Hús & Búnaður - 01.10.1967, Blaðsíða 7

Hús & Búnaður - 01.10.1967, Blaðsíða 7
Nú skal því ekki haldið fram, að t.d. dönsk og ensk húsgögn séu léleg framleiðsla. Siður en svo. Sum hafa einmitt getið sér alþjóðalof fyrir vandaða gerð. Fram- leiðslan er undir ströngu eftirliti og verður að gangast undir gæðamat og sérstakar prófanir. Slíkt þekkjum við ekki. Gæðamerking húsgagnasmíðameistara og Neyt- endasamtakanna þjónar litlum eða engum tilgangi. Það má frekar segja, að þar sé um vörumerki að ræða en gæðamerkingu. Sé á heildina litið má þó bæði hér heima og erlendis finna vörur í misjöfnum gæðaflokk- um. Við því er ekkert að segja. Hitt er alvarlegra, ef verðið er ekki þreytilegt að sama skapi. Misjafnt er hvernig fólk lítur á, þegar það velur sér húsgögn. Sumir vilja aðeins það bezta, það sem sterk- ast er og endingargott. Aðrir líta meira á verðið, en gera ekki greinarmun á efni og vinnu. Svo virðist sem yngri kynslóðin hneigist meira í þá átt. Frjáls og einföld form eiga miklum vinsældum að fagna. Sjálfsagt er fyrir okkur að fylgjast vel með því sem erlendis gerist, því að margt má af því læra. En við skulum þó aðeins nýta >TI KARLS77 það, sem okkur hentar bezt. Hér á síðunum eru nokkur sýnishorn nýlegra erlendra húsgagna. Þau eru misjöfn að gerð, og sum a.m.k. eiga harla lítið erindi til okkar. En þau opna okkur þó nýjan heim. Og ef þau gætu orð- ið okkur hvatning til starfa er tilganginum náð. Við megum enganveginn óttast ný viðfangsefni. Og við megum alls ekki sætta okkur við að láta stjórnast af gamalli hefð eða fábjánalegu „snobberíi". Þegar við höfum lært að meta það hvað okkar heimili hentar, munum við vissulega verða ánægðari en nokkur keis- ari í Róm. Borð og stólar. Teiknað af Bernhard Holdaway. Vegna þess hvað þessi hús- grogn falla vel hvert að öðru taka þau lítið pláss. „London Combination“ nefnist þessi stóll. Hann er teiknaður af Georges D. Harcourt. Stólinn er hægt að setja saman á ýmsa vegu. Tréstóll með lausum setum teiknaður af Pierre Paulin. Barnaruggustóll teiknaður af David Goodship.

x

Hús & Búnaður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hús & Búnaður
https://timarit.is/publication/1071

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.