Monitor - 08.12.2011, Blaðsíða 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2011
Fljótlegt, einfalt
og fúgadæsh
Uppskriftin
• Ritz-kex (innfl utt vara)
• Ostur (innlend vara)
• Pizzasósa (innfl utt vara)
Þú fyllir disk af Ritz-kexi, setur eina slettu af
pizzasósu á öll stykkin. Setur svo ostinn ofan á ,
inn í örbylgjuna á 800w í 30 sekúndur og „voila.“
Athugið að einnig er hægt að setja smá hangikjöt
á hvert kex og greniköngul eða einfaldlega
sleppa örbylgjuofninun og kofareykja þetta bara.
Gleðileg jól.
„Ég gaf einu sinni pabba myndina Kazaam
í jólagjöf en þar leikur Shaquille O‘Neal
einhvern anda. Pabbi var mjög ósáttur
með gjöfi na en myndin hefur síðan þá
alltaf komið mér í rétta jólaskapið,“ segir
Steindi aðspurður um hvað það sé sem
komi honum í jólastuð. Steindi leggur
líka mikið upp úr skreytingum og ætlar
að setja jólatréð upp snemma í ár. „Ég er
alfarið á móti gervitrjám enda hef ég farið
undanfarin ár og hoggið jólatrén sjálfur.
Í ár kem ég til með að höggva tré sem ég
gróðursetti sjálfur fyrir 12 árum síðan.
Ég passa nefnilega alltaf upp á að planta
nokkrum trjám fyrir hvert tré sem ég hegg.“
Steindi var svo almennilegur að deila með
lesendum Monitor sérstakri uppskrift af
jóla-Ritz-kexkökum.
jrj
Á milli þess sem Steindi jr. áritar aðra
seríuna af Steindanum okkar í verslunum
eyðir hann tíma sínum heima í að gera
klárt fyrir jólin með því að skreyta og baka.
Bölvað
jólabarn
Mynd/Sigurgeir S.