Hús & Búnaður - 01.07.1967, Síða 9
RAFMAGN
Rafallinn framleiðir rafmagn, þ.e.a.s. liann byggir upp nega-
tíva (-h) hleðslu, sem síðan er hægt að leiða til annara staða.
Venjulega og vegna gamallar hefðar er þó talað um þetta öfugt.
Þessu mætti líkja við vatn, sem látið er renna úr einu íláti í
annað eftir slöngu. Vatnið heldur áfram að renna, unz yfirborð-
ið í báðum ílátunum er orðið jafn hátt. Það sem við nefnum
fallhæð hjá vatninu nefnum við spennu hjá rafmagninu. Hvað
þessi spenna er mikil mælum við í voltum. Hve mikið vatns-
magn fer um slönguna á ákveðnum tíma gætum við gjarnan
rnælt í lítrum. Rafmagnið mælum við hinsvegar í amperum.
Ef við margföldum saman volt og amper fáum við út afkasta-
getu rafmagnsins eða wött. Eitt watt er afköst rafstraums á
sek., þegar spennan er 1 volt og straumurinn 1 amper. Kíló-
watt eru þúsund wött. Sagt er, að þessi eða hinn hlururinn eyði
þetta mörgum wöttum (eða kílówöttum) á sek. Þegar talað er
um notkun rafmagns í heimahúsum, og þegar við greiðum raf-
magnsreikninginn, er hinsvegar miðað við klukkustund. Kíló-
wattstundin mun nú kosta kr. 1.28 hér í Reykjavík, en verðið
er eitthvað breytilegt úti á landi.
Það er á þrennan hátt sem við notum rafmagn í heimahúsum:
a) Sem aflgjafa til að knýja rafmótora hinna ýmsu tækja.
b) Sem magnara í sambandi við útvarp og sjónvarp.
c) Sem ljós- og hitagjafa.
Oll þessi tæki þurfa ákveðna spennu (volt) og eru gerð fyrir
ákveðna rafmagnseyðslu (wött). Á flestum rafmagnstækjum er
þetta gefið upp. Það er því frekar auðvelt að reikna út kostnað
við notkun hvers tækis. 1800 watta hraðsuðuketill, sem hafður
er í sambandi í klukkutíma hefur t.d. eytt: 1800: 1000 • 1,28
eða 2,30 kr. Sú spenna, sem notuð er hér í heimahúsum er 220
volta riðstraumur. Með riðstraumi er átt við að straumstefnan
breytist í sífellu frá -f- til -(- og öfugt. Verður ekki farið nánar
út í hvernig það gerist, en þessi skipti verða hér 100 á sek.,
þ.e.a.s. 50 sinnum í hvora átt. Þetta er yfirleitt merkt á tækjum
með ensku skammstöfuninni A.C. 50 eða 50 —.
Á venjulegri Ijósalögn í íbúð er notuð 220 volta spenna og
10 ampera vartappi (öryggi). Fari álag á slíkri leiðslu ufir 2200
wö:t (220X10) bráðnar silfurvírinn í vartappanum og straum-
urinn rofn.ir. Þetta getur t.d. gerzt, þegar of mörg tæki eru
sett í samband við leiðsluna í einu eða við skammhlaup (út-
leiðslu). Af þessu er líka ljóst, hver hætta getur verið því sam-
fara að nota ekki réttan vartappa. Sé t.d. notaður gildari vír
minnkar mótstaða vartappans, ampertalan eykst og wattatalan
imrgfaldast. Verði maður t.d. fyrir rafstraumi frá biluðu tæki
undir slíkum kringumstæðum lengist tíminn margfalt áður en
vírinn bráðnar í sundur og straumurinn rofnar, ef hann þá ger-
ir það. Hefur slíkt valdið alvarlegum slysum.
Matborð
Það hefur verið reiknað út hversu stórt matborð þurfi
að vera til þess að taka borðbúnað fyrir ákveðinn hóp
manna. Ef þið þurfið að festa kaup á slíku borði þá hafið
þetta í huga:
Hringlaga borð:
Borð fyrir 2 þvermál 75 cm
— — 3 — 88 —
— — 4 — 97 —
— — 5 — 106 —
— — 6 — 119 —
— — 7 — 138 —
— — 8 — 157 —
— — 9 — 175 —
Ferköntuð borð:
Fyrir 2 lágmarks lengd 75 cm breidd 55 cm
3 — 83 — — 75 —
— — _ — 82 — — 80 —
— 4 — — 110 — — 75 —
— — — — 105 — — 85 —
— — — — 102 — — 90 —
— — — 97 — — 97 —
_ 5 _ — 138 — — 75 —
— — — — 137 — — 80 —
— — — — 135 — — 85 —
— — — — 134 — — 90 —
Fyrir 6 manns skal lengja borð ætlað 4 um 55 cm
Fyrir 7 manns skal lengja borð ætlað 5 um 55 cm
Fyrir 8 manns skal lengja borð ætlað 4 um 110 cm
Fyrir 9 manns skal lengja borð ætlað 5 um 110 cm
Fyrir 10 manns skal lengja borð ætlað 4 um 165 cm