Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Síða 16
14
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Þing AlþjóSasambands sveitarfélaga í Vínarborg.
ALÞJÓÐASAMST ARF
UM SVEITARSTJÓRNARMÁL.
Fjörutíu ár eru nú liðin síðan The Inter-
national Union of Local Authorities eða
Alþjóðasamband sveitarfélaga (skammst.
IULA) var stofnað, árið 1913. Tilgangur
þess var frá upphafi að rannsaka og ræða
þau áhuga- og vandamál, sem sveitarfélög
eiga sameiginleg, hvar sem er um heirn, og
að vera jafnframt tengiliður rnilli þeirra í
allri viðleitni, sem að því lýtur, að efla al-
þjóðasamstarf um sveitarstjórnannál.
Með þessi markmið fyrir augum heldur al-
þjóðasambandið, IULA, þing annað hvert
ár, og sitja þau fulltrúar þeirra sveitarfélaga-
sambanda og borga sem aðild eiga að al-
þjóðasambandinu. Á þessu ári hélt það þing
í Vínarborg dagana 15.—20. júní. Eins og
ávallt áður var það mjög fjölsótt, og áttu
eftirtalin lönd þar fulltrúa: Austurríki, Belgía,
Kanada, Danmörk, írland, Finnland, Frakk-
land, Þýzkaland, England, Indland, ísrael,
Ítalía, Japan, Lúxenrburg, Holland, Noreg-
ur, Súdan, Svíþjóð, Sviss, Tyrkland, Banda-
ríkin og Júgóslavía. Alls sátu þingið unr 800
fulltrúar, auk margra gesta, sem boðið hafði
verið, þar á meðal einurn frá Sameinuðu
þjóðunum.
Þingið var haldið í ráðhúsi Vínarborgar,
glæsibyggingu, sem reist var á árunum 1872-
1883 og er sérstaklega vel til slíks þinghalds
fallin. Hinn stóri, fagri salur ráðhússins rúm-
aði vel alla fulltrúa og gesti; og önnur her-
bergi, sem þeir áttu erindi í, voru öll um-
hverfis fundarsalinn eða í þægilegu nágrenni
við hann, þar á meðal skrifstofa þingsins,
bankaútibú, póstafgreiðsla, einkaskrifstofa og
annað Jress háttar.
Allur undirbúningur og skipulagning
þingsins var til f\'rirmyndar. í sjálfu ráð-
húsinu áttu fulltrúarnir kost fjölda túlka;
en auk þess gat hver þeirra hlustað í sírna á
ræðuhöldin, þýdd á hvert þeirra þriggja
tungumála þingsins, sem þeir helzt óskuðu:
ensku, þýzku eða frönsku.
Setning þingsins fór frarn með hátíðlegum
hætti 15. júní, og voru ýmsir Jrekktustu ráð-
herrar Austurríkis viðstaddir hana. Eftir að
ein bezta hljómsveit Austurríkis hafði leikið
nokkur lög, bauð borgarstjóri Vínarborgar,
Frantz Jonas, sem jafnframt er forseti banda-
lags austurríska kaupstaðasambandsins,
Jringfulltrúana velkomna. Benti borg-
arstjórinn í ræðu sinni á, að Vínarborg hefði
orðið f}'rír miklum búsifjum á Jressari öld,
sumpart af tveimur lieimsstyrjöldum, sum-
part af fasismanum; en ótrautt væri unnið
að því að sigrast á afleiðingum þessara áfalla
Hin mörgu hús, sem eru í smíðurn, hið end-
urvakta menningarlíf og þær framtíðaráætl-
anir, sem gerðar liafa verið, sýna lífsjrrótt
Vínarborgar, sagði borgarstjórinn. Trú vor
á bjartari framtíð hennar er jafnóhagganleg
og tryggð vor við lýðræðið.
Sjálfa setningarræðu þingsins flutti Theo-
dor Kömer, forseti Austurríkis. Lét hann í
ljós gleði sína yfir því að geta boðið svo
marga sveitarstjórnarmenn, hvaðanæva af
hnettinum, velkomna til Austurríkis. Benti
forsetinn á Jrau mörgu hlutverk, sem sveitar-
félögunr væru ætluð og kvaðst vona, að þingið
rnætti eiga verulegan Jrátt í að sýna fram á,
hvemig þau hlutverk yrðu bezt leyst af
hendi.
í hátíðarræðu, sem var síðasta ávarp þing-
setningarfundarins, gerði forseti IULA, dr.