Hús & Búnaður - 01.10.1967, Page 9

Hús & Búnaður - 01.10.1967, Page 9
að setja handfang á vegginn fyrir ofan baðkerið svo að fólkið geti haldið sér þar í, þegar það fer í bað. Á flestum heimilum safnast smátt og smátt saman meðalaafgangar, sem hættulegt geturverið að börn nái til. Þau ætti ávallt að geyma í læstum skáp. Barnavagninn er ekki eins öruggur staður og flestir halda. Verður þessu væntanlega gerð betri skil hér í blaðinu síðar. Þó skal tekið fram að skilja aldrei svo við barnavagninn, að hann sé ekki örugglega í bremsu. Annars gæti hann runnið af stað. Einhver mesta slysahættan stafar þó af heitum áhöld- um, pottum og pönnum, sem eru í notkun. Börn hafa ríka tilhneigingu til þess að grípa í það sem þau sjá til þess að vita hvað verið er að búa til. Gætið þess ávallt, að slíkir hlutir sitji örugglega t.d. á eldavélinni og að sköft og höldur snúi ekki fram á gólfið heldur upp að veggnum. Yfirleitt þarf að gæta vel að börnum meðan þau eru í eldhúsinu og bezt að láta þau hafa þar sem stytzta viðdvöl meðan þau eru ung og varast ekki hætt- urnar. Fyrir fullorðna er einnig varasamt að nota eld- húsáhöld með lausum sköftum og höldum. Þau gætu losnað af eða snúizt í höndum manns, þegar verst gegndi. Sama er að segja um hamra og smíðaáhöld. Ekkert hús er svo vel úr garði gert, að ekki sé þar nokkur hætta af eldi. Hinsvegar má margt gera til að minnka þá hættu. Olíur og önnur eldfim efni ætti að varast að geyma þar sem hætta stafar af. Sum hreinsi- efni, t.d. benzín gufa upp og geta myndað eldfimt gas. Kerti og lausan eld má ekki hafa þar nærri sem kviknað getur í út frá þeim. Oft hefur kviknað í gluggatjöldum út frá kerti, sem sett var út í glugga. Óþarft ætti að vera að minna fólk á að reykja ekki í rúminu. Að sofna út frá lifandi sígarettu eða neista, sem fallið hefur niður, er lífshættulegt. Þá ætti fólk að athuga, að mörg ný efni, sem farið er að nota mikið á heimilum, eru mun eld- fimari en þau sem áður tíðkuðust. Mætti t.d. nefna sum gerviefni í gólfteppum og í leikföngum barna. Sjálfsagt er að vekja athygli þeirra, sem því geta við komið, að setja brunavara í hús sín. Þeir eru til af ýmsum gerðum og veita ákaflega mikið öryggi. Við skulum minnast þess, að góðar varnir gegn hættum er bezta tryggingin. LAUSAR SKRÚFUR Ef þið þurfið að festa skrúfu en erfitt er að komast að staðnum til þess að halda við hana á meðan þið skrúf- ið þá farið þannig að: Þið klippið mjóan og dá- lítið langan bréfrenning. Síðan brjótið þið hann saman í miðjunni og gerið þar gat í gegn og stigið skrúfunni í. Þá er auðvelt að halda skrúfunni með bréfrenningnum upp að skrúfjárninu um leið og þið skrúfið. »\\\\\\\\\\v\\v\\ WWW W\ W W W W W W WVW WW WVW WVWvVVVVVVVVVVW SKÁKKLÚBBURINN Ritstjóri: ÓLAFUR BJÖRNSSON Hvítt: Rosetto. Svart: Taimanov. DROTTNINGARPEÐS-LEIKUR 1. d4 Rf6 2. Rc3 d5 3. Bg5 RbdT 4. Rf3 ---- (Hvítur teflir eins og um venju- legt drottningarbragð væri að ræða, en fyrst hann lék 2. Rc3 var nú meira í samræmi viö uppbygging- una að leika 4. f3). 4. — h6 5. Bf4 aö 6. e3 eö 7. Be2 Be7 8. 0—0 c5 9. h3 0—0 10. a4 b6 11. Dbl? 0 — (Hvítur stei'nir að því að leika b4 en sú áætlun reynist algerlega mis- heppnuð, bezt var að leika 11. Dd2 ásamt Hadl). 11. Bb7 12. Hdl Hc8 13. Ra2? Re4! 14. c3 ----- (Hvítur er þegar kominn í erfið- leik, 14. b4? strandar á 14. — cxb4, 15. Rxb4, Rc3). 14. ------------ Bh4! 15. Hfl ----- (Þvingað, eftir 15. g3, Be7 og svartur hótar — g5 og eftir 15. Rxh4, Dxh4 16. Hfl, Rd2 tapar hvítur skiptamun). 16. Ddl ----- (Betra var að reyna b4 upp á líf og dauða). 16. ------------- De7 17. Rcl e5! (Hrifsar nú endanlega til sín frumkvæðið). 18. dxe5 Rxe5 19. Rxe5 Bxe5 20. Bxe5 Dxe5 21. Rd3 Df6 22. Bg4 HvdK 23. F/3 a5 24. Hel He8 25. Dc2 Rff5 26. Bff4 — (Ef 26. Be2 þá kemur Dg6 hót- andi bæði Rxh3t og c4!). 26. ---- D ff6 27. Ddl d4! Lokasóknin er hafin, svartur ríf- ur upp stöðuna og opnar sér línur). 28. cxd4 cxd4 29. exd4 Hxel 30. Rxel hö! (Opnar allar leiðir að hinni ó- tryggu kóngsstöðu hvíts). 31. Bxh5 Rxh3f 32. Kh2 ----- (Til greina kom einnig 32. Kfll en við því á svartur hið sterka svar 32. — Df5, hvítur má nú ekki leika 33. Bf3 vegna Ba6 og eftir 33. gxh3, Dxh3 og síðan 34. — Dxh5 og hvíta staðan hrynur í nokkrum leikjum). 32. ---- Df6! (Kjarni leikfléttunnar, ef nú 33. gxh3 þá Dxf2 og mátar og ef 33. Kxh3 þá Hxd4 hótandi drottning- unni og máti á h4). 33. BÍ3 Rxf2 34. De2 Rc4! 35. Bxe4 Dh4t 36. Kffl Bxe4 37. Hdl Hd6 38. Df2 Dh5 39. Hcl Hh6 40. Dg3 Dhlt 41. Kf2 Hf6t 42. Ke2 Dh5t 43. Rf3 Hg6 44. Df2 Dg4t 45. Hc3 Dxg2 46. Hc8t Kh7 47. Re5 ----- (Eftir drottningakaupin fellur einnig peðið á b2). 47. ---- Bd3t! (Mjög óvænt. Hvítur verður að þiggja, ef 47. Kel þá Dhlt og ef 47. Ke3t þá De4 ásamt Hg2). 48. Rxd3 Dg4t 49. Ke3 Dxc8 50. Dxf7 I)h3 51. Kd2 Dh2 Og hvítur gafst upp því hann tapar einnig riddaranum t.d.: 52. Rf2 þá Hf6 eða 52. Kc3, Hc6t 53. Kb3, Dc2t o. s. frv.). Þótt hvítur hafi teflt byrjunina illa á Taimanov hæsta hrós skilið fyrir taflmennsku sína. Sovétskákmaðurinn Mark Taimanov er íslenzkum skák- unnendum að góðu kunnur. Hann kom hingað 1956 og tefldi á minningarmóti Guð- jóns M. Sigurðssonar og varð þá í 2. sæti á eftir Friðriki Ólafssyni. wvvvu V\ V V VVVW V W V V V V V VVV V VV V V\ V V\ VW VVV VVVVV WWW/VWWWWWWW V

x

Hús & Búnaður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hús & Búnaður
https://timarit.is/publication/1071

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.