Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Page 11

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Page 11
SVEITARST J ÓRNARMÁL 9 við það, sem flutningsmenn frumvarpsins gerðu ráð fyrir. IV. Með bréfi stjómarráðs íslands dags. 21. febrúar 1914 er öllum bæjarfógetum og sýslu- mönnum tilkynnt, að lög nm Bjargráðasjóð Islands hafi öðlazt lagagildi 10. febrúar það ár og að þeim beri að vekja athygli bæjar- stjórna og hreppsnefnda á því, að þeim beri að greiða fyrsta tillagið til sjóðsins á næsta manntalsþingi. Kornu lögin þannig til fram- kvæmda í ársbyrjun 1914. Hinn raunveru- legi stofndagur Bjargráðasjóðs íslands er því 10. febrúar 1914. Fyrstu stjóm Bjargráðasjóðs skipuðu þess- ir menn: Jón Hermannsson, skrifstofustjóri í at- vinnumálaráðuneytinu, síðar tollstjóri, for- maður. Séra Guðmundur Helgason frá Reykholti, form. Búnaðarfélags íslands. Matthías Þórðarson frá Móum, forrn. Fiskifélags íslands. Á Búnaðarjringi 1915 er svo kosinn til viðbótar Bjöm Bjarnason fyrrv. alþm. og bóndi í Grafarholti, og átti hann síðan sæti í sjóðsstjórninni af hálfu Búnaðarfélagi ís- lands til þess er lögum sjóðsins var breytt og fækkað var í stjóminni. Á Fiskiþingi sarna ár var af hálfu þess kos- inn í stjórnina Trvggvi Gunnarsson, banka- stjóri. Formenn í Bjargráðasjóðsstjórn hafa þessir menn verið: Jón Hermannsson, tollstjóri . . 1914—1918 Oddur Hermannsson, skrifst.stj. 1918—1927 Vigfús Einarsson, skrifstofustj. 1927—1947 Jónas Guðmundsson, skrifst.stj. 1947—1953 Hjálmar Vilhjálmsson, skrifst.stj. síðan 1953 Af hálfu Búnaðarfélags íslands hafa eftir- taldir menn átt sæti í stjóminni: Sr. Guðm. Helgason frá Reykh. 1913—1917 Eggert Briem frá Viðey.......... 1917—1919 Sig. Sigurðsson, búnaðarmálastj. 1919—1923 Guðjón Guðlaugsson frá Ljúfust. 1923—1925 Tryggvi Þórhallsson, ráðherra .. 1925—1935 Bjarni Ásgeirsson, sendiherra .. 1935—1951 Þorst. Sigurðsson, bóndi, Vatnsl. síðan 1951 Auk þeirra átti svo, eins og fyrr segir, Björn Bjarnason í Grafarholti sæti í stjórn sjóðsins frá 1915 til æviloka. Af hálfu Fiskifélags íslands hafa setið í stjórn Bjargráðasjóðs íslands þessir menn: Matthías Þórðarson frá Móum . 1914—1915 Hannes Hafliðason, forseti F. ísl. 1915—1921 Jón Bergsveinsson, forseti F. ísl. 1921—1924 Kristján Bergsson, forseti F. ísl. 1924—1940 Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri síðan 1940 Auk þeirra kjörnir af Fiskiþingi: Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri 1915—1919 Sveinbjörn Egilsson, skrifst.stjóri 1919—1936 Þorst. Þorsteinsson, skpstj., Þórh. 1936—1950 Á þeim árum, sem Tryggvi Þórhallsson var ráðherra, skipaði Magnús Þorláksson, bóndi á Blikastöðum sæti hans í stjórn sjóðsins, sem varaformaður Búnaðarfélags íslands. V. Fyrsta innborgun til Bjargráðasjóðs er frá Borgarfjarðar- og Mýrasýslum hinn 21. ágúst 1914. í árslok 1915 er sjóðurinn orðinn kr. 39.999.80. Lán eru engin veitt úr sjóðnum fyrstu ár- in, en fé hans allt lagt á vöxtu í Landsbanka íslands. í árslok 1920 var sjóðurinn orðinn nærri 300 þús. krónur og var það mikið fé á þeim tíma. Þegar reikningsári sjóðsins lýk- ur 1926, eru handbærir peningar í séreign- arsjóði sveitarfélaga kr. 340.450,94, en í sam- eignarsjóðnum kr. 344.664,95 eða alls í Bjarg- ráðasjóði rúml. 685 þús. krónur og mundi

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.