Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Blaðsíða 14

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Blaðsíða 14
12 SVEITARSTJÓRNARMÁL þyrfti að auka tekjur sjóðsins og fá honum ný verkefni eða að leggja hann niður og fara með eignir hans eins og að frarnan segir. Höfundur þessara greinar var þá skrifstofu- stjóri í félagsmálaráðuneytinu og formaður í stjórn sjóðsins, en með mér voru í stjóm- inni Bjarni Ásgeirsson, sendiherra, þáverandi alþingism.og formaður Búnaðarfélags íslands, og Davíð Ólafsson fiskimálastjóri. Ræddum við um, hvað gera skyldi og auk þess ræddi ég málið við þáverandi forsætis- og félagsmála- ráðherra Stefán Jóh. Stefánsson og síðar við Steingrím Steinþórsson forsætis- og félags- málaráðherra. Urðu allir ásáttir um, að rétt væri að fara þá leið, að auka tekjur sjóðs- ins all \'crulcga frá því sem þær voru, með það h’rir augum að sjóðnum vrði fengið aukið verkefni síðar. Hinn 9. janúar 1950 lagði ég svo fram í stjórn sjóðsins frumvarp að nýjum lögum fyrir Bjargráðasjóð íslands. Aðalatriði fmrnv. var, að sjóðurinn skyldi eftirleiðis fá í árleg- ar tekjur 2 krónur af íbúa hverjum í sveitar- félögum og sömu upphæð frá ríkissjóði í stað 25 aura frá hvorum þeirn aðila áður. Stjórn sjóðsins skyldi framvegis vera skipuð þrem mönnum í stað 5 áður og ráðherra var heim- ilað að ákveða með reglugerð nánar um rekst- ur sjóðsins og starfrækslu, þá var og útláns- reglunum breytt nokkuð. Hins vegar var með frumvarpi þessu ekki lagt til að lilutverki sjóðsins yrði breytt í neinurn verulegum at- riðum. Bjarni Ásgeirsson tók að sér flutning frumvarpsins og kom því í gegnum þingið. Það varð að lögum 22. febrúar 1950 og voru lögin staðfest af forseta 2. marz sama ár. Með lögum þessurn var Bjargráðasjóði ís- lands forðað frá því að verða lagður niður og á þau má líta sem fvrsta sporið á nýrri leið fyrir þennan gamla og að mörgu leyti merki- lega sjóð, sem rniklar vonir voru bundnar við í upphafi, en sem enn hafa ekki rætzt í sam- bandi við hann nema að sára litlu leyti. VIII. Með breytingunni, sem gerð var á lögum Bjargráðasjóðs íslands árið 1950, jukust tekj- ur sjóðsins um rúma V2 milljón króna á ári. Árin 1948, 1949 og 1950 voru ein hin rnestu harðæri, sem komið hafa hér á landi á síðustu áratugum. Var þá leitað mjög til sjóðsins um hjálp af harðindasvæðunum og auk þess tekin lán handa honum til við- bótar, gegn tryggingum í verðbréfum lians og innstæðum. Voru þannig á árinu 1950 veitt úr sjóðnum vaxtalaus lán til sveitarfélaga á harðinda- svæðunum að upphæð 570 þús. krónur og á sama ári voru veittar óendurkræfir styrkir til sveitarsjóða að uppliæð 112 þús. krónur. Ár- ið 1951 voru veitt vaxtalaus lán að upphæð 214 þús. krónur og styrkir að upphæð 67500 krónur. Samtals veitti sjóðurinn þannig þessi tvö ár tæpa eina milljón króna í vaxtalaus lán og óafturkræfa styrki til harðærissvæðanna, og var það veruleg hjálp, þótt hún reyndist ekki fullnægjandi á þeim slóðum sem hallærið varaði lengst og varð þungbærast. Bjargráðasjóðurinn liefur einnig reynt að greiða frarn úr fjárhagsvandræðum ýmissa kauptúna, sem átt hafa í miklum fjárhags- legum örðugleikum, með því að kaupa af sveitarfélögum þessum ríkistry'ggð skulda- bréf, sem þeim hefur gengið örðuglega að selja annars staðar nema með miklum afföll- um. Frá stofnun Bjargráðasjóðs íslands árið 1914 og fram til ársins 1948 — eða á 35 ár- um — hafði sjóðurinn náð að verða aðeins 2 milljónir króna. Á þeim 5 árum, sem síðan eru liðin hefur hann hins vegar vaxið um aðra eins upphæð og er nú við áramótin 1953— 1954, á fertugsafmæli sínu, rúmar 4 nn’II/ónir króna.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.