Sveitarstjórnarmál - 01.04.1959, Blaðsíða 5
SVEITARST J ORN ARM AL
TÍMARIT UM MÁLEFNI ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA
ÚTGEFANDI: SAMBAND ISLENZKRA SVEITARFELAGA
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: GUÐNI GUÐNASON
Utanáskrift: SVEITARST]ÓRNARMÁL, Pósthólf 1079, Reykjavík.
19. ÁRGANGUR
1959
MARZ—APRÍL
Sveitarstjómarkosningar 1958.
Hinn 26. janúar 1958 fóru fram kosn-
ingar á bæjarfulltrúum í öllum kaupstöð-
um og hreppsnefndarmönnum í „kaup-
túnahreppum". I öðrum hreppum fór
kosning fram 29. júní 1958.
Kjósendur á kjörskrá við þessar kosning-
ar hafa verið á öllu landinu 93.940 eða
56.3% af heildaríbúatölu landsins 1. des.
1957. Er það svipað hlutfall og var við al-
þingiskosningar 1956.
í sveitarstjórnarkosningum Jtessum var
kosningahluttaka 82.9% að meðaltali. í al-
Jiingiskosningunum 1956 var kosningahlut-
taka hins vegar 92.1%.
í kaupstöðum var kosningahluttaka til-
tölulega mest á Sauðárkróki (93.2%), en
minnst á Húsavík (85%). í Reykjavík var
lnin 90.4%, en 91.9% í alþingiskosningun-
um 1956. Ógild atkvæði alls í kaupstöðum
713, 1.3% af öllum greiddum atkvæðum.
í kauptúnahreppum, sem kosið var í 26.
janúar 1958, var kosningahluttaka 82.4%.
Mest hluttaka var í Ólafsvíkurhreppi,
94.9%, en minnst í Hríseyjarhreppi, 34.5%.
í þeim hreppum, þar sem kosning fór
fram í júní 1958, var kosningahluttaka
langtum minni eða aðeins 62.-2% að meðal-
tali. Minnst var hún í Holtshreppi í Skaga-
fjarðarsýslu (23.8%), en mest í Torfalækjar-
hreppi, Austur-Húnavatnssýslu (96.1%).
Hlutfallskosning var aðeins í 26 af þeim
181 hreppi, hvar kosið var í júní og í 8
þeirra var engin atkvæðagreiðsla, þar eð
aðeins kom fram einn listi, sem varð sjálf-
kjörinn.
í 157 hreppum, með 717 hreppsnefndar-
menn, voru kosningar óhlutbundnar.
Á landinu eru nú alls 228 sveitarfélög,
J). e. 14 kaupstaðir og 214 hreppar (Sléttu-
hreppur ekki meðtalinn). Voru Jtar kosnir
124 bæjarfulltrúar og 1022 hreppsnefndar-
menn, Jiar af voru 10 konur, 4 í kaupstöð-
um (2 í Revkjavík og 2 í Hafnarfirði), 2 í
kauptúnahreppum (Flateyjar- og Selfoss-
hreppi) og 4 í öðrum hreppum (Garða-,
Mosfells-, Breiðdals- og Beruneshreppi).
Kaupstaðirnir skiptast þannig eftir tölu
bæjarfulltrúa, að í 7 þeirra eru 9 bæjarfull-
trúar, í 5 eru 7, í 1 eru 11 og í 1 eru 15.
Hrepparnir skiptast J^annig eftir tölu
hreppsnefndarmanna, að í 166 hreppum
eru 5 hreppsnefndarmenn, í 36 eru 3, í
12 eru 7.