Morgunblaðið - 22.12.2011, Blaðsíða 36
36 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011
Aflagrandi 40 | Sólstöðuganga sem
auglýst var kl. 14 fellur niður.
Árskógar 4 | Handavinna, smíði og út-
skurður kl. 9, botsía kl. 9.30 og myndlist
kl. 13.30.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
dagblöð/lestur kl. 10 á 2. hæð, upp-
lestur í handavinnustofu kl. 14. Lista-
maður mánaðarins.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefn-
aður kl. 9.05, handavinnustofan opin,
síðasti skráningardagur í skötuveislu í
Gjábakka á morgun.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Heitt á könnunni í Jónshúsi kl. 9.30-16.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15. Kaffispjall
í krók kl. 10.30. Félagssvið eldri borgara
á Seltjarnarnesi óskar öllum gleðilegrar
hátíðar, árs og friðar og þakkar sam-
starfið á árinu.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9,
botsía kl. 10:30, félagsvist kl. 13:30,
tímapantanir hárgreiðslust. í s. 894-
6856.
Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10. Heim-
sókn úr Leikskólanum Álftaborg kl.
10.30, börn koma og syngja nokkur lög.
Hádegisverður, miðdagskaffi.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50, morgunandakt kl. 9.30, leikfimi-
jólakaffi kl. 10, jólaball kl. 14. Panta þarf
skötu á Þorláksmessu fyrir kl. 13.30 í
dag.
Íþróttafélagið Glóð | Allar æfingar falla
niður til 9. jan.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10, upplestur
kl. 11, handavinna, leirlistarnámskeið og
útskurður kl. 9.
Vesturgata 7 | Setustofa kl. 9, handa-
vinna/Tiffanys kl. 9.15, leikfimi kl. 10.30,
kertaskreytingar kl. 13, kóræfing kl. 13.
Davíð Hjálmar Haraldsson sendilínu eftir að hafa lesið um
vandræði Péturs Stefánssonar
vegna draugagangs, en bragurinn
birtist í Vísnahorninu í fyrradag:
„Þetta minnir óneitanlega á
drauginn sem ég hef þurft að eiga
við. Fyrir örfáum árum eignaðist
ég dágott útvarp með áföstum
geislaspilara og var hægt að hlaða
spilarann með þrem geisladiskum.
Fyrir nokkru tók fyrirbærið upp á
því að fara í gang klukkan 1.30 á
nóttunni og þetta gerðist á hverri
nóttu. Tæknifróðir menn reyndu að
venja gripinn af þessum ósið en það
var ekki hægt hvað sem reynt var.
Þetta komst ekki í lag fyrr en ég
hætti að láta geisladiska vera í spil-
aranum; draugsi hefur ekki enn
sett diskana í sjálfur. Líklega er
þetta tæknidraugur, afkomandi
Móra og Skottu.
Eins og léku lömb á stekk,
lítill varð því friður
er tæknidraug ég trylltan fékk
uns tókst að kveð’ann niður.
Og Davíð Hjálmar gerir síðustu
atburðum skil:
Í Kóreu er Kim Jong-un
kommi lofi ausinn.
Svíar iðka svig og brun
og Saab fer loks á hausinn.
En svo yrkir hann í kjölfarið:
Í Kóreu er birgðabúrið læst
en börnin götu skynja það og vita
að aðeins þau sem orga mest og hæst
eiga von um föt og matarbita.
Og Jón Ingvar Jónsson hefur litla
trú á nýja leiðtoganum:
Víst ég hefi vondan grun
að verði hrun
þegar kappinn Kim Jong-un
krýnast mun.
Ingólfur Ómar Ármannsson átti
afmæli um liðna helgi, 17. desem-
ber. Hann virðist engan bilbug á sér
finna og yrkir vísu, sem skilja má
sem óð til náttúrunnar í víðari
skilningi orðsins:
Harla gaman einkum er
að yrkja á léttum nótum,
andagiftin yljar mér
inn að hjartarótum.
Orka næg er enn í mér
elja, þrek og dugur,
býsna sprækur ennþá er
orðinn hálffimmtugur.
Þrá til kvenna ærin er
ásta þrátt vil njóta,
alltaf best ég uni mér
uppi á milli fóta.
Pétur Blöndalpebl@mbl.is
Vísnahorn
Af tæknidraugi og Jong-un
Flugsýningin 1978
Óska eftir myndum af
flugsýningunni árið
1978 á Reykjavík-
urflugvelli, helst af
DC8-vél Loftleiða.
Vinsamlega hafið sam-
band í síma 588-2378
eða sendið línu á ssair-
@simnet.is
Ríkisstjórnin
þjarmar
að eldri borgurum
Í mínum huga er Guð-
bjartur Hannesson
bleyða, lítið sem ekk-
ert er að marka þann
mann. Svona já-maður, sem dinglar
aftan í Samfylkingunni svo hún haldi
sjó. Allt eldra fólk sem komið er á
ellilífeyri finnur það á eigin skinni og
um hver einustu mánaðamót hvernig
þessi ríkisstjórn hefur þjarmað að
eldri borgurum, það þarf ekkert rík-
isbatterí Samfylkingarinnar til þess
að blekkja eldri borgara með Sigríði
Ingibjörgu Ingadóttur innanborðs,
tölurnar tala sínu máli. Eftirlaun
þeirra sem ekkert
eiga og ekkert hafa
eru 167.165 kr. nettó .
Fáir þú eitthvað úr líf-
eyrissjóði, svo sem kr.
20.000, eru tekjur þín-
ar frá Trygg-
ingastofnun skertar
sem því nemur eða
niður í 146.269 kr. Vilji
eldri borgarar vinna
sér inn smá pening og
koma sér upp úr þeirri
fátæktargildru, sem
þessi ríkisstjórn hefur
komið eldri borgurum
í er það næsta ógjörn-
ingur. Eldri borgarar
mega hafa kr. 25.076
nettó á mánuði, þá verða ráðstöf-
unartekjur eftir skatt kr. 170.240 .
Er þessi ríkisstjórn að búa til vesæl-
dóm? Er þessi ríkisstjórn að hrekja
eldri borgara út af vinnumark-
aðnum? Er þessi ríkisstjórn að búa
til vesalinga?
Kt. 140442-2309.
Velvakandi
Ást er…
… allur þessi djass!
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
LÍTUM NÚ Á
FRÉTTIRNAR
ÉG GET EKKI
SAGT NEITT VIÐ
ÞESSU
ÞETTA ER
HRÆÐILEGT!
LÍTUM FREKAR Á
EITTHVAÐ
ANNAÐ
ÞETTA
GETUR EKKI
VERIÐ GOTT
ÉG VAR AÐ
SENDA ÞAÐ Á ÞIG
FLESTIR KOKKAR ÚTSKRIFAST
ÚR GÓÐUM SKÓLUM Í PARÍS
EÐA LONDON...
HVAÐAN
ÚTSKRIFAÐIST ÞÚ?
ÉG
ÚTSKRIFAÐIST ÚR
SJÖUNDA BEKK
ÖLL BLÖÐIN MÍN FRÁ
PÖNKTÍMABILINU ERU
ÓNÝT
ÞESSI BLÖÐ ERU
ÓMETANLEGUR PARTUR
AF UNGLINGSÁRUM
MÍNUM, EN NÚ ERU ÞAU
ÖLL ÓNÝT
LÖT!?!
HEFURÐU
EKKERT
FLEIRA AÐ
SEGJA?
STARK, ÞÚ ERT EINN
AF GÓÐU GÆJUNUM
AF HVERJU
ERTU AÐ SPRENGJA
ALLT Í LOFT UPP?
DREPTU HANN
IRON MAN!
ÞAÐ ER VÍST EKKI
VIÐ ÞIG TALANDI
OG ÞAU ERU ÓNÝT
VEGNA ÞESS AÐ ÞÚ VARST
OF LÖT TIL AÐ SKIPTA UM
EINA SKITNA SÍU!!
GRÍMUR, ERTU TIL
Í AÐ SÆKJA BLAÐIÐ
FYRIR MIG?
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is