Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 31

Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Okkar eigin Osló, gamanmynd leik- stjórans Reynis Lyngdal, var vel tek- ið af landanum fyrr á árinu og nú er önnur kvikmynd væntanleg frá Reyni, tökur að hefjast á henni uppi á Langjökli. Vinnuheiti myndarinnar er Frost. „Þetta er vísindaskáldskapur, hálfgerður tryllir, gerist reyndar í nú- tímanum en það eru þættir í þessu sem eru svolítið „out of the ordinary“, eitthvað sem við vitum ekki alveg hvað er,“ segir Reynir. Jón Atli Jón- asson skrifaði handritið að myndinni og Kisi, fyrirtæki Ingvars Þórð- arsonar og Júlíusar Kemp, framleiðir. Reynir segir myndina gerast að mestu leyti uppi á jökli. Í henni segi af jöklarannsóknarmönnum. „Það er þarna par sem Anna Gunndís Guð- mundsdóttir og Björn Thors leika. Hún er að vinna með þessu fólki, kærastinn hennar er kvikmynda- gerðarmaður og kemur í heimsókn. Þá fara voveiflegir hlutir að gerast.“ – Það má ekkert fara nánar út í þá? „Nei.“ – Verður þetta svolítið blóðugt? „Sjáum til,“ svarar Reynir, greini- legt að hann vill halda hlutunum eins leyndum og mögulegt er. – Hvaða leikarar aðrir eru í kvik- myndinni? „Það er leyndarmál,“ segir Reynir og hlær allt að því kvikindislega. – Eru brellur í myndinni, í ljósi þess að þetta er vísindaskáldskapur? „Vísindaskáldskapur er yfirleitt bara e.k. staðfæring á einhverjum raunveruleika sem við þekkjum. þar sem er aðeins snúið upp á hann. Inn- an sci-fi-geirans (science fiction, innsk. blm.) eru geimmyndir en svo ertu líka með hálfgerðar hryllings- myndir og eðlilegar aðstæður þar sem verður innrás geimvera. Sci-fi getur líka verið mynd sem fjallar um venjulegt fólk sem verður fyrir vírus sem er ekki til. Allt þetta fjall er sci-fi, svo að fólk misskilji þetta ekki, við er- um ekki að fara að gera geimmynd.“ – En verða geimverur í henni? Reynir hlær. „Ja, sjáum til.“ – Þetta var nú eiginlega játning ... „Nei, eiginlega ekki, ég er nú bara að reyna að halda þessu spennandi,“ svarar Reynir kíminn. Myndin fjalli fyrst og fremst um baráttu fólks og tilfinningar þess í tilteknum að- stæðum sem áhorfendur þekki að ein- hverju leyti. Efnið standi Íslend- ingum nærri. Já, dularfullt er það. Morgunblaðið/Golli Leyndardómsfullt Reynir Lyngdal vill ekki segja of mikið um Frost. Vísindaskáldskapur á Langjökli  Reynir Lyngdal leikstýrir kvikmynd eftir handriti Jóns Atla Jónassonar Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is When China Met Africa nefnist heim- ildarmynd sem frumsýnd verður í kvöld í Bíó Paradís. Sýning mynd- arinnar er skipulögð af Stofnun Evu Joly í samvinnu við kvikmyndahúsið. Í myndinni er fjallað um landakaup og fjárfestingar Kínverja í Sambíu og áhrifin sem þau umsvif hafa haft á samfélagið þar. Í myndinni er tekinn fyrir sögulegur fundur Afríkuleiðtoga í Peking árið 2006 en á honum voru gerðir viðskiptasamningar milli ríkjanna upp á um tvo milljarða doll- ara. Í myndinni er svo fylgst með þremur mönnum: Li sem er verk- efnastjóri fjölþjóðlegs, kínversks fyr- irtækis sem stendur í endurbótum á lengsta vegi landsins; Liu sem er einn þúsunda kínverskra athafnamanna í landinu, hefur keypt sér bújörð og hagnast vel og viðskiptaráðherra Sam- bíu sem heldur til Kína í þeim tilgangi að tryggja fjárfestingar Kínverja í Sambíu upp á milljónir dollara. Höfundar myndarinnar eru Bret- arnir Marc og Nick Francis. Blaða- maður ræddi við Nick í gær og sagði hann myndina í raun portrett af hinum miklu umsvifum Kínverja í Sambíu. Sagan væri sögð frá sjónarhóli þriggja manna með ólík verkefni og hagsmuni, sjónum m.a. beint að samskiptum þeirra við und- irmenn sína og samstarfsmenn. Francis segir ekki lesið inn á myndina, engar lýsingar eða athugasemdir sögumanns sé að finna í henni. Það sé áhorfenda að meta það sem fram fer og mynda sér skoðun. Francis segir að þeim Marc hafi þótt fréttaflutningur vestrænna fjölmiðla af viðskiptum og fjárfestingum Kínverja í Afríku full einfaldur, samband Kína og Afríku sé bæði marglaga og flókið. Þá telji margir afrískir leiðtogar sam- keppni Kína við Vesturlönd af hinu góða. „Umsvif Kínverja í Afríku eru til marks um það hvernig valdið er að fær- ast frá vestri til austurs á heimsvísu. Hraði þessara umskipta sýnir hvernig efnahagur Kína hefur þanist út og það er eitthvað sem Íslendingar hafa ekki farið varhluta af,“ segir Francis og vís- ar þar í mál kínverska kaupsýslu- mannsins Huangs Nubo sem bíður leyfis íslenskra stjórnvalda fyrir kaup- um á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum. – Þú hefur s.s. kynnt þér það mál? „Já, ég var reyndar að því áður en þú hringdir,“ svarar Francis. Umsvif Kín- verja í Afríku sýni í hnotskurn hvað sé að gerast í heiminum. Viðskipti Kína við Evrópuríki fari t.d. sívaxandi. Francis leikur forvitni á því að vita hvort viðskipti Nubo séu umdeild hér á landi og blaðamaður telur sig geta staðfest að svo sé. Sambía og Ísland Francis segir áhugavert að sjá hvernig kínverskir athafnamenn séu að leita viðskiptafæra í ríkjum sem orðið hafi fyrir efnahagslegum áföllum, m.a. Grikklandi. „Sagan af kínverskum bónda sem kaupir jörð í Sambíu er smækkuð útgáfa af tilboði Huangs Nubo,“ segir hann. Þarna séu greini- legar hliðstæður á ferð. Hvort sem kaup Nubos verði samþykkt eða ekki muni fleiri kínverskir athafnamenn fylgja í kjölfarið. Francis segir samskipti kínversks bónda í heimildarmyndinni við inn- fædda undirmenn sína í Sambíu sýna hvernig heimurinn sé að breytast. „Það er talið að tíu til tuttugu þúsund kín- verskir bændur séu í Afríku núna með eigin búskap,“ bendir Nick á. Því sé spáð að árið 2020 verði hagkerfi Kína það stærsta í heiminum. „Ég held að við verðum að reyna að ná tengslum við og skilja Kína og að mörgu leyti er það hlutverk myndarinnar, að vekja þá umræðu. Við erum að þokast inn í kínversku öldina,“ segir Francis,. Þjóðir heims og þá sérstaklega Vest- urlandabúar verði að reyna að aðlag- ast þeim breytingum, auka skilning sinn og tengsl við hina nýju valda- miðju heimsins og finna sér hlutverk í breyttum heimi. Valdið færist frá vestri til austurs  Heimildarmynd um umsvif Kínverja í Sambíu frumsýnd í Bíó Paradís Bóndi Kínverjinn Liu er einn þeirra sem fylgst er með í myndinni. Hér sést hann með eiginkonu og barni í Sambíu. Nick Francis whenchinametafrica.com LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar IMMORTALS 3D Sýnd kl. 8 - 10:15 (Power) ELÍAS Sýnd kl. 6 TOWER HEIST Sýnd kl. 8 - 10:15 ÆVINTÝRI TINNA 3D Sýnd kl. 5 BORGRÍKI Sýnd kl. 6 - 8 - 10 NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND Í ANDA STIEG LARSSON MYNDANNA HVERSU LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA FYRIR ÞANN SEM ÞÚ ELSKAR? HHHH ÞÞ. FRÉTTATÍMINN HHHH KHK. MBL HHH AK. DV HHH „SJÓNRÆN VEISLA MEÐ SKEMMTILEGU OFBELDI OG GRJÓTHÖRÐUM TÖFFARASKAP.“ T.V., KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum B.G. -MBL HHHH POWE RSÝN ING KL. 10 :15 SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR 5% IMMORTALS 3D KL. 6 - 8 - 10 12 BAKKA-BALDUR KL. 6 L TOWER HEIST KL. 8 - 10 12 IMMORTALS 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 IMMORTALS 3D LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 ELÍAS OG FJÁRSJÓÐSLEITIN KL. 3.40 L TOWER HEIST KL. 8 - 10.20 12 IN TIME KL. 8 - 10.30 12 ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 3.20 - 5.40 - 8 7 HEADHUNTERS KL. 5.45 - 10.20 16 ÞÓR 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.40 - 5.50 L ÞÓR 2D ÍSLENSKT TAL KL. 3.40 L IMMORTALS 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 IN TIME KL. 10.15 12 HUMAN CENTIPEDE KL. 10.20 18 MONEYBALL KL. 8 L ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 5.40 - 8 7 MIDNIGHT IN PARIS KL. 5.45 L ELDFJALL KL. 5.45 - 8 L FRÁ FRAMLEIÐENDUM 300 “SJÓNRÆN VEISLA MEÐ SKEMMTILEGU OFBELDI OG GRJÓTHÖRÐUM TÖFFARASKAP.” T.V., KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ & HEYRT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.