Blað frjálslyndra stúdenta - 01.10.1939, Page 3
BLAÐ FRJÁLSLYNDRA STÚDENTA
3
Hvers vegna var Félag frjálslyndra stúdenta stofnað?
Um leið og Félag frjálslyndra stúdenta hefur
starf sitt, er rétt að gera grein fyrir ástæðunum
til stofnunar þess. Það er einnig eðlilegt, að við,
sem beittum okkur fyrir stofnun þess, skýrum
það, hvers vegna við nú skiljum við okkar fyrri fé-
laga og stofnum nýtt pólitískt stúdentafélag. —
Vegna þeirra, sem eigi hafa kynnt sér stjórnmála-
legt ástand meðal stúdenta í háskólanum undan-
farin ár, er rétt að byrja með því að gera stutta
grein fyrir þeim pólitísku stúdentafélögum, sem
starfað hafa í háskólanum, og skipun þeirra.
Þrjú pólitísk stúdentafélög hafa starfað í há-
skólanum hin síðustu ár, það er, Félag róttgekra
stúdenta, Félag lýðræðisinnaðra stúdenta, Vaka,
og Félag þjóðernissinnaðra stúdenta. Tvö fyrr-
nefndu félögin hafa eigi verið bundin við ákveðna
stjórnmálaflokka, heldur hafa þau verið dálítið
blönduð, eins og síðar mun vikið að. Félag þjóð-
ernissinnaðra stúdenta er hins vegar algerlega ein-
litt. Er það bundið við samnefndan stjórnmálaflokk.
Hafa þeir einir gengið í það félag, sem sníða vilja
stjórnarskipun vora eftir stjórnarfyrirkomulagi
hinna nýmóðins einræðisríkja. Síðastliðið haust
kom félag þetta eigi fram með neinn lista við stúd-
entaráðskosningar. Hinsvegar gaf það út ávarp
mikið, þar sem það lýsti trausti sínu á lista „lýð-
ræðissinna“ og hét honum stuðningi sínum, og
skoraði fastlega á alla sína fylgismenn að fylkja
sér fast um þann lista. Er það spá sumra, að Félag
þjóðernissinna muni algerlega leysast upp á næst-
unni og ganga inn í Félag lýðræðissinna. Fer þá
sennilega ýmsum að þykja lýðræðisnafnið dálítið
broslegt. Um Félag róttækra stúdenta er það að
segja, að það var stofnað af stúdentum úr hinum
þremur vinstri flokkum, þ. e. Framsóknarmönnum,
Jafnaðarmönnum og kommúnistum. í því hafa
jafnan síðan starfað menn úr öllum þessum flokk-
um, en fylgismenn kommúnista munu að jafnaði
hafa verið fjölmennastir. Það er engin ástæða til
í þriðju grein laganna telur félagið það vera
áhugamál sitt að berjast fyrir lýðræði og þing-
ræði og gegn hinum svonefndu öfgastefnum. Það
má auðvitað um það deila, hvort lýðræði og þing-
ræði muni raunverulega vera hyrningarsteinar
undir menningu og sjálfstæði þjóðarinnar. En vér
erum allir sammála um, að sú hægfara þróun mun
vera affarasælli heldur en blóðugar byltingar og
sérhver kúgun mannsandans. Þess vegna berjumst
vér gegn hverskonar öfgastefnum, er kollvarpa vilja
núverandi þjóðskipulagi með ofbeldi og byltingu.
' í fjórðu grein segir, að félagið viðurkenni gildi
að fara að rekja nákvæmlega hér, hvernig þessi
samvinna eða þetta samstarf hefir gengið. Þess má
einungis geta, að fylgismenn kommúnista hafa
stundum neytt meirihlutaaðstöðu sinnar til að gera
miður heppilegar ályktanir og ráðstafanir. Hafa
þeir með slíku valdið því, að aðrir félagsmenn hafa
starfað þar að nokkru leyti með hálfum huga. Með
því hafa þeir einnig komið því til leiðar, að sumir
Framsóknarmenn og Alþýðuflokksmenn hafa alls
eigi viljað ganga í félagið.
Síðustu árin hafa því frjálslyndir háskólastúd-
entar, Framsóknarmenn, Alþýðuflokksmenn og ó-
flokksbundnir frjálslyndir stúdentar, verið tvístr-
aðir. Sumir hafa verið í Félagi róttækra stúdenta.
Aðrir hafa staðið utan við öll pólitísk félagssamtök
í háskólanum. Og loks gengu nokkrir frjálslyndir
menn í lýðræðissinnafélagið Vöku síðastliðið haust,
svo sem nánar skal á drepið, er rætt verður um
skipun þess félags hér á eftir.
Að því er ég bezt veit, munu stofnendur stúd-
entafélagsins Vöku yfirleitt eða jafnvel eingöngu
hafa verið Sjálfstæðismenn. Það er og ómótmælan-
legt, að jafnan síðan hefir það svo að segja ein-
göngu verið skipað Sjálfstæðismönnum, enda hafa
þeir ráðið þar lögum og lofum, og lítið hirt um að
taka tillit til annarra stjórnmálaflokka, sem þeir
þó hafa viljað ná í menn úr. „Lýðræðissinnar“ hafa
jafnan afneitað þjóðernissinnum í orði, en í verki
hafa þeir oft og einatt rétt þeim hjálparhönd, svo
sem hjálpað þeim til að koma manni í stúdentaráð,
gert við þá samninga um samstarf í stúdentaráði
o. fl. o. fl. Það er því eigi að undra, þó að þjóðernis-
sinnar hafi farið að líta þetta félag hýru auga og
hafi viljað endurgjalda þeim hjálpina. Gerðu þeir
það og rækilega síðastliðið haust, eins og áður er
frá sagt. En annað er og mjög eftirtektarvert í
þessu sambandi. Er það afstaða þeirra manna, er
í menntaskóla hafa fylgt þjóðemissinnum að mál-
um. Síðastliðið haust munu þeir stúdentar alls
og nauðsyn samvinnu og telji úrræði hennar lík-
legust til hagsælda. Um þetta er varla hægt að
deila, því jafnvel þeir, sem andvígir eru samvinnu-
stefnunni, hafa með sér samvinnu til þess að koma
henni fyrir kattarnef.
Af ofanskráðu ætti mönnum að vera frekar ljóst,
hver stefnuskrá félagsins og áhugamál þess munu
vera. Auðvitað getur stefna félagsins breyzt í smá-
atriðum, en í aðalatriðunum mun hún verða eins
og að ofan getur. Að lokum vil ég skora á alla þá,
sem frjálslyndinu únna, að styðja Félag frjálslyndra
stúdenta í kosningunum, sem nú fara í hönd. M.