Hús & Búnaður - 01.10.1967, Side 3
skolvaskur: 34x29 cm, dýpt 17—18 cm
uppþvottavaskur: 34x40 cm, dýpt 15 cm.
Æskileg breidd á eldhúsborði eru 60—62 cm. Borð
vinstra megin við vask skal vera 60—75 cm langt.
Skúffa fyrir hnífapör o. fl. á að vera vinstra megin við
vaskinn og sé hún hólfuð niður. Heppileg breidd henn-
ar er 60 cm. Eldavélin á að vera hægra megin við vask.
Gott er að hún sé nokkru lægri en sjálft eldhúsborðið
t.d. 78—80 cm frá eldhúsgólfi að efri brún. Þá þarf
einnig að vera næst henni vinstra megin 30—40 cm
langt borð klætt eldföstu efni svo hægt sé að leggja
frá sér heita potta og pönnur. Æskilegt er að hafa borð
beggja vegna við eldavél. Var þetta sýnt vel í síðasta
blaði. Vinnuborð milli vasks og eldavélar er hæfilegt
að sé um 90—110 cm á lengd. Þetta er mjög mikilisvert
því á þessum stað er maturinn hreinsaður og undir-
búinn til matreiðslu. Þarna á skurðbretti einnig að vera
og e.t.v. annað við kæliskáp. Eldavél skal aldrei setja
alveg út í horn, heldur minnst 20—30 cm frá hliðarvegg.
Ekki ætti heldur að koma eldavél fyrir undir glugga
vegna gufumyndunar og fitu, sem sezt á glerið. Einnig
skapar það mikla íkveikjuhættu á gluggatjöldum.
Efri skápar:
Dýpt efri skápa með lamahurðum skal vera 30 cm.
en séu notaðar rennihurðir þarf dýptin að vera 34—36
cm. Fyrir leiráhöld, glös, skálar o. fl., sem notað er
meira og minna á hverjum degi þarf ca. 8 lengdarmetra
í hillur. Hæð á milli hillna þarf að vera misjöfn og því
er kostur að hafa hillur færanlegar. Eðlileg seilingar-
hæð húsmóðurinnar er frá eldhúsborði og í um 190
cm hæð. Gott ætti því að vera að hafa efstu hilluna
í þeirri hæð frá gólfi og hæð frá gólfi að efri skápum
ca. 135—140 cm. Nauðsynlegt er að þeir hlutir sem
mest eru notaðir séu í sem eðlilegastri vinnuhæð, þ.e.
a.s. efst í eldhúsborðinu og upp í um 190 cm hæð í
efri skápum. Að sjálfsögðu er ágætt að nota aðra staði
fyrir þá hluti sem sjaldnar eru notaðir en taka þó sitt
ákveðna rými. í litlum eldhúsum þar sem fullnýta þarf
hvern stað eins og mögulegt er er oft hægt að koma
ýmsum hlutum fyrir, t.d. með því að hengja þá upp. Sé
þetta snyrtilega og haganlega gert og vel frá öllu geng-
ið þarf það engan veginn að vera til óprýði, getur meira
að segja gert eldhúsið persónulegra og hlýlegra.
Ilúsmáðirin, scm vinnur í eldhúsinu. þarf að hafa erciáan aðgang að
öðrum hlutum hússins. hað getur verið þægilegt að láta börnin sem koma
óhrcin og vot inn gans:a inn þvottahúsmegin og einnig er hægt að vinna
á öðrum hvorum staðnum en hafa þó auga með því sem fram fer í hinum.
Eldhús og borðkrókur eru eiginlega sameiginleg heild. Og gott er að geta
haft auga með börnunum meðan verið er að vinna í eldhúsinu. Börnin
verða líka rórri yfir leikjum sínum, ef þau vita af mömmu á næstu grös-
um. Svo koma gestirnir í heimsókn og þeir vilja ekki bíða úti á tröppum
meðan húsmóðirin er að ryðja sér leið til dyra gegn um margar dyr
og ganga.
EtalavéL
Voskuh
6of5
krokuk
Ajatvöru
geyfníia
Mattkiésia.
A/ýfehcluuöru
ge.ytnsia-
Mataráhöld.
I>essi mynd sýnir einnig hvernig ferðum er háttað milli hinna ýmsu
vinnustaða í cldhúsinu. Við sjáum hvernig eldavél, matreiðsluborð og
vaskur mynda örasta sambandið sín á milli en einnig matvörugeymsla
(t.d. brauð og mjólk) og matreiðsluborð.