Blað frjálslyndra stúdenta - 01.10.1939, Blaðsíða 8
8
BLAÐ FRJÁLSLYNDRA STÚDENTA
Stúdentaráðið og hagsmunamál stúdenta
Stúdentaráðið á að gæta hagsmuna stúdent-
anna, bæði utan Háskólans og innan. Það skiptir
því miklu máli, að í ráðið séu kjörnir á hverjum
tíma þeir, sem líklegastir séu að veita málum stúd-
entanna bezt brautgengi, að þangað veljist þeir
stúdentar einir, sem fúslega rétta örvandi hönd
nauðsynlegum framkvæmdum og leggja sig fram
um að störf þeirra verði sem hagnýtust og komi að
notum öllum þorra stúdenta. Það væri því illa far-
ið, ef í ráðið veldust uppskafningslegir sjálfsbirg-
ingar, sem ekkert hugsuðu um annað en að svala
takmarkalausri. hégómagirnd sinni og tröðkuðu á
öllu hennar vegna. En sem betur fer munu fáar
slíkar mannverur fyrirfinnast meðal stúdenta,
og þær ekki líklegar til mannaforráða. En mann-
val í stúdentaráðið á undanförnum árum hafa
þó sýnt, að stundum hafa lítilsigldar persónur hlot-
ið meiri völd en góðu hófi gegndi, og á því sviði má
sagan eigi endurtaka sig.
Það verður því fyrsta meginskyldan, sem hvílir
á hverjum þeim stúdent, er kýs við næstu stúdenta-
ráðskosningu, að hann greiði atkvæði með þeim
lista, sem beztum starfhæfum mönnunum hefir á að
skipa. En oft vill svo verða, að þeir, sem hafa af
minnstu að má, tala hæst og fullyrða mest, en
framkvæma minnst, þegar á reynir.
Hagsmunamál stúdentanna eru margþætt, og
víða er þörf lagfæringar. Það er því ærið nóg verk-
efni fyrir stúdentaráð komandi árs. Ýms mál-
stúdenta, sem þá varðar miklu, hafa lítinn byr
fengið, og margt af því, sem hafizt hefir verið handa
um á undanförnum árum, þarf breytingar og þarf
að komast í framkvæmd. Það má benda á, að fyrir
nokkru var ákveðið á stúdentaráðsfundi, að mikl-
um hluta af tekjuafgangi ársins skyldi stofnaður
sjóður, sem nota skyldi síðar til byggingar nýs
stúdentagarðs, en lítið meira mun hafa verið gjört
þessu viðvíkjandi. Fáir munu neita nauðsyn slíkr-
ar byggingar, en þó mun ýmsum finnast, að þörf
væri að líta nær og hugsa meira um, að nú-
verandi stúdentagarði væri meiri sómi sýndur.
En svo illa vill til, að stúdentagarðurinn hefir
eigi skapað þá ánægju, sem ætla mætti. Ber þar
margt til. Garðsstjóm virðist hafa verið kærulaus
um þá að segja og hefi margar góðar minningar frá
samstarfinu við þá. Ég sendi þeim kveðju mína og
þökk fyrir samstarfið og óska þess jafnframt, að
þau vopnaviðskipti, sem við kunnum að eiga í fram-
tíminni, verði jafnan þannig, að góðum drengjum
sæmi.
Ólafur Jóhannesson, cand. jur.
um hag garðsins. Reksturinn hefir orðið dýr, og
hefir sumum virzt vera lagt í kostnað, sem engan
tilverurétt eigi. T. d. munu mjög deildar skoðanir
um herbergjaaukningu þá, sem prófastur hefir
hlotið. En það, sem að vonum vekur óánægju, er,
að slíkar og aðrar breytingar hafa átt sér stað án
þess, að stúdentunum hafi verið gefinn kostur á
að láta uppi sína skoðun um þau atriði. Virðast því
stúdentar þeir, sem sæti eiga í garðstjórn, hafa
brugðizt illa málstað stúdenta og misnotað umboð
sitt. Það er því full þörf á, að stúdentaráðið leggi
sig fram um, að fullkomið lýðræði verði látið
ríkja um stjórn Stúdentagarðsins og stúdentar
fái að láta skoðanir sínar í ljós um þessi mál á al-
mennari vettvangi en enn hefir verið gjört. Þess
væri og óskandi, að unnið væri að því, að Stúdenta-
garðurinn væri sannur griðastaður fyrir þá, sem
sinna vilja námi sínu af alhug, og að minnsta kosti,
að réttur þeirra væri ekki borinn fyrir borð af ó-
reglumönnum og slæpingjum. Það er öllum fyrir
beztu. Því miður hefir verið á þessu nokkur mis-
brestur. Það er nú staðreynd, að yfirleitt er mjög
rætt um störf, skemmtanir og hegðun stúdenta
og slíkt málað dökkum litum og oft án sakar.
Stúdentar eiga því að halda vörð um þá stofn-
un, sem ber nafn þeirra, og halda heiðri hennar á
lofti, og þeir eiga að verja hana bæði fyrir utanað-
komandi og innri óreglu og gefa aldrei tilefni til
rökstuddra árása.
Upplýsingaskrifstofan er undir stjórn stúdenta-
ráðsins. Fyrirtæki þetta hefir verið mjög í van-
rækslu, en þó hefir hún haft verulegan kostnað í
för með sér. Stúdentarnir hljóta að krefjast þess,
að þeir hafi einhver not af þeim peningum, sem
eytt er í þessu skyni, en þau virðast hafa verið mjög
af skornum skammti. Það væri því dæmafá ó-
skammfeilni, ef horfið væri að því ráði að gefa eftir
eitt herbergið á Stúdentagarðinum til afnota fyrir
skrifstofu þessa. Vonandi á hinn nýkosni upplýs-
ingaskrifstofustjóri eftir að hefja þessa stofnun úr
því ófremdarástandi, sem hún hefir verið í sakir
vanrækslu stúdentaráðsins um skyldustörf sín.
Undanfarin ár hefir úthlutun styrkja til stúd-
enta verið mjög til vansæmdar. Ríkir sem fátækir
hlutu sömu fjárupphæðir. Óreglustúdentinn, sem
eyddi sínum styrk til áfengiskaupa, hreppti sömu
upphæð sem hinn reglusami.
Óánægjan um þetta fór vaxandi. Eftir mikla
vafninga kaus stúdentaráðið nefnd í málið. Nefnd
þessi samdi allmikla reglugerð um úthlutun styrkja
og tryggði stúdentum áhrif um úthlutunina. Af
sum.um var látin sú skoðun í ljós, að slíkar tillög-