Morgunblaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 28
28 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand SAGT ER AÐ ÁSTIN SÉ BLIND EN HÚN ER LÍKA HEIMSK VEISTU HVAÐ ER AÐ ÞÉR KALLI BJARNA? ÞAÐ SEM ER AÐ ÞÉR, ER AÐ ÞÚ SKILUR EKKI HVER TILGANGUR LÍFSINS ER VEIST ÞÚ HVER TILGANGUR LÍFSINS ER? VIÐ ERUM EKKI AÐ TALA UM MIG NÚNA Í NÆSTA BARDAGA OKKAR ÞÁ VERÐA ANDSTÆÐINGAR OKKAR TVÖFALT FLEIRI EN VIÐ... EN VIÐ VÍKINGAR HLÆJUM AÐ HÆTTUM! ÉG GET EKKI KOMIÐ MEÐ ÞÉR HRÓLFUR AF HVERJU EKKI!? ÉG HLÆ SVO ASNALEGA MIKIÐ ER ÞESSI MEXÍKANSKI MATUR GÓÐUR. ERU ALLAR FLUGFREYJUR SVONA GÓÐIR KOKKAR? HA, HA, HA, Ó RUNÓLFUR ÚPS! ÞESSAR STERKU BAUNIR ERU BYRJAÐAR AÐ SEGJA TIL SÍN EN EKKI HVAÐ EF ÞIÐ ERUÐ MEÐ BÖRN MEÐFERÐIS SETJIÐ GRÍMUNA FYRST Á YKKUR SJÁLF OG AÐSTOÐIÐ SÍÐAN Á BARNIÐ VEISTU RAJIV, KÆRASTAN ÞÍN FÆR BARA FREKAR GÓÐAR HUGMYNDIR ÞÚ HLJÓMAR HISSA HVERSKONAR KONUM HELDURÐU AÐ ÉG FALLI FYRIR? BARA HEIMSKUM, GRUNN- HYGGNUM LJÓSKUM? UM, NEI... ...EKKI NÝLEGA... ÉG HEF ÞROSKAST MIKIÐ SÍÐAN ÉG HÆTTI MEÐ STRIPPARANUM GEFIÐ OKKUR PLÁSS ÞETTA ER TONY STARK, EÐA IRON MAN! HEIMS- FRÆGUR OG MOLDRÍKUR OG HANN ER MEÐ SÆTA GELLU MEÐ SÉR EINS OG VENJULEGA ALLAR FLOTTU OFURHETJURNAR ERU MEÐ SÆTA GELLU UPP Á ARMINN Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnust. kl. 9. Göngu- hópur kl. 10.30, Myndl. kl. 13. Prjónak. kl. 13, Bókmklúbbur kl. 13.15, spænska kl. 16.30. Jóga kl. 18, Hekl kl. 20. Árskógar 4 | Handav/smíði/útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.30. Helgistund kl. 10.30. Myndlist kl. 13.30. Boðinn | Handavinna kl. 9.05. Vatns- leikfimi lokaður hópur kl. 9.15. Stólaleikf. kl. 10. Tréútskurður kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist, bókband, leikfimi, tölvunámskeið kl. 13.35, uppl. í tilefni Dags ísl. tungu kl. 14.20, hlát- urjóga kl. 15. Dalbraut 18-20 | Leikfimi kl. 10, bóka- bíll kl. 11.15, samverust. með sr. Bjarna Karlss. kl. 15.15. Dalbraut 27 | Handavstofa kl. 8, leikfimi kl. 9.05, botsía kl. 13.30. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Bókmenntaklúbbur kl. 14. Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefn- aður kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15, málm- og silfursmíði kl. 9.30, bókband kl. 13.30 og myndlist kl. 16.10. Nk. laugardag 26. nóv. verður laufabrauðsdagurinn í Gjá- bakka frá kl. 13. Bingó kl. 13.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa- vinna kl. 9, ganga kl. 10. Brids og handa- vinna kl. 13, jóga kl. 18. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Qi gong kl. 8.10, vatnsleikfimi kl. 12, handav/karlaleikfimi kl. 13, botsía kl. 14, syngjum saman kl. 15, kóræfing kl. 16. Handverkshorn eldri borgara í Garðabæ í Jónshúsi 1. des. Þátttökuskráning hjá Huldu í s. 6171501. Félagsstarf eldri borgara, Gerðubergi | Helgistund kl. 10.30. Frá hád. eru vinnu- st. opnar. Félag heyrnarl. kl. 13.30, ávarp Heiðdís Dögg Sverrisd. form., upplest. Bryndís Björgvinsd. Túlkað á táknmáli, gestir frá eldri boragarastafi Dómkirkj- unnar. Félagsstarf eldri borgara í Mos- fellsbæ | Skráning stendur yfir í jóla- hlaðborðið í hádeginu 25. nóv. á Hótel Natura, áður Hótel Loftleiðir. Lagt af stað kl. 11.30 með rútu frá Eirhömrum. Sími 5868014 e. hádegi og 6920814. Félagsstarf eldri borgara Seltjarnarnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15. Gler kl. 9. Biljard kl. 10. Kaffispjall í krók kl. 10.30. Óvissuferð kl. 13. Karlakaffi í kirkju kl. 14. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, leik- fimi kl. 9.15, botsía kl. 10.30, postulín kl. 13, félagsvist kl. 13.30, sölusýning á gler- munum Huldu. Hraunsel | Qi gong kl. 10, dýnuæfingar Bjarkarhúsi kl. 11.20, glerskurður kl. 13, pílukast og félagsvist kl. 13.30, ath. jóla- fundurinn verður 1. des. kl. 14, en ekki 8. des. eins og stendur í fréttabréfi FEBH, vatnsleikfimi kl. 14.40. Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10. Hann- yrðir kl. 13. Félagsvist kl. 13.30, kaffisala í hléi. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl. 8.50. Myndlist kl. 9. Morgunandakt kl. 9.30. Leikfimi kl. 10. Þegar amma var ung kl. 10.50. Sönghópur Hjördísar Geirs kl. 13.30. Afahorn kl. 15. Línudans Ingu kl. 15. Skráning stendur yfir í jólakorta- gerð á miðvikudögum. Miðar á Vín- artónleika komnir í hús. Íþróttafélagið Glóð | Ringó kl. 17. Línu- dans hópur III kl. 18, hópur IV (byrj- endur) kl. 19 í Kópavogsskóla. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er sundleikfimi kl. 9.30. Listasmiðja kl. 13. Laugarneskirkja | Herbert Guðmunds- son tónlistarmaður og poppari er gestur samverunnar kl. 14 og mun segja frá at- hyglisverðum viðsnúningi í lífi sínu auk þess að taka lagið. Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9. Botsía kl. 10. Handav. kl. 9/13. Leirlist kl 9/13. Vesturgata 7 | Setustofa kl. 9, handa- vinna/Tiffanys kl. 9.15, leikfimi kl. 10.30, kertaskreytingar kl. 13, kóræfing kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, Bókband og postulín kl. 9, morg- unstund kl. 9.30, botsía kl. 10, handa- vinna/spil/stóladans kl. 13, myndasýn- ing kl. 13.30. Jónas Jónasson, útvarpsmaðurinnkunni, lést í fyrradag. Þegar Friðrik Steingrímsson í Mývatns- sveit sá andlátsfréttina datt honum í hug: Ljósið dvín við lokadag lífsins andi brestur, kveður oss með klökkum brag kvöldsins hinsti gestur. Út er komin bókin Sigurður dýralæknir og fjallar hún um ævi Sigurðar Sigurðarsonar fram að ut- anferð til náms. Í bókinni eru sögur um ýmsa sérkennilega menn, sem hann hefur mætt á lífsferðinni eða heyrt um frá sínu fólki og alþýðleg- ar frásagnir af nokkrum búfjár- sjúkdómum. Bókina skrifaði hann sjálfur að mestu leyti með góðri að- stoð Gunnars Finnssonar fyrrver- andi skólastjóra, frænda síns frá Selalæk. Sigurður er hagyrðingur góður, hefur löngum farið fyrir kvæðamönnum og er flestum fróð- ari um vísur. Í bókinni rifjar hann meðal annars upp þessa vísu Ragn- ars Ásgeirssonar ráðunautar um Fljótshlíðina: Fljótshlíðin með foss og tún fram við bláa aura. Allt of fögur finnst mér hún fyrir símastaura. Að lokum barst Vísnahorninu ein jólavísa með sólarvon frá Sigurði: Glæst eru sólar geislabrot. Þau gylla hóla, völl og móa. Höfuðbólin, hreysi og kot hýsa um jólin gleði nóga. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Jónasi og dýralækni Flugfélag Pálma í þrot Þetta er fyrirsögn sem ég las á netinu. Kemur þetta nokkrum á óvart? Ég held að slíkt hafi verið fyrir- sjáanlegt. Spurningin var bara sú hversu lengi Pálmi Haralds- son gæti blekkt fólk með alls kyns til- boðum, sem engan veginn stóðust. Maður hefur varla opnað blað undanfarin ár, hlustað á útvarp eða sjónvarp nema heyra enda- lausar kvartanir fólks vegna svika. Seinkun, seinkun, seinkun hefur heyrst nokkuð oft ásamt svo mörgu öðru. Ég veit varla um nokkurn sem hefur ætlað sér að fljúga með Iceland Express aftur vegna fyrri reynslu og auðvitað tekur fólk því fagnandi að hafa val. Ég lýsti því yfir fyrir meira en tveimur árum að ég myndi aldrei stíga um borð í vél frá IE aftur vegna fyrri reynslu og við það hef ég staðið. Það er aumkunarvert að horfa upp á mann sem situr í glerturni og ef frétta- mönnum almennt dett- ur í hug að segja sann- leikann þá eru sendar út kærur og stefnur á þá og hafa flestir þeirra verið sýknaðir. Ég fagna því að fleiri flugfélög hafi boðað komu sína og vona sannarlega að boðið verði upp á vélar sem fólk nýtur að ferðast með fremur en að vera með hnút í maganum um að komast jafnvel ekki á leið- arenda. Enda hef ég aldrei skilið hvaða ofurást fólk hefur haft á IE. Alltaf er þó Icelandair í fararbroddi og það stendur fullkomlega fyrir sínu. Svanur Jóhannsson. Velvakandi Ást er… … að fara í peysuna hans svo þú sért nálæg honum þegar hann er í burtu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.