitar- félögunum verði ætlaðir fleiri tekjustofn- ar en beinn skattur einn sarnan, eða af þeim verði létt að verulegum hluta þeim byrðum, sem þau bera nú. 3. að hverfa verði frá þeirri stefnu, sem fylgt hefir verið, að undanþiggja ýmiss konar rekstur og fvrirtæki útsvari til sveitarstjóma, en í stað þess að taka upp þá stefnu, að allir gjaldþegnar greiði nokkurt útsvar til sveitarsjóða, en taka í lög ákvæði, sem takmarka rétt til álagn- ingar við ákveðið hámark. 4. að lítil líkindi séu til þess, að fljótlega verði samin og komist til framkvæmda, ný heildarlöggjöf um tekjur sveitarfé- laga, þó menn séu sammála um þörf hennar, þar sem slík löggjöf þarfnast mikils undirbúnings, og mundi óhjá- kvæmilega hafa í för með sér breytingar á ýmissi annarri löggjöf. Af þessum ástæðum er eðlilegast, að nú verði gerðar þær lrreytingar einar, er leysa vandræði sveitarfélaganna í bili, en jafnframt verði unnið áfram að samningu nýrrar heildarlöggjafar. Bráðabirgðaráðstafanir, sem nefnd sveitar- félagasambandsins taldi, að gæti komið til álita, voru m. a. þessar: 1. að fella niður tekju- og eignaskatt til ríkissjóðs, en við það rnundu sveitarfé- lögin fá aukna möguleika til að hækka enn útsvörin, án þess að gjaldendum yrði íþyngt frá því sem er. (Tekjusk. til ríkis- sjóðs er ca.47 millj., útsvör ca. 160 millj.). 2. að ákveða, að nokkur hluti sölu- skattsins renni til sveitarfélaganna og skiptist milli þeirra eftir ákveðnum regl- um. (Sölusk. ca. 87 millj.; Yi = 29 millj.). 3. að sveitarsjóðirnir verði losaðir við gjöld- in til almannatrygginganna, önnur en gjöldin til sjúkrasamlaganna. (Heildar- útgjöld vegna 114. gr. almtr.laga eru 19 millj.).“ Að svo stöddu verður ekkert um það sagt hvort nokkurt tillit verður tekið til þeirrar afstöðu senr þarna kemur frarn, en allir, sem við sveitarstjórnarmál fást, eru nú að kom- ast á þá skoðun, að óhjákvæmilegt sé að taka tekjulöggjöf sveitarfélaganna til algerrar endurskoðunnar og nýskipanar.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.