SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Side 10

SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Side 10
10 29. janúar 2012 Skar og skarkali | 22 Þorgrímur Kári Snævarr 6:00 Ég vakna við að Ína (Mínerva Marteinsdóttir), dóttir mín, ræskir sig blíðlega við hliðina á mér. Hún fær sopa og sér síðan um að skemmta pabba sínum aðeins á meðan ég fæ mér „fyrri“ morg- unmat frammi í borðstofu og les eitthvað skemmtilegt í Sunday Times. Um hálf- sjöleytið fara allir aftur að sofa. 10:30 Þá fer allt á fullt við að búa um og setja í bleyjuvél, morguntónlistin er sett á og við Ína röbbum um Wittgenstein eða Heidegger þar til hún lognast út af. Mamman fer í sturtu og fær sér svo kaffi og brauðsneið og les blöðin. Seinni morg- unverðurinn. Heilög stund. Kisa fær nokkrar strokur. Blóm eru vökvuð. Kannski gefst tími til að svara nokkrum tölvupóstum frá erlendum þýðendum og útgefendum sem eru spenntir yfir nýrri bók og verðlaunum. Alltaf ætla ég mér að uppfæra heimasíðuna en það hefur ekki tekist síðan snemma í haust sem leið. Oft- ast er líka ætlunin að hringja nokkur sím- töl og fara inn á heimabankann en það tekst ekki heldur. Oft kemur einhver í heimsókn og fær kaffi og – ef Ína er vökn- uð og í stuði – nokkur geislandi, tannlaus bros sem japla á berskjölduðum hjörtum. Þvottur er brotinn. 16:45 Matti kemur heim og þótt hann sé ansi upptekinn þessa dagana við að undirbúa tökur á bíómyndinni „Þing- maðurinn“ verður hann eftir með spen- volga brjóstamjólk í pela á meðan mamman skreppur í jóga í Kramhúsinu. Ferskt loft. Ber himinn. Kannski kem ég við í búðinni sem selur ódýr kerti eða kíki inn um nokkra búðarglugga á Laugaveg- inum. 19:00 Fegin að vera komin heim. Matti að elda mat og búinn að kveikja á kertum. Ína varla búin að snerta pelann, sem er gott því þá get ég leyft henni að létta á yfirfullum brjóstum. Matti er nógu góðhjartaður til að hlæja að ódýru Búkollubröndurunum mínum, en mér líður oftast eins og ég hafi fengið vinnu sem mjaltastúlka á þrifalegum sveitabæ og sé jafnframt í hlutverki kýrinnar. Við borðum og horfum svo á einn eða tvo þætti af Tinker, Tailor, Soldier, Spy. Gamlir njósnaþættir með Alec Guinness. Ég botna varla neitt í plottinu en mikið er notalegt að horfa á alla þessa gömlu karla tölta um í rykfrökkunum sínum og tala undir rós um Rússagrýluna. 23:00 Kvöldúlfurinn er mættur. Ína með magapínu, rembist og grætur. Henni líður best liggjandi eins og púma á grein á handlegg pabba síns, en hún sættir sig líka við að vera í fanginu á mér ef ég dansa við hana. Billie Holliday sér um danstónlist- ina. Við Matti skiptumst á að róa barnið en sem betur fer staldrar úlfurinn oftast ekki lengi við. Á meðan Matti er á vakt- inni sest ég kannski með svörtu bókina og skrifa niður eitthvað sem vonandi verður einhvern tíma að einhverju. Það er óþarfi að láta góðar hugmyndir fara til spillis þótt maður eigi að heita í fæðingarorlofi. 1:30 Ína, komin með nátthúfu á koll- inn og bréfbleyju á bossann, launar okkur með því að sofa í fimm tíma. Litla ljósið. Dagur í lífi Guðrúnar Evu Mínervudóttur rithöfundar Guðrún Eva Mínervudóttir hvílist með Ínu dóttur sinni. Eins og mjalta- stúlka á þrifa- legum sveitabæ Tom Brady, hinn sigursæli leikstjórnandi bandaríska ruðningsliðsins New Eng- land Patriots, æfir hér fyr- ir leikinn um Ofurskálina í Indianapolis á sunnu- dagskvöldið en þá mætir lið hans New York Giants í hreinum úrslitaleik NFL- deildarinnar vestra. Reuters Ofurskálin í aðsigi Veröld

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.