Blað frjálslyndra stúdenta - 01.10.1939, Síða 9
9
BLAÐ FRJÁLSLYNDRA STÚDENTA
ur þýddi eigi að koma með, því að prófessor-
arnir myndu eigi vilja við þeim líta. Því svo ein-
kennilega vill til, að þeir stúdentar finnast,
sem telja það goðgá að hafa aðra skoðun en okkar
háttvirtu prófessorar, annað sé vansæmd fyrir há-
skólann. En hvað kom á daginn: Prófessorarnir
tóku fúslega tillögum stúdentanna, og á síðastliðn-
um vetri mun eigi hafa staðið upp á þá að skera
niður styrki til stúdenta, sem þeir álitu eigi þeirra
maklegir. En þrátt fyrir allmiklar bætur á þessu
sviði, er full ástæða fyrir stúdentaráðið að fylgj-
ast vel með þessum málum, einkum þar sem nú fer
í hönd erfiður tími fyrir eigna- og atvinnulausa
stúdenta.
Háskólanámið er mjög dýrt, og löngum tíma er
til þess eytt. Það er því nauðsyn og skylda stúd-
enta að vinna að því, að nám þeirra verði sem ódýr-
ast og sem beztur árangur náist á sem skemmstum
tíma, auk þess krefjast hagsmunir þjóðfélagsins
hins sama. Þjóðin hefir eigi efni á því, að margir
af efnilegustu sonum hennar eyði beztu árum lífs
síns við misjafnlega gagnmikið nám.
En á þessu sviði virðist ríkja nokkur skilnings-
skortur. Og á síðustu árum hefir löggjafinn sett
inn ákvæði, sem miða að lengingu námstímans og
þar af leiðandi tilsvarandi kostnaður. Ætlunin
mun vera að hrella stúdenta frá háskólanámi, og
verður ekki rædd þýðing þess hér.
Þessar takmarkanir hvetja því alla hugsandi
stúdenta til að eyða ekki lengri tíma í nám en nokk-
ur er kostur. En á þessu eru þau vandkvæði, að í
sumum deildum háskólans er svo mikill skortur
nauðsynlegustu námsbóka, að stúdentum er gert
ókleift að sinna sínu námi. Mér er kunnugt um
það, að nám ýmsra hefir lengst að verulegu sakir
þessa. Þá hafa sumir kennarar þann sið að lesa
nemendum sínum fyrir í þeim námsgreinum, sem
bóka er vant í, fer því allmikið af fyrirlestratímum
í skriftir hjá stúdentum. Nytsemi slíks starfs er
vafasöm. Auk líkamlegra óþæginda, sem oft voru
veruleg sakir hamfara kennarans við lesturinn, þá
eyðist dýrmætur tími frá námi eða öðrum gagnlegri
störfum. í þessum tilfellum er nauðsynlegt að það,
sem lesa þarf fyrir, verði fjölritað eftir handriti
kennarans og haft til sölu handa stúdentum. Enda
hafa það venjuelga orðið úrslitin, að stúdentarnir
hafa látið fjölrita allmörg eintök og þá samkvæmt
handriti einhvers þeirra, og verða þá skriftirnar
gagnslaus aukavinna og erfiði.
Slíka ágalla sem þessa verður að fyrirbyggja, þar
sem kostur er. Það borgar sig.
Hér er því þýðingarmikið starf fyrir stúdenta-
ráðið að vinna að. Það verður að sjá um að stúd-
entamir eigi nógan kost nýtra handbóka við nám
sitt, svo að þeir, ef þeir hafa manndóm til, geti
hagnýtt sér sem bezt fyrirlestra prófessoranna. Og
full þörf er að fylgjast með því að vinnuorka þeirra
sé eigi spillt að ástæðulausu. Og ég efast eigi um að
prófessorar vorir muni sýna fullan skilning á þess-
um málum, sem skipta svo miklu um árangur
námsáranna. Þá væri og athugandi að skora á há-
skólaráð að veita af stykjum, sem það hefir yfir
að ráða, til þeirra, sem hæfir geta talizt um samn-
ingu nauðsynlegra handbóka eða á fjárveitinga-
valdið í sama skyni.
Atvinnumál stúdentanna hafa löngum verið á
stefnuskrá stúdentaráðsins. Og mun meiri þörf nú
en oft áður, að þeim sé fullur gaumur gefinn. Á
komandi ári munu framkvæmdir hjá ýmsum at-
vinnugreinum dragast mjög saman. Þá munu og
ákvæði sett af sveitar-, bæjar-, og verkalýðsfélögum
um að takmarka innflutning vinnukrafts í sín um-
dæmi. Slík ákvæði munu mjög draga úr atvinnu-
von margra stúdenta og því sjálfsagt fyrir þá í
heild að gæta hagsmuna sinna og reyna í hvívetna
að beita áhrifum sínum til þess að draga úr yfir-
vofandi atvinnuleysi sínu, og því fyrr sem þessa
er gætt því betra. —
Hér hafa nokkur atriði verið nefnd, sem kom-
andi stúdentaráð þarf að fylgjast með og vinna að,
ásamt ótalmörgu öðru. Það er því þýðingarmikið
að til þessara starfa veljist góðir og gagnlegir starfs-
menn, sem njóti trausts og skynji þá ábyrgð sem á
þeim hvílir. Þeirri ábyrgð, að bregðast eigi um-
boði kjósenda sinna.
Eigi þarf að efast um að nokkur hiti kann að
verða í þessum kosningum eins og oft endranær.
Kosningasmalar andstöðuflokka okkar munu eigi
láta sitt eftir liggja að þyrla upp ryki og vafasöm-
um getgátum um hið nýstofnaða félag frjálslyndra
stúdenta, sem nú í fyrsta sinni býður fram lista
við stúdentaráðskosningar. Þeir munu halda gleði-
samkomur sem kosningabeitu og tala hátt um ágæti
sitt og sigurvissu. En hópurinn til hægri, sem hlot-
ið hefir náðarbrauð „nazismans” og þeir, sem til
vinstri standa yfir fúnum rótum félags síns, eru
ekki sigurstranglegir.
Félag frjálslyndra stúdenta gengur til þessarar
kosningar öruggt og ákveðið. Það er enn ekki mann-
margt en fylgi þess vex. Það byggir á traustum
grundvelli, sem er frelsi og lýðræði, og mun engan
frið semja né gjöra ekki-árásarsamning eða veita
hlutleysi þeim, sem þessum lífsskoðunum vilja
granda. Allir frjálslyndir, lýðræðissinnaðir stúd-
entar hljóta, að athuguðu máli, að kjósa þann lista,
sem félag okkar ber fram.
Þeir, sem sæti koma til að eiga í stúdentaráðinu
frá frjálslyndum, munu vinna í anda síns félags og
láta sig mestu skipta þau mál, sem stúdentum get-