Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Síða 15

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Síða 15
SVEITARST J ÓRNARMÁL 13 Jónas Guðmundsson fvrrv. skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu. Fyrsti forstjóri Bjargráðasjóðs íslands. IX. Hinn 2. nóvember 1951 var Bjargráðasjóði sett reglugerð samkvæmt heimild í lögum sjóðsins, og 8. febrúar 1952 gerði stjórn sjóðs- ins tillögu til ráðherra um að skilja sjóðinn frá félagsmálaráðuneytinu og setja honum sérstakan forstjóra. Með bréfi félagsmála- ráðherra, dags. 29. febrúar 1952, var höfund- ur þessarar greinar skipaður forstjóri Bjarg- ráðasjóðs frá 1. ágúst 1952 að telja. Brevtngin kom þó ekki til framkvæmdar fyrr en 1. febrúar 1953. Bjargráðasjóður íslands er nú staddur á vegamótum. Innan fárra ára verður hann orð- inn all fésterkur sjóður með öruggar tekjur. En verksvið hans þarf að víkka til rnuna frá því sem nú er. Rétt er og nauðsynlegt að safna nokkru fé í sjóð sem grípa má til, þegar tjón verður af náttúruvöldum, sem ekki er al- mennt hægt að tryggja sig fyrir með neinum hætti. Það hlutverk á því Bjargráðasjóður ís- lands að hafa um alla framtíð. Rétt væri einnig að fela honum ýmsa sjóði, er hafa svipað hluhærk, til umsjónar cg framkvæmda, en nú eru í annara um- sjá, og sjálfsagt er að taka upp þann hátt að láta þau hallærislán og þá hallæris- hjálp, sem ríkissjóður lætur af liendi rakna eða stvður, fara um hendur bjargráðastjórnar- innar og fela Bjargráðasjóði alla vörzlu sh'kra lána, innheimtu og skil til ríkissjóðs. En þetta, sem nú var nefnt, ætti að mínum dómi aðeins að vera önnur hliðin á starfsemi Bjargráðasjóðs íslands. í framtíðinni ætti hann að geta orðið lánastofnun sveitarfélag- anna sjálfra. Með ýmsum hætti mætti auka fjármagn hans og gera mætti sjóðnum skylt að veita sveitarfélögum, sem þess þvrftu, árleg rekstrarlán og annast fyrir þau lántökur og ýmsa aðra fjárhagslega fvrirgreiðslu, sem samrýmst gæti annari starfsemi hans. Ekkert af þessu verður gert að óbreyttum lögum sjóðsins, en nú á fertugsafmælinu, er hinn rétti tími fyrir sveitarstjómarmenn að taka mál þetta til rólegrar yfirvegunar, því að þá mætti vel svo fara, að á fimmtugsafmæli sjóðsins hefðu sveitarfélögin eignast sterka og örugga lánsstofnun þar sem er Bjargráðasjóð- ur íslands. Mun ég undirbúa mál þetta fvrir næsta landsþing Samb. ísl. sveitafélaga svo það geti orðið rætt þar.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.