Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Side 22

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Side 22
20 SVEITARST J ÓRNARMÁL félaga. Að öðru leyti verða þau að snúa sér beint til hvers þess ráðuneytis, sem þau eiga mál undir að sækja, til „Ministry of Educ- ation,“ er um skólamál er að ræða, o. s. frv. Flest ráðuneytin hafa svokallaðar „héraðs- skrifstofur“ hingað og þangað urn landið, og afgreiða þær öll minniháttar mál í umhverfi sínu; en hin mikilvægari verður að leggja fyrir aðalskrifstofur ráðuneytanna í White- liall í London. Einn þátt eftirlitsins með sveitarfélögunum annast að sjálfsögðu dóm- stólarnir, sem verða að skera úr því, hvenær sem krafist er, hvort þau hafi farið út fyrir valdsvið sitt eða ekki. Auk sóknanna, sem að vísu hafa ekki öðr- um starfskröftum á að skipa en þeim, sem fórnfúsir trúnaðarmenn þeirra leggja fram af frjálsum vilja, hafa bæjar- og sveitarstjórnir Englands fjölmennt starfslið í þjónustu sinni. Talið er að það nemi meira en milljón manna, og að þar af séu 150.000 við sjálf sveitarstjórnarstörfin. En það er ekki nema skammt síðan öllu þessu fjölmenni voru sköpuð nokkurn veginn samræmd kjör, er svokölluð „Whitley Councils" voru stofn- uð; en það eru eins konar samninganefndir, sem báðir aðilar, vinnuveitandinn og starfs- fólkið, eiga fulltrúa í. Starfsmennirnir, í þrengra skilningi þess orðs, eru flestir félags- bundnir í „The National Association of Lokal Government Officers“ (skammstafað NALGO.) Það samband hefur meðal margs annars átt frumkvæði að námskeiðum og bréfaskiptum með það fyrir augum að gera starfsmennina hæfari til hlutverks síns. Hliðstæð bæjar- og sveitarstjórnarumdæmi hafa einnig gert með sér bandalög og staðið að upplýsinga- og fræðslustarfi meðal starfs- fólksins. En því fer enn fjarri að þau banda- lög séu orðin eins athafnasöm og áhrifarík, meðal annars gagnvart ríkisvaldinu, og þau sambönd sveitarstjóma, sem nú eru starfandi á Norðudöndum. Þau eru þó í örum vexti og þróun. * Þessu yfirliti verður kannski ekki betur lokið en með því að drepa aðeins á þau umhugsunarefni sem nú eru efst á baugi í enskum sveitarstjórnarmálum. Það kann að vera þeim mönnum, sem við sveitarstjórnar- mál fást á Norðurlöndum, til nokkurs gam- ans, að fá að vita, að þótt enskir starfsbræð- ur þeirra tali aðra tungu, þá eru það þó í aðalatriðum sömu mál, sem þeir eru að velta fyrir sér. Á sundurliðun ríkisframlags- ins til sveitarstjórnarmála á Englandi hefur þegar verið minnst. Þeir vilja helzt fá því breytt í heildarframlag svo að þeir hafi fram- vegis frjálsari hendur en áður til að verja því til þess, sem mest þörf er á. Enskir trún- aðarmenn á sviði sveitarstjórnarmála eru einnig farnir að sjá nauðsyn þess að afla sér aukinnar kunnáttu og hæfni til móh'ægis gegn sívaxandi áhrifum starfsmannaliðsins. Mörgum þykir sem sjálfstjórn bæjar- og sveit- arfélaga standi töluverð hætta af aukinni í- hlutun ríkisvaldsins síðan stríðinu lauk. Um allt þetta er nú rætt á Englandi, þó að brevt- ingar á skipun sveitarstjómarmála þar séu ekki taldar aðkallandi. Menn eru og vanir þvi á Englandi, að hugsa málin, og hugsa málin vel, áður en horfið er frá því, sem gamalt er, til þess að taka upp nýja háttu. (Þýtt úr Svenska Landskommunernas tidskrift.)

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.