Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Síða 13
SVEITARST J ÓRNARMÁL
11
anna og varð vel ágengt. í árslok 1940 er
hagur sjóðsins þannig, að skuldlaus eign hans
er 1 millj. og 312 þús. krónur og er eigna-
aukningin á árinu aðeins 8276 krónur. Sést
af þessum tölum, að sjóðurinn hefur aðeins
vaxið um rúmar 300 þúsund krónur á ára-
tugnum 1930 til 1940.
í árslokin 1941 féllu síðustu leifar „band-
ormsins" úr gildi og hófust þá á ný greiðslur
á bjargráðasjóðsgjaldi bæði frá ríkissjóði og
sveitarsjóðum.
Þegar „bandormurinn" féll úr gildi og
greiðslur til Bjargráðasjóðs hófust að nýju,
1942, var þess ekki gætt að breyta árgjaldinu
til sjóðsins, eins og sjálfsagt hefði verið fvrst
sjóðnum var ætlað að starfa áfram, og færa
tillögin til hans til samræmis við það verð-
gildi, sem peningar höfðu þá fengið. Gjald-
ið hélzt þá óbreytt áfram, þ. e. 25 aurar af
íbúa frá hverju sveitarfélagi og sama upp-
hæð úr ríkissjóði.
í árslokin 1943 er eign Bjargráðasjóðs ís-
lands þessi:
1. Eignir séreignarsjóðs:
a) Innstæða í bönkum .... kr. 889.264,54
b) í útlánum............... — 54.058,51
c) í Kreppulánasjóðsbréfum — 57.320,00
Samtals kr. 1.000.643,05
2. Eignir sameignarsjóðs:
a) Innstæða í bönkum .... kr. 515.726,02
b) í útlánum............... — 12.222,00
c) í Kreppulánasjóðsbréfum — 13.900,00
Samtal kr. 541.848,02
Samanlögð eign beggja
deilda sjóðsins er þannig í
árslok 1943 .............. — 1.542.491,00
Á þessum árum er það, sem bankamir lækk-
uðu svo vexti á innstæðufé, að vaxtatekjur op-
inberra sjóða hverfa nálega með öllu. Árið
1939 eru vextir af þáverandi inneign Bjarg-
ráðasjóðs í bönkum kr. 36562,91 en 1944 eru
vextir ekki nema kr. 26100,66 af all miklu
hærri innstæðu.
Eftir 1944 var því horfið að því að festa
nokkurn hluta af fé sjóðsins í ríkistryggð-
um skuldabréfum til þess að vinna upp
vaxtatapið.
VII.
Árið 1946 var félagsmálaráðuneytið stofn-
að og tók það þá við þeim félagsmálum, sem
áður voru hjá atvinnumálaráðuneytinu. Þar
á meðal var Bjargráðasjóður íslands. Hann
var þó ekki afhentur félagsmálaráðuneytinu
fyr en á árinu 1948. Voru eignir sjóðsins í
árslokin 1947 eins og hér segir:
1. Séreignasjóður:
a) Innstæður í bönkum .. kr. 1.194.322,35
b) í útlánum — 24.105,00
Samtals ■kr. 1.218.427,35
2. Séreignasjóður:
a) Innstæða í bönkum ... . kr. 548.554,06
b) í útlánum — 3.450,oo
c) í ríkistr. skuldabréfum .. — 154.200,00
Samtals kr. 706.204,06
Alls var eign sjóðsins þá .. kr. 1.924.631,41
Á árinu 1949 var nokkuð um það rætt að
leggja Bjargráðasjóð niður og skipta upp eign-
um lians eða leggja þær til einhverrar styrkt-
arstarfsemi í landinu. Allir, sem um mál hans
fjölluðu, voru á einu máli um, að annað hvort