Morgunblaðið - 01.11.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
4 7 6
8 5
5 4 1 3
7 2
1 8 4
1 5
4 3 2 6
8 3 5
7 2 4 3 8
1 8
5
1 2 5
9 5 3 6
6 2 3 1 5
8
7 8
2 3 6
3 2 9
1 6
7
7 2 8 3
9
6 2 5 3
9 1 8
9 8 5
7 4 6 9
5 4
9 8 5 4 6 1 7 3 2
1 4 7 3 2 9 6 5 8
3 2 6 8 7 5 9 4 1
4 6 2 9 5 8 3 1 7
5 1 3 6 4 7 8 2 9
8 7 9 2 1 3 5 6 4
2 5 4 7 9 6 1 8 3
7 3 1 5 8 2 4 9 6
6 9 8 1 3 4 2 7 5
9 2 3 1 7 6 8 4 5
7 6 8 5 2 4 1 3 9
4 1 5 9 8 3 6 7 2
5 4 9 6 1 2 7 8 3
8 7 1 3 9 5 4 2 6
6 3 2 8 4 7 9 5 1
3 8 7 2 6 9 5 1 4
1 5 6 4 3 8 2 9 7
2 9 4 7 5 1 3 6 8
3 9 1 8 2 5 6 4 7
2 6 5 9 7 4 8 3 1
7 4 8 3 6 1 9 2 5
4 1 2 7 8 6 3 5 9
6 5 9 1 3 2 4 7 8
8 3 7 5 4 9 2 1 6
9 2 6 4 1 7 5 8 3
1 8 4 6 5 3 7 9 2
5 7 3 2 9 8 1 6 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 1. nóvember,
305. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Kærleikurinn er lang-
lyndur, hann er góðviljaður. Kærleik-
urinn öfundar ekki. (I. Kor. 12, 4.)
Víkverji gerði sér um helgina far íhið nýja kvikmyndahús Sambíó-
anna í Egilshöll í fyrsta sinn. Þó að
farin væri bæjarleið var hún vel þess
virði. Þetta er óneitanlega glæsilegt
bíóhús, hátt er til lofts og vítt til
veggja. Miðað við stærðina kom á
óvart hvað miðasalan lét lítið yfir sér,
nógu stór var t.d. veitingasalan og
augljóst að húsið er hannað til að
taka á móti fjölda bíógesta.
Ekki voru sætin neitt slor í saln-
um, mjúk leðursæti með góða breidd
á milli sæta og bekkja, eiginlega svo
góð sæti að auðvelt er fyrir þreytta
gesti að sofna.
x x x
Það var hins vegar engin hætta áað Víkverji sofnaði að þessu
sinni. Hann brá sér á ævintýramynd-
ina um Tinna, nýjasta stórvirkið úr
smiðju Spielbergs. Miðað við að
þetta var degi eftir frumsýningu
myndarinnar hér á landi kom Vík-
verja á óvart hvað fáir voru í salnum
á besta sýningartíma. Greinilega
nægt sætaframboð í kvikmynda-
húsum borgarinnar. Það kom Vík-
verja þó ekki á óvart að sjá hve
margir fullorðnir voru mættir.
Tinnabækurnar hafa lifað með þjóð-
inni í fjölda ára en hafa þó þurft að
víkja fyrir tölvuleikjum og öðrum
bókmenntum í seinni tíð eins og um
Harry Potter. Er myndin gott tæki-
færi til að kynna Tinna betur fyrir
ungu kynslóðinni og vonandi munu
Spielberg og félagar gera fleiri
myndir. Af nægum efnivið er að taka,
það getur Víkverji svo sannarlega
fullyrt eftir að hafa lesið allar bæk-
urnar hér forðum daga, afturábak og
áfram. Nú verða bækurnar teknar
upp úr kassanum sem geymdur hef-
ur verið á besta stað. Þetta er gulls
ígildi í dag.
x x x
Hið eina sem pirraði Víkverja ímyndinni var þýðingin, sem
vonandi eru einhver mistök. Þar var
Kolbeinn kafteinn orðinn Kafteinn
Kálkabítur og forfaðirinn með Kol-
beinsnafninu. Það hlýtur að vera
þveröfugt. Vonandi lætur Sena laga
þetta áður en lengra verður haldið.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 galsi, 4 harmar, 7
lágfótan, 8 bjargbúum, 9
kraftur, 11 skelin, 13 sorg,
14 styrkir, 15 lögun, 17
bergmál, 20 ílát, 22 málreif,
23 hefðarkona, 24 hirða um,
25 hæsi.
Lóðrétt | 1 skvampa, 2
kvarta, 3 sívinnandi, 4
málmur, 5 refsa, 6 víðum, 10
lýðs, 12 læri, 13 skar, 15
gaffals, 16 glerið, 18 fuglum,
19 byggja, 20 ilma, 21 léleg
skrift.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 liðleskja, 8 skjór, 9 lúpur, 10 fit, 11 merja, 13 asnar, 15
fjörs, 18 slæpt, 21 kyn, 22 eldur, 23 aflar, 24 hranalegt.
Lóðrétt: 2 iljar, 3 larfa, 4 selta, 5 Japan, 6 ásum, 7 grær, 12 jór,
14 sál, 15 frek, 16 öldur, 17 skran, 18 snarl, 19 ærleg, 20 tíra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Heimamenn unnu. N-Enginn.
Norður
♠–
♥ÁKG10943
♦10874
♣DG
Vestur Austur
♠96 ♠10843
♥865 ♥D72
♦K96 ♦53
♣Á10753 ♣9842
Suður
♠ÁKDG752
♥–
♦ÁDG2
♣K6
Suður spilar 6♠.
Hollendingar urðu heimsmeistarar í
opnum flokki á laugardaginn með sigri á
Bandaríkjamönnum í 128 spila úrslita-
leik. Hinir nýkrýndu meistarar eru: Sjo-
ert Brink, Bas Drijver, Bauke Muller,
Ricco van Prooijen, Louk Verhees og
Simon de Wijs.
Verhees og Joel Wooldridge fengu
óþægilega sagnþraut að glíma við í ann-
arri lotu úrslitaleiksins. Þeir héldu á hin-
um firnasterku spilum suðurs og áttu að
segja við opnun makkers á 4♥. Verhees
lét 4♠ duga, en Wooldridge stökk í 6♠.
De Wijs trompaði út gegn slemmunni
og Wooldridge setti á hann pressu með
því að spila strax litlu laufi. De Wijs
stakk réttilega upp ás, en gaf svo
slemmuna með því að skipta yfir í tígul.
Muller hafði sett ♣9 undir ásinn, sem
hann meinti sem hliðarkall en de Wijs
túlkaði sem talningu.
1. nóvember 1845
Veðurathuganir hófust í
Stykkishólmi. Þær hafa verið
gerðar óslitið síðan og er
þetta elsta veðurathug-
unarstöðin hér á landi. Reist
hefur verið minnismerki um
upphafsmanninn, Árna
Thorlacius.
1. nóvember 1947
Síldar varð vart í Hvalfirði og
veiðar hófust. Á rúmum fjór-
um mánuðum veiddust 1.100
þúsund mál á þessari vetrar-
síldarvertíð sem á sér ekki
hliðstæðu.
1. nóvember 1961
Vilhjálmur Einarsson stökk
175 sentimetra í hástökki án
atrennu innanhúss. Það var
einum sentimetra hærra en
skráð heimsmet.
1. nóvember 1988
Hjónin Margrét Þóra Bald-
ursdóttir og Guðjón Sveinn
Valgeirsson eignuðust fjórar
dætur. Þær voru skírðar
Alexandra, Brynhildur, Diljá
og Elín. Þetta var fyrsta fjór-
burafæðingin hér á landi þar
sem öll börnin lifðu.
1. nóvember 2004
Eldgos hófst í Grímsvötnum í
Vatnajökli í kjölfar hlaups í
Skeiðará. Gosmökkurinn náði
upp í 13 kílómetra hæð og
sigketill myndaðist við Gríms-
fjall. Gosið stóð í fjóra eða
fimm daga.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Sumir vilja láta sem minnst fyrir sér fara þegar ár-
legur afmælisdagur rennur upp. Margrét Grét-
arsdóttir, aðstoðarverslunarstjóri hjá Griffli, er í
þeim hópi. „Ég mæti kannski með köku í vinnuna en
annars verður ekkert í gangi,“ segir hún og bætir við
að hún hafi ekki gert mikið úr afmælisdegi sínum í
seinni tíð.
Margrét hefur nóg að gera í vinnunni og fram-
undan er árlegur toppur fyrir jólin. Hún segir að það
sé ágætis afsökun fyrir því að halda ekki upp á af-
mælið. „Ég hef um svo margt annað að hugsa,“ segir hún. Segist samt
gefa sér tíma til þess að föndra, búa til kort og fleira, og fylgjast með
íþróttum. Hún er gallharður Þróttari eins og eiginmaðurinn Guðjón
Guðjónsson og mætir reglulega á fótboltaleiki meistaraflokks félagsins
á sumrin. Á veturna á Arsenal einna helst hug hennar en hún hefur ekki
heimsótt enska félagið. Sá hins vegar leik Barcelona og Levante á
Camp Nou fyrir um þremur árum. „Það var mjög gaman, rosa upplifun,
ótrúlegt að sjá þetta mannvirki,“ segir hún um völlinn kunna. Hún fylg-
ist líka með handboltanum og fylgir þá Val en landsliðin eru samt í fyr-
irrúmi. „Guðjón Valur er einna bestur núna,“ segir hún. steinthor@mbl.is
Margrét Grétarsdóttir 40 ára
Hallast að föndri og sporti
Hlutavelta
Tinna Rakel
Jónsdóttir og Þór-
hildur Elín Ás-
geirsdóttir héldu
tombólu við Nettó
í Salahverfi í
Kópavog og gáfu
Rauða krossi Ís-
lands ágóðann,
2.640 kr.
Flóðogfjara
1. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.49 0,9 10.18 3,7 16.40 1,0 22.48 3,2 9.11 17.13
Ísafjörður 5.49 0,5 12.12 2,0 18.52 0,5 9.28 17.05
Siglufjörður 2.21 1,1 8.03 0,4 14.27 1,3 20.49 0,2 9.11 16.48
Djúpivogur 0.46 0,4 7.15 2,1 13.39 0,7 19.20 1,7 8.43 16.39
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er hverjum manni nauðsynlegt
að losna við og við undan oki dagsins. Rök-
ræður um trúmál og stjórnmál taka sig upp.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú getur ekki frestað því deginum
lengur að framkvæma þá hluti sem þú tókst
að þér. Einhver gerir óhóflegar kröfur, eða
fer yfir strikið í óskum sínum og viðhorfum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú þarft að hafa gild rök fyrir því
að neita að taka þátt í samstarfsverkefni.
Vinir þínir sýna þér hlýju og þú sérð að ham-
ingjan felst í að meta það sem við eigum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þeir hnökrar sem þér finnast nú vera
á starfi þínu eiga sér ef til vill orsakir hjá þér
sjálfum. Hagaðu orðum þínum svo að þú
þurfir ekki að sjá eftir neinu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú býrð yfir ýmsum hæfileikum sem
nýtast þér þegar á reynir. Ekki fella hleypi-
dóma um samstarfsfólk í dag.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það gerir bara illt verra að láta sig
dreyma þegar engar eru efndirnar. Einhvern
tímann í dag leyfir þú ástvinum að finnast
þeir merkilegasta fólk í heimi.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Notaðu daginn til þess að sýsla á heim-
ilinu og sinna skyldum þínum. Láttu til skar-
ar skríða en gættu þess að fara ekki of
hratt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Reyndu að komast hjá því að
munnhöggvast við samstarfsmenn þína.
Gefstu samt ekki upp því fyrr eða síðar
stendur þú með pálmann í höndunum og
verðlaun fyrir hugvit þitt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ekki bíða eftir því að andinn
komi yfir þig, leitaðu hann uppi. Haltu áfram
og einbeittu þér að því sem er framundan.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Góð bók er gulli betri og nú skaltu
láta undan þeirri þrá þinni að læra meira.
Ræddu það sem þig langar til þess að gera.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er öllum nauðsynlegt að vera
út af fyrir sig svona endrum og sinnum.
Sýndu þolinmæði og vertu í rólegheitunum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert fullur orku til að takast á við
alla hluti. Notaðu tækifærið og komdu þín-
um hjartans málum á framfæri. Leyfðu ein-
hverjum að njóta þess með þér.
Stjörnuspá
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. Rg5 d5
5. exd5 Ra5 6. Bb5+ c6 7. dxc6 bxc6 8.
Bd3 Rd5 9. Rf3 Bd6 10. O-O Rf4 11. He1
Rxd3 12. cxd3 O-O 13. Rc3 He8 14. h3 c5
15. b3 Ba6 16. Ba3 Bxd3 17. Re4 Bxe4
18. Hxe4 f5 19. Ha4 e4 20. Rh2 Rc6 21.
Hc1 Re5 22. d4 Rd3 23. dxc5 Bf4 24. Hc2
e3 25. f3 Bg3 26. Rf1 Bf2+ 27. Kh1
Staðan kom upp í átta skáka hraðská-
keinvígi Garrys Kasparovs (2812) og Ni-
gels Shorts (2698) í Belgíu. Garry hætti
sem atvinnuskákmaður árið 2005 en eigi
að síður hafði hann tveggja vinninga for-
skot í einvíginu þegar þrjár skákir voru
eftir. Hann tapaði hins vegar tveim í röð
en í þessari stöðu í úrslitaskákinni fann
hann leið til að tryggja sér sigur í einvíg-
inu: 27… Rf4! 28. Dxd8 28. Hd4 hefði
verið svarað með 28…Dg5. 28… Haxd8
29. Hxf4 Hd1 30. He2 Bg3 31. Kg1 Bxf4
32. g4 Hed8 33. Bb4 H8d4 og svartur
innbyrti vinninginn skömmu síðar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik