Morgunblaðið - 22.12.2011, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.12.2011, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011 Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum dvelur myndarlegur kvenfálki um þessar mundir en það var Ólafur Nielsen á Náttúrufræðistofnun Ís- lands sem kom með fálkann í garð- inn. Hremmingar fálkans voru nokkuð óvanalegar en hann lenti framan á rúðu flutningabíls sem var á ferð við Staðastað á sunn- anverðu Snæfellsnesi. Bílstjórinn, sem heitir Sveinn Haukur, sá þúst á veginum framundan, sem reyndist vera fálki, sem skyndilega flaug upp og stefndi fyrst frá bílnum. Fálkinn breytti um stefnu og flaug á framrúðuna og féll til jarðar í vegkantinum. Þá var Sveinn Hauk- ur þess fullviss að fuglinn væri dauður og setti í kassa á bílnum. Eftir um 20 kílómetra akstur at- hugaði Sveinn Haukur með fálkann sem tók á móti honum með út- breidda vængina. Hvort fálkinn nær sér að fullu verður að koma í ljós en honum verður sleppt um leið og tækifæri gefst en safnar nú þreki. Fálki í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum Á batavegi Fálkinn flaug á bíl og vank- aðist en er núna í hressingarmeðferð. Þessa dagana eru velunnarar Blindrafélagsins að fá sent fyrsta leiðsöguhundadagatal Blindra- félagsins. Dagatalið, sem er fyrir 2012, er með myndum af leið- söguhundum fyrir blinda og ung- hundum sem valdir hafa verið til þjálfunar til leiðsöguhundsstarfa. Útgáfa dagatalsins er hugsuð sem fjáröflun til að standa straum af kaupum og þjálfun leiðsöguhunda. Hér á landi eru starfandi fimm leiðsöguhundar fyrir blinda, þörf er á mun fleiri. Hægt er að panta dagatölin á netföngunum margret@blind.is og hildur@blind.is. Gefa út leiðsögu- hundadagatal Félagið Tékkneska á Íslandi efnir til minningarathafnar um Václav Havel á útfarardegi hans á Þorláksmessu kl. 17.30 við Lýðveldisgarðinn á horni Hverfisgötu og Smiðjustígs, austan Þjóðleikhúss. Erlingur Gíslason leik- ari flytur brot úr verki Havels. Kveikt verður á kertum í minningu hans. „Heimildir herma, að þegar leikritaskáldið Václav Havel var kosinn forseti Tékkóslóvakíu hafi leikrit hans aldrei verið flutt utan heimalandsins; og að eftir emb- ættistökuna hafi hann komið við á Íslandi á leiðinni frá Moskvu til Washington, eða öfugt. Í öllu falli er það stað- reynd, að í Þjóðleikhúsi Íslands sá Havel í fyrsta sinn leikrit eftir sig flutt utan heimalandsins. Íslenskir leikarar og leikstjórar kynntust Havel í Tékkóslóvakíu á sínum tíma. Þjóðleikhúsráð sá til þess að verk eftir hann var frumflutt hér,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Minningarathöfn um Václav Havel Václav Havel Samband íslenskra kristniboðs- félaga ætlar í samstarfi við Póstinn að taka við notuðum frímerkjum í janúar 2012. Ágóðinn af sölu frí- merkjanna rennur til þróunarverk- efna á sviði menntunar barna, ung- linga og fullorðinna í Eþíópíu og Kenía. Frímerkjum og umslögum verður safnað á öllum pósthúsum frá 27. desember til 31. janúar. Safna frímerkjum Opin hugmyndasamkeppni um nýja göngu- og hjólaleið yfir El- liðarósa er hafin en reisa þarf tvær brýr á leiðinni. Í tilkynningu frá Reykjavíkur- borg kemur fram að gert sé ráð fyrir að samið verði við þá sem hljóta fyrstu verðlaun um áfram- haldandi hönnun. Stefnt sé að framkvæmdum næsta sumar. Nýi göngu- og hjólastígurinn mun stytta leiðina milli Grafar- vogs og miðborgar umtalsvert eða um 0,7 km. Nánari upplýs- ingar eru á vef Reykjavíkur- borgar. Samkeppni um nýjar göngu- og hjólabrýr STUTT BAKSVIÐ Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Fjárlaganefnd Alþingis kallaði eftir og fékk upplýsingar frá utanríkis- ráðuneytinu um miðjan nóvember um það hvernig staðið var að því að leggja mat á það tjón sem Skafti Jónsson, sendiráðunautur sendiráðs Íslands í Washington, og kona hans, Kristín Þorsteinsdóttir, urðu fyrir í apríl á þessu ári þegar sjór komst inn í gám sem búslóð þeirra var flutt í til Bandaríkjanna. Þetta staðfestir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefnd- ar, í samtali við Morgunblaðið. Hún segir að ráðuneytið hafi hins vegar óskað eftir því að þau væru háð trún- aði á þeim forsendum að um per- sónulegar upplýsingar væri að ræða. Einungis fulltrúar í nefndinni hafi því fengið að sjá upplýsingarnar. Óljóst hvaða verk voru bætt Eins og komið hefur fram í Morg- unblaðinu greiddi íslenska ríkið 75 milljónir króna í bætur vegna tjóns- ins til viðbótar við greiðslu frá Tryggingamiðstöðinni upp á rúmar fimm milljónir. Stærstur hluti bót- anna var greiddur vegna fjölmargra listaverka og annarra listmuna sem voru í búslóðinni eða á fimmta tug milljóna en annað sem mun meðal annars hafa verið bætt var fatnaður, húsgögn og skartgripir. Ekki hefur hins vegar verið gefið upp hversu marga listmuni hafi verið um að ræða, hvaða listmunir það hafi verið sem hafi orðið fyrir tjóni og verið bættir af ríkinu eða á hvað þeir voru metnir og hefur utanríkisráðu- neytið ítrekað neitað að veita þær upplýsingar. Fram kom í yfirlýsingu frá Skafta og Kristínu síðastliðinn mánudag, sem birt var í heild í Morgunblaðinu daginn eftir, að utanríkisráðuneytinu hafi verið fullkunnugt um verðmæti búslóðarinnar. Þá hefur einnig meðal annars verið greint frá því í umfjöll- unum blaðsins um málið að íslenska ríkið eða fulltrúar þess hafi hvergi komið að málinu með beinum hætti nema þegar kom að því að greiða út bæturnar fyrir búslóðina úr ríkis- sjóði. Undrandi á umfanginu Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er varamaður í fjárlaganefnd og staðfesti hún í samtali við Morgunblaðið að hafa séð þau gögn sem fjárlaganefnd Alþingis fékk afhent vegna bótamálsins. Hún segist þó bundin trúnaði vegna gagnanna. „Ég get þó sagt að mig undrar umfang umræddrar búslóðar miðað við þessi gögn og skil ekki hvernig hafi verið hægt að koma henni fyrir í 20 feta flutningagámi,“ segir Vigdís. Hún segist ennfremur hissa á því að krafist hafi verið trúnaðar í nefnd- inni. „Ég held að það væri einfald- lega best fyrir alla að þetta mál væri leitt til lykta með þeim hætti að það yrði allt bara uppi á borðinu hvernig staðið var að þessu.“ Þingið óskaði upp- lýsinga um bótamatið Ljósmynd/Lárus Karl Ingason Tjónamál Utanríkisráðuneytið vissi um verðmæti búslóðar Skafta Jóns- sonar og konu hans að þeirra sögn þegar hún var flutt til Bandaríkjanna. Tjónamálið » Mikið tjón varð á búslóð Skafta Jónssonar og Kristínar Þorsteinsdóttur þegar ólag kom á flutningaskip Eimskipa í apríl fyrr á þessu ári. » Greiddar voru 75 milljónir króna úr ríkissjóði í bætur fyrir búslóðina og um fimm milljónir frá tryggingafélaginu sem tryggði hana. » Engin bein lagaheimild mun vera til staðar fyrir því að ríkið ábyrgist búslóðir starfsmanna utanríkisþjónustunnar þegar þeir halda til starfa erlendis. » Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins kom ríkið hvergi að málinu með beinum hætti nema í lokin þegar kom að því að greiða bæturnar. Neytendastofa telur að auglýsingar Skjásins ehf., þar sem borin var saman áskrift að Skjá einum og Stöð 2, hafi ekki verið villandi. Neytendastofa telur ekki vera ástæðu til aðgerða af hennar hálfu vegna kvörtunar fjölmiðlafyrirtæk- isins 365 miðla ehf. vegna auglýs- inganna. Fjölmiðlafyrirtækið 365 miðlar ehf., sem rekur m.a. Stöð 2, kvartaði til Neytendastofu í september 2011 vegna útvarps- og blaðaauglýsinga Skjásins á áskrift að Skjá einum. Í auglýsingu var áskriftin borin sam- an við áskrift að Stöð 2 og verð áskriftar að Skjá einum m.a. sagt helmingi lægra en að Stöð 2. Þá var Netfrelsi Skjás eins kynnt í út- varpsauglýsingunni sem kvartað var vegna. 365 miðlar ehf. töldu m.a. að bornar væru saman ósambærilegar vörur og að vísað væri á ómálefna- legan hátt til auglýsinga Stöðvar 2. Því brytu auglýsingar Skjásins gegn ákvæðum laga um eftirlit með við- skiptaháttum og markaðssetningu. Skjárinn hafnaði því að auglýs- ingar hans væru ólögmætar og sagði að bornar væru saman vörur sem ættu í innbyrðis samkeppni, fullnægðu sömu þörfum og væru ætlaðar til sömu nota. Þá væri verð- samanburður á áskriftunum réttur. Neytendastofa komst m.a. að þeirri niðurstöðu að fullyrðing Skjásins ehf. um helmingi lægra verð á áskrift að Skjá einum en að Stöð 2 sé ekki röng. Hún telur því að auglýsingar Skjásins ehf., vegna Skjás eins, séu ekki villandi og því ekki brot á téðum lögum. Þá sé ekki skírskotað til óviðkom- andi mála í auglýsingum Skjásins og form þeirra því ekki ótilhlýðilegt. Auglýsingarnar teljist ekki til órétt- mætra viðskiptahátta og því ekki brot á lögum. Því sé ekki ástæða til aðgerða af hálfu stofnunarinnar. gudni@mbl.is Auglýsingar Skjásins ekki á skjön við lög  365 miðlar ehf. kvörtuðu vegna samanburðar við Stöð 2 Keppinautar » Undir Skjáinn ehf. heyra sjónvarpsstöðin Skjár einn, SkjárBíó þar sem áhorfendur sækja sjálfir efni, SkjárHeimur sem endurvarpar erlendum sjónvarpsstöðvum og Skjár- Golf sem sýnir golfkeppnir. » 365 miðlar reka m.a. sjón- varpsstöðina Stöð 2, íþrótta- stöðina Stöð 2 Sport, afþrey- ingarstöðina Stöð 2 Extra og Stöð 2 Bíó auk Stöðvar 2 Fjöl- varps sem er endurvarp er- lendra stöðva. Fríðindak ort Golfarans Golfkortið JÓLAGJÖF GOLFARANS Kortið fæst á völdum stöðvum Golfkortið 2012 Spilað um allt Ísland - 31 golfvellir Einstaklingskort 9.000 kr, Fjölskyldukort 14.000 kr Upplýsingar á golfkortid.is Kíkið inn á leikinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.