Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Qupperneq 25

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Qupperneq 25
SVEITARST JÓRNARMÁL 23 Fiá Vestmannaeyjahöfn. kvæmdanna, svo að dugar flestum með mik- illi eigin vinnu og fjölskyldunnar. RAFMAGNSMÁLIN. í Vestmannaeyjum er dieselrafstöð, tek- in í notkun fyrir þrem árum. Ilún kostaði á 6. milljón króna. Þar eru tvær vélasamstæður. Á s.l. vori brotnaði önnur vélasamstæðan, svo að ekki liefir enn þótt svara kostnaði að byggja hana upp aftur. Eftir óhapp þetta var útlitið all ískvggilegt i rafmagnsmálum Eyj- anna. Öll rafmagnsframleiðslan til alrnenn- ings nota varð að hvíla á einni vélasamstæðu allt s. 1. sumar og alltaf er einu auganu hætt. Fiskvinnslustöðvamar fullnægja sér sjálfar með eigin rafmagnsframleiðslu. Á s. 1. sumri tókst bæjarstjórn að festa kaup á nýrri rafvélarsamstæðu, sem tekin var í not- kun í októhennánuði. Hún kostaði um í milljón króna og þótti það sérstakt tækifæris- kaup. Nú er stefnt að því að festa kaup á þriðju vélasamstæðunni til aukningar og öiyggis rafmagnsframleiðslunni í bænum. Jafntramt er unnið að því að fá lagðan rafstreng milli lands og Evja og tengja Eyjamar þannig virkjun Sogsins. Allur sjávarhotninn milli lands og Eyja og austur fyrir þær hefur nú verið rannsakaður í þessu skyni og kortlagð- ur. Samkvæmt niðurstöðum þeirra rann- sókna mun rafstrengurinn lagður austan við úteyjarnar Bjarnarey og Elliðaey og tekinn í land austan á Heimaey sunnanverðri. Þá ligg- ur strengurinn á mjúkum sjávarbotni. Ann- arsstaðar reynast vera hraunsnagar, stallar og bríkur á hafsbotni um hverfis Heimaey, svo að strengnum er þar rnikil hætta búin. Ætlazt er til, að rafstöðin í Eyjum verði bæði ábætis- og öryggisstöð, eftir að Eyj- arnar taka að fá rafmagn frá virkjun Sogsins. Þorsteinn Þ. Víglundsson.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.