Morgunblaðið - 22.12.2011, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Stjarnvísindamenn hafa fundið tvær
reikistjörnur sem eru þær minnstu
og þær líkustu jörðinni sem fundist
hafa utan sólkerfis okkar. Reiki-
stjörnurnar eru í Lýrustjörnuþok-
unni og ganga á braut um stjörnuna
Kepler-20. Fundust þær með Kep-
ler-stjörnusjónaukanum og var
fundurinn kynntur í vísindatímarit-
inu Nature í vikunni.
Sú stærri nefnist Kepler-20f og er
þremur prósentum stærri en jörðin
að þvermáli. Sú minni, Kepler-20fe,
er þrettán prósentum minni en jörð-
in og er hún minnsta reikistjarna
sem fundist hefur á braut um stjörnu
í alheiminum.
Báðar reikistjörnurnar eru taldar
vera úr bergi og efnasamsetning
þeirra svipuð jörðinni. Þær eru mun
nær stjörnunni sem þær ganga um
en jörðin er sólu og ganga því einnig
mun hraðar um hana. Telja vísinda-
menn að Kepler-20e skjótist í kring-
um stjörnuna á aðeins sex dögum en
Kepler-20f á tuttugu dögum.
Voru líkari jörðinni
Þó að alltof heitt sé þar nú til að líf
geti þrifist telja vísindamenn að
Kepler-20f hafi verið enn líkari jörð-
inni áður fyrr þegar reikistjörnurnar
voru fjær stjörnunni. Þar hafi jafn-
vel getað myndast lofthjúpur úr
vatnsgufu.
„Við vitum að þessar reikistjörnur
gætu hafa færst nær stjörnunni. Sú
stærri gæti hafa verið hliðstæða
jarðarinnar áður fyrr. Hún er jafn-
stór jörðinni og þar gæti hafa verið
sama hitastig áður,“ segir dr.
Francois Fressin hjá Harvard-
Smithsonian-miðstöðinni sem
stjórnaði rannsókninni við breska
ríkisútvarpið BBC.
Nýjar reikistjörnur líkjast jörðinni
Reuters
Reikistjarna Hugmynd listamanns um hvernig Kepler-20e gæti litið út.
Aldrei fundist reikistjörnur sem eru eins líkar jörðinni utan sólkerfisins og Kepler-20e og Kepler-20f
Of heitt til að líf geti þrifist nú en stærri plánetan hafði hugsanlega lofthjúp úr vatnsgufu áður fyrr
Syrgjendur leggja blóm á líkvagn sem flutti
kistu Vaclavs Havels, fyrrverandi forseta Tékk-
lands, að Pragkastala í gær þar sem lík hans
mun liggja á viðhafnarbörum. Þúsundir manna
fylgdu kistunni um stræti höfuðborgarinnar og
klöppuðu margir þegar vagninn fór framhjá.
Útförin verður gerð á föstudag frá dómkirkju
heilags Vitusar og verður það fyrsta ríkisútförin
í Tékklandi frá sjálfstæði.
Reuters
Þúsundir fylgdu kistu Havels um Prag
Útför Vaclavs Havels, fyrrverandi forseta Tékklands, verður gerð á föstudag
Bandarísk yfir-
völd hafa farið
fram á það við
vísindatímaritin
Nature og
Science að þau
ritskoði greinar
sem fjalla um af-
brigði fugla-
flensuveirunnar
sem smitast get-
ur á milli manna
sem vísindamenn bjuggu til í til-
raunastofu. Það er vísindaráð um
efnaöryggi sem óskar eftir ritskoð-
uninni af ótta við að veiran verði
notuð sem vopn. Er þetta í fyrsta
skipti sem farið er fram á slíkt.
Tímaritin eru þó ekki á sama máli
að sögn The Guardian.
„Það er nauðsynlegt fyrir lýð-
heilsu að öll smáatriði vísinda-
legrar greiningar á fuglaflensu-
veirunni séu aðgengileg vísinda-
mönnum,“ segir Philipp Campbell,
ritstjóri Nature.
Vilja rit-
skoða vís-
indatímarit
Óttast að veira
verði notuð sem vopn
Veira Fuglaflensan
er banvæn.
Stjarnan Kepler-20 er í um þús-
und ljósára (tæplega 9.500
billjóna kílómetra) fjarlægð frá
jörðinni og myndi ferðalag að
reikistjörnunum tveimur taka
hraðskreiðustu geimför meira
en fjórar milljónir ára.
Auk Kepler-20e og Kepler-
20f hafa vísindamenn fundið
þrjár aðrar reikistjörnur í sól-
kerfinu. Sú minnsta þeirra er
tæplega tvisvar sinnum stærri
en jörðin en sú stærsta um
þrisvar sinnum stærri.
Löng ferð
KEPLER-20-SÓLKERFIÐ
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Sænsku blaðamennirnir tveir sem
handteknir voru í Ogaden-héraði í
Eþíópíu í sumar voru í gær sakfelld-
ir fyrir að styðja hryðjuverkastarf-
semi og að hafa komið með ólögleg-
um hætti inn í landið.
Blaðamaðurinn Martin Schibbye
og ljósmyndarinn Johan Persson
viðurkenndu að þeir hefðu verið í
sambandi við skæruliðasveitir Þjóð-
frelsishreyfingar Ogaden sem hafa
barist fyrir auknu sjálfstæði héraðs-
ins í fimmtán ár og að hafa komið
ólöglega inn í landið.
Þeir höfnuðu hins vegar ásökun-
um um hryðjuverkstarfsemi, þar á
meðal að hafa hlotið þjálfun í vopna-
burði. Engu að síður komst dóm-
arinn í málinu að þeirri niðurstöðu
að ekki hefði tekist að sanna að þeir
hefðu ekki stutt hryðjuverkastarf-
semi. Að sögn fréttaritara AFP-
fréttaveitunnar sýndu mennirnir
tveir engin viðbrögð þegar dómar-
inn kvað upp úrskurð sinn en óljóst
var hvort þeir skildu hann þar sem
þeim var ekki séð fyrir túlki.
Komist heim sem fyrst
Fredrik Reinfeld, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, sendi frá sér yfir-
lýsingu í gær þar sem hann segir
sænsku ríkisstjórnin líta á málið
grafalvarlegum augum. Markmiðið
sé að þeir Persson og Schibbye verði
látnir lausir svo fljótt sem auðið sé.
Sænsk stjórnvöld séu að skoða mál-
ið með þeim og fjölskyldum þeirra
og viðræður við háttsetta embætt-
ismenn í Eþíópíu standi nú þegar yf-
ir.
Þá lýsti Carl Bildt utanríkisráð-
herra yfir áhyggjum af niðurstöð-
unni og sagði að haldið yrði áfram að
reyna að fá þá lausa. Bildt hefur
sætt mikilli gagnrýni í Svíþjóð fyrir
aðgerðarleysi í máli blaðamannanna
tveggja.
Samtökin Amnesty International
og Blaðamenn án landamæra segja
dóminn hneyksli og kalla eftir að
Svíunum verði sleppt tafarlaust.
Refsing yfir Persson og Schibbye
verður ákveðin hinn 27. desember.
Saksóknari í málinu hefur farið fram
á hámarksrefsingu yfir Svíunum en
hún er átján og hálft ár í fangelsi.
Svíar sakfelldir fyrir hryðjuverk
Sænsk stjórnvöld í viðræðum við eþíópíska embættismenn um lausn málsins
Gætu átt 18 ára fangelsi yfir höfði sér fyrir stuðning við hryðjuverkastarfsemi
Handteknir í júlí
» Mennirnir tveir komu til
Eþíópíu frá Sómalíu í fylgd
skæruliða Þjóðfrelsishreyf-
ingar Ogaden.
» Voru þeir teknir höndum af
hernum hinn 30. júní. Degi síð-
ar voru þeir handteknir af lög-
reglu og síðar ákærðir fyrir að
styðja hryðjuverk og að koma
ólöglega inn í landið.
» Ætluðu þeir að rannsaka
starfsemi félags sem tengist
sænska olíufélaginu Lundin
Petrolium í Ogaden og mann-
réttindabrot Eþíópíuhers í hér-
aðinu til að verja hagsmuni er-
lendra olíufyrirtækja.
Martin
Schibbye
Johan
Persson
Iván Heyn, argentínskur aðstoðar-
ráðherra utanríkisviðskipta, fannst
látinn í fyrrinótt á hótelherbergi
sínu á ráðstefnu Mercosur, efna-
hagssamstarfs Brasilíu, Argentínu,
Úrúgvæ og Paragvæ, sem stendur
yfir í Montevideo í Úrúgvæ.
Virðist Heyn, sem var 33 ára
gamall, hafa svipt sig lífi með því að
hengja sig. Málið er í rannsókn lög-
reglu en engin merki voru um átök
að því er argentínska dagblaðið
Clarín greinir frá. Heyn var talinn
rísandi stjarna í stjórn Cristinu
Kirchner forseta. Hún yfirgaf fund
í geðshræringu þegar henni voru
færðar fréttirnar og þurfti á lækn-
isaðstoð að halda. kjartan@mbl.is
Reuters
Ráðherra Iván Heyn fannst látinn.
Ráðherra
fyrirfer sér