Hús & Búnaður - 01.10.1967, Síða 2
búnaði komið fyrir á óhentugan hátt. Slíkt eykur vinnu
við heimilisstörfin, en áætlað er að húsmóðir vinni ca.
41/2 klst. daglega í eldhúsinu. Aukinn tími við eldhús-
störfin skapar leiða og þreytu auk þess sem hann dreg-
ur úr afköstum við önnur störf og er oft orsök að ring-
ulreið og sóðaskap, sem enn er því miður alltof áber-
andi á heimilum okkar.
Staðsetning eldhúss:
Eldhús snéru oft gegnt norðri eða austri í eldri íbúð-
um. Var það gert til þess að forðast sólarhita og til þess
að fá svalari loftræstingu í eldhús og búr. Nú er þetta
smám saman að breytast með tilkomu kæliskápa og
frystitækja. Eldhús er nú oft látið snúa gegnt vestri eða
norðvestri. Sjálfsagt er að reyna að haga svo til að
heimilisfólkið njóti þess sem bezt á meðan það matast.
Skemmtilegt útsýni frá borðkróknum eða líflegir litir
geta t.d. stuðlað að því. Óþarft ætti að minnsta kosti
að vera að gera eldhúsið að eins konar skammarkrók
á heimilinu, sem fyllti mann innilokunarkennd að ganga
um. Það er mikilsvert að úr eldhúsi sé greiður aðgang-
ur að anddyri, barnaherbergi og baði. Oft getur verið
hentugt að hafa einnig bakinngang, þvottahús, búr og
sorpgeymslu í þeirri afstöðu gagnvart eldhúsi, að spor-
in verði sem fæst þar á milli. Stærð eldhússins getur
verið nokkuð breytileg en bezt er að rata þar meðal-
hófið svo þau verði ekki of lítil og ekki óþægilega stór.
11—12 nr ætti að vera nokkuð heppileg stærð fyrir
eldhús og borðkrók.
Eldhúsinnréttingin:
Æskilegast væri að geta sniðið hverja eldhúsinn-
réttingu eftir óskum og þörfum húsmóðurinnar, sem við
hana vinnur. Þetta er þó sjaldnast hægt. Þess vegna
hefur verið reynt að miða við hinar algengustu aðstæð-
ur og hæðir, sem flestum hentaði (húsmóðir ca. 164
cm há). Sé borðhæðin jöfn mun 85—87 cm borðhæð
vera einna þægilegust við flesta vinnu, en öllu betra
er að vaskur sé í um 90 cm hæð og þá 85 cm hæð á
vinnuborði. Hæð á útdraganlegri plötu þar sem setið
Teikningin sýnir darlegar hreyfingrar húsmóðurinnar í eldhúsinu. Strikin
eru breiðari eftir því sem ferðirnar fram o* aftur eru fleiri. Skýrinsrar:
1. Vegffskápur undir mataráhöld og fflös. 2. Veffffskápur undir föt oc skál-
ar. 3. Veffffskápur undir nýlenduvörur off krydd. 4. Vaskur off uppþvotta-
borð. 5. Vinnuborð (matarfferðarborð). 6. Eldavél off frálaffsborð. 7.
Áhaldaskápur. 8. Matborð. 9. ísskápur ásamt efri off neðri skáp.
er við vinnu er hæfileg 60—65 cm frá gólfi og á hæðin
helzt að vera færanleg. Vinnan við uppþvott á ávallt að
fara fram frá hægri til vinstri. Naumast er talið að ann-
að komi til greina en að hafa vaskinn tveggja hólfa
skolvask og uppþvottavask. Skolvaskurinn á að vera
hægra megin og er hæfileg stærð á vaskaskálum:
FotranLmgt
\/)V»nuborð
SmádAt
Hmforogft
þoylorí^tL.
Hifjarn ofl
okko
’Pönnur
ÍC*u|fcrjiti
Pottar
Po ttae