Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 27

Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 Sudoku Frumstig 5 7 7 9 5 2 1 8 9 1 4 7 8 7 2 6 1 5 4 2 7 8 5 8 6 2 3 3 1 9 6 2 4 8 9 8 1 3 6 5 5 2 1 9 9 8 4 3 1 4 7 2 3 9 3 7 1 2 3 1 8 2 8 4 9 5 7 5 1 6 7 4 1 8 6 1 5 3 8 2 9 6 7 4 2 6 8 4 5 7 9 1 3 7 4 9 1 3 6 8 5 2 3 7 6 5 8 2 1 4 9 8 9 4 3 7 1 2 6 5 5 1 2 9 6 4 7 3 8 6 8 7 2 4 5 3 9 1 4 3 1 6 9 8 5 2 7 9 2 5 7 1 3 4 8 6 8 1 3 7 5 2 6 9 4 5 6 9 8 3 4 2 1 7 7 4 2 6 9 1 8 5 3 2 8 4 3 1 5 7 6 9 9 3 1 2 7 6 4 8 5 6 5 7 9 4 8 3 2 1 4 7 6 5 2 9 1 3 8 3 9 8 1 6 7 5 4 2 1 2 5 4 8 3 9 7 6 2 9 8 3 6 5 4 1 7 7 1 6 8 4 2 9 5 3 3 5 4 1 7 9 8 6 2 6 4 7 9 2 3 5 8 1 9 8 5 6 1 7 2 3 4 1 3 2 5 8 4 6 7 9 5 7 3 4 9 6 1 2 8 8 6 9 2 3 1 7 4 5 4 2 1 7 5 8 3 9 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 24. nóvember, 328. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Lestur hefur alltaf verið ein-staklingsíþrótt. Lesandinn sit- ur einn með bók í hendi og sökkvir sér í samtal við höfundinn, sem á sín- um tíma sat einn við og skrifaði bók- ina. En hver er framtíð lestrar? Með nýjum les- og spjaldtölvum virðist lesturinn vera að verða mun fé- lagslegra fyrirbrigði en áður var. Nýlega rakst Víkverji á grein þar sem viðmælandi sagði að hann kynni vel við pappírsbækur, en þær virk- uðu hins vegar ekki sérstaklega vel. Ekki væri hægt að deila tilvitnunum og athugasemdum með vinum: „Textinn er fangi pappírsins.“ x x x Nú er sprottin upp hreyfing semvill frelsa textann úr þessari prísund og er talað um að fólk lesi í þyrpingum. Leshringurinn Readmill fundar ekki með ákveðnu millibili heldur allan sólarhringinn og tekur tíu þúsund félaga úr öllum heims- álfum. Félagar geta valið sér ein- staklinga úr hópnum og fylgst með því hvað þeir eru að lesa og hvað þeim finnst. Þar getur lesandinn sett inn athugasemdir og vangaveltur þannig að þær birtist öðrum les- endum samtímis. x x x Markaðshlutdeild rafbóka fervaxandi í Bandaríkjunum og er komin í átta af hundraði. Vef- verslunin Amazon selur nú fleiri raf- bækur en pappírsbækur. 12% Bandaríkjamanna kveðast eiga tæki til að lesa rafbækur. x x x Tækjunum fer einnig fjölgandi ogþau verða fullkomnari og full- komnari. Þar komast fyrir hundruð ef ekki þúsundir bóka, sem hægt er að fara með hvert á land sem er. Spurningin er hversu lengi papp- írsbókin stenst samkeppnina. Eng- inn mun sakna þess að þurfa að burðast með þunga bókakassa í flutningum, en heimili verða fátæk- legri ef bókahillurnar hverfa af heimilum með öllum þeim vísbend- ingum, sem þær gefa um heim- ilisfólk. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 fyndni, 4 borð um þveran bát, 7 gægjast, 8 óverandi, 9 lík, 11 tala, 13 vegur, 14 menntastofnun, 15 smábrellur, 17 ástargyðja, 20 frostskemmd, 22 refsa, 23 heldur, 24 lélegan, 25 árás. Lóðrétt | 1 sjónauki, 2 skófl- að, 3 straumkastið, 4 svall, 5 halda á lofti, 6 hindra, 10 svipað, 12 ílát, 13 skorn- ingur, 15 stúfur, 16 bætir við, 18 leyfi, 19 líkams- hlutar, 20 sár, 21 kvendýr. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 útitekinn, 6 sting, 9 nátta, 10 jón, 11 aftra, 13 arman, 15 spöng, 18 skrum, 21 lok, 22 glufa, 23 efnað, 24 útsmoginn. Lóðrétt: 2 tvist, 3 tygja, 4 kenna, 5 notum, 6 Ásta, 7 vagn, 12 Rán, 14 ryk, 15 segg, 16 öfugt, 17 glaum, 18 skegg, 19 runan, 20 mæða. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Meistarabikarinn. V-Enginn. Norður ♠9652 ♥Á1097 ♦ÁG83 ♣Á Vestur Austur ♠ÁKG73 ♠– ♥G ♥D8 ♦K5 ♦10942 ♣109765 ♣KDG8432 Suður ♠D1084 ♥K65432 ♦D76 ♣– Suður spilar 5♥ dobluð. Meistarabikar Evrópu er fjögurra daga léttleikandi mót, þar sem efstu þjóðirnar úr síðasta opna EM tefla fram liði. Keppnin fór fram í tíunda sinn um síðustu helgi (í Bad Honnef, Þýskalandi) og unnu Ítalir eftir úrslita- leik við hollensku heimsmeistarana. Sementa og Duboin fórnuðu í 6♣ á öðru borðinu, en hinum megin varð Madala sagnhafi í 5♥ dobluðum gegn de Wijs og Muller. Sá samningur ætti að fara þráðbeint niður, en vörnin brást illa hjá Hollendingunum. Muller kom út með ♠Á og de Wijs henti ♦10 í slaginn. Skaðlaust, út af fyrir sig, en reyndist dýrkeypt þegar Muller ákvað að spila næst smáum spaða. Austur gat trompað, en nú var var illa komið fyrir ♠K vesturs – tígullinn skilaði sér allur í hús og tveir spaðar fór niður í ♣Á og ♦8. 24. nóvember 1809 Erindisbréf fyrir hreppstjóra (hreppstjórainstrúx) var birt. Þar var fjallað um réttindi þeirra og skyldur í 42 greinum. 24. nóvember 1965 Jóhann Löve, 30 ára lög- reglumaður, fannst suður af Skjaldbreiði eftir að fjögur hundruð manns höfðu leitað að honum í sextíu klukkustundir. Hann hafði verið á rjúpnaveið- um með félögum sínum en villst í vonskuveðri. „Ég ein- beitti mér að því að fullvissa mig um að ég myndi finnast,“ sagði Jóhann í samtali við Vísi. 24. nóvember 1974 Varðskipið Ægir tók vest- urþýska togarann Arcturus að ólöglegum veiðum við Suðaust- urland. Þetta var fyrsti tog- arinn sem tekinn var innan 50 mílna fiskveiðilögsögunnar. 24. nóvember 2000 Skógarhöggsmenn í Hallorms- staðarskógi felldu sitka- grenitré sem var 15 metrar og 10 sentimetrar og var þá hæsta tré sem fellt hafði verið hér á landi. Það var flutt til Egils- staða og prýtt jólaljósum. 24. nóvember 2008 Bræðurnir Dagbjartur og Kristinn Gunnarssynir urðu 95 ára. Þeir létust báðir árið eftir en hafa náð hæstum aldri ís- lenskra tvíbura. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Ég ætla að halda svaka veislu í tilefni dagsins og bjóða til mín um 30 skemmtilegum konum í kvöld, það verður áreiðanlega mikil gleði,“ segir Lena Magnúsdóttir markaðsfræðingur, sem fagn- ar 40 ára afmæli sínu í dag. Hún útilokar ekki einhver veisluhöld fyrir fjölskylduna um helgina en dóttir hennar fagnaði 14 ára afmæli í gær þannig að næg eru tilefnin. Enda hafa þær mæðgur stundum slegið saman afmælisveislum sínum gegnum tíðina. Lena og eiginmaður hennar, Sindri Gunn- arsson iðnhönnuður, eiga einnig átta ára tvíbura- drengi. Lena hefur síðustu sex ár starfað sem skrifstofustjóri hjá Loftleið- um Icelandic, leiguflugfélagi í eigu Icelandair Group, og líkar starf- ið mjög vel. „Þetta er besti vinnustaður í heimi,“ segir hún og vísar til þess að Loftleiðir Icelandic hafi nýlega lent mjög ofarlega á lista hjá Credit- info yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins, eða í sjöunda sæti. Hjá fyrirtækinu starfa 10 manns og segir Lena þetta fámennan en frá- bæran vinnustað. bjb@mbl.is Lena Magnúsdóttir skrifstofustjóri 40 ára Mikil gleði í konuboði Nýirborgarar Reykjavík Bríet Silfá fæddist 3. júní kl. 9.47. Hún vó 3.832 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Hólmfríður Karlsdóttir og Kristján E. Möller. Flóðogfjara 24. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.09 4,2 11.27 0,3 17.27 4,0 23.41 0,3 10.25 16.05 Ísafjörður 0.58 0,1 7.09 2,3 13.33 0,1 19.21 2,2 10.55 15.45 Siglufjörður 3.02 0,1 9.16 1,3 15.27 -0,0 21.48 1,2 10.38 15.27 Djúpivogur 2.16 2,3 8.35 0,3 14.35 2,0 20.39 0,2 10.00 15.28 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það getur reynst þér skeinuhætt að hlaupa í blindni eftir athugasemdum ann- arra. Láttu því ekki smávegis andstreymi á þig fá og horfðu bjartsýnn fram á veginn. (20. apríl - 20. maí)  Naut Samræður við maka þinn skipta óvenjumiklu máli þessa dagana. Taktu bara ákvörðun og stattu fastur á þínu. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ættir að nota daginn til að huga að því hvernig þú getir bætt útlit þitt. Að halda loforð vegna smámuna er jafnerfitt og halda stór loforð. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það getur verið að þú fáir óvænta gjöf frá einhverjum eða að skipting ein- hvers, sem þú átt með öðrum, komi þér á óvart. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert spurður spurninga sem virðast hversdagslegar en eitthvað býr undir. Vertu þolinmóður og leyfðu hlutunum að hafa sinn gang. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú getur lært ýmislegt af öðrum í dag. Breytingarnar bíða handan hornsins og það skiptir öllu máli að standa sig þangað. Láttu ekkert verða til að trufla það. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú hefur mikið að hugsa um og ert mitt í hringiðunni. Framkvæmdu það sem þú vonast til að geta gert því þú átt aldrei eftir að sjá eftir því. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það er gott að hafa einhverja áætlun í bakhöndinni. Hafðu ekki áhyggjur því tíminn vinnur með þér. Það er engin ástæða til þess að liggja á skoðunum sínum. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Ef þú ert ekki ánægður með stöðu mála er kominn tími til að gera eitt- hvað í því. Betri vinnuaðstaða gæti verið á næstu grösum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þótt veraldleg gæði séu nauðsyn- leg eru þau langt í frá allt. Njóttu þess að sinna skapandi verkefnum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú þarft að hægja aðeins á þér og reyna að einbeita þér að ákveðnum hlut- um. En veldu þá viðfangsefnin af kostgæfni. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ekki gefast upp því fyrr eða síðar stendur þú með pálmann í höndunum og verðlaun fyrir hugvit þitt. Stjörnuspá 1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Bg5 Bg7 4. Rbd2 c5 5. c3 cxd4 6. Rxd4 Rc6 7. Rxc6 bxc6 8. e4 d6 9. Be2 O-O 10. O-O Hb8 11. Dc2 Be6 12. Be3 c5 13. h3 Db6 14. Hfb1 Dc7 15. f4 d5 16. g4 dxe4 17. Rxe4 Rd5 18. Dc1 Bh6 19. g5 Bf5 20. Rxc5 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í Ro- gaska Slatina í Slóveníu. Alþjóðlegi meistarinn Orce Dancevski (2398) frá Makedóníu hafði svart gegn Mark Mcgovern (2086) frá Írlandi. 20… Bxg5! 21. Ra6 Bxf4! 22. Rxc7 Bxe3+ 23. Dxe3 Rxe3 24. Ra6 Hb6 25. b4 Rc2 26. Hc1 Rxa1 27. Hxa1 Hd8 28. a4 Hd2 29. a5 Hc6 30. b5 Hxa6 31. b6 Hxe2 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.