SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Side 39

SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Side 39
29. janúar 2012 39 Þarna stóð ég lafmóð og skjálfandi á beinunum ídimmu húsasundi með skerandi vindgnauð ogámátlegt útburðarvæl smjúgandi inn í skelfingulostin eyrun mínu blíðu og ég fálmaði í myrkrinu með kríthvítum höndunum eftir mögulegri útgönguleið. Vondi karlinn, skrímsli líkastur, sem ég hafði runnið und- an á flótta nálgaðist ógnandi og engrar undankomu varð auð- ið. Yfir mig þyrmdi fullkomið varnarleysi og óskaplega sem ég var í hjartanu smá og gott ef vottaði ekki fyrir tári á hvarmi. Allur kraftur þvarr úr hverri titr- andi taug og ég hélt að nú væri komin mín hinsta stund. En þá brá fyrir rauðu leiftri í lofti sem fylgdi hvinur hins fljúgandi manns og áður en ég gat svo mikið sem blikkað auga þá fann ég sterk- an handlegg grípa um mig og skikkjuflaksandi ofurmenni svipti mér á loft eins og hverju öðru fisi og barg mér frá grimmum örlög- um. Á fluginu hallaði ég mér upp að íturvöxnum brjóstkass- anum og naut þess að vera algerlega á hans björgunarvaldi. Karlmennska hans var í slíku ofurmagni að óneitanlega fór nú að renna hraðar í æðum mínum blóðið og vart gat ég beð- ið eftir að fá að smeygja honum úr þessari þröngu rauðu sundskýlu. Ég vissi nákvæmlega hvernig ég ætlaði að flysja utan af honum bláu sokkabuxurnar. Ég ætlaði að hafa hann í hnéháu stígvélunum og blóðlitum möttlinum á meðan ég gæddi mér á honum. En hungraður hugurinn tók skyndilega vinkilbeygju til Leðurblökumannsins af því mig langaði svo til að hafa minn ofurmann grímuklæddan. Hef alltaf verið svo fjandi veik fyrir hverslags grímum og búningum. Súperman vék og við tók maðurinn sem kennir sig við blökurnar leðruðu og hann var nú frekar flinkur að kveikja elda með sínum hálfsvarta haus sem var á góðri siglingu upp eftir lærleggnum. Áður en ég vissi af hafði ég líkamnast í kvenhetjunni Láru Croft og fiðringurinn flaug niður eftir mænunni þegar ég fann fléttuna strjúkast við lendarnar. Leðurblökumaðurinn var ekkert ósáttur við umbreytinguna og ég leyfði byssunum að vera í ólunum sem strengdust yfir lærin, af því ég hafði aldrei áður notið ásta með slíkar græjur í þar til gerðum búnaði. Allt getur gerst í heimi dagdrauma og víst getur hann verið óásættanlegur þessi skortur á ofurhetjum í raunheimum. Hvar eru Súper- mennirnir? ’ Ég vissi nákvæm- lega hvernig ég ætl- aði að flysja ut- an af honum bláu sokkabux- urnar. Stigið í vænginn Kristín Heiða khk@mbl.is Varaforsetinn kom hingað til lands með eiginkonu sinni og dóttur. Þau flugu frá Keflavíkurflugvelli með þyrlu Bandaríkjahers að Bessa- stöðum þar sem Johnson heimsótti Ásgeir Ásgeirsson, forseta Íslands. Þaðan fór hann með fylgdarliði sínu inn til Reykjavíkur til fundar við Ólaf Thors forsætisráðherra. Fór svo úr Stjórnarráðinu og þá gerðist hið óvænta sem setti svip á heimsóknina; það er þegar varaforsetinn klifraði upp á girðinguna á Lækjartorgi og hélt þar stutta ræðu yfir mannfjöldanum. Talaði um atómvopn og afvopnun. Þegar kom svo í Háskólabíó var mikill mannfjöldi þar saman kominn. Þeirra á meðal voru hernámsandstæðingar og í þeirra hópi var Jónas Árnason rithöf- undur sem afhenti forsetanum plagg þar sem herstöðinni á Keflavík- urflugvelli var mótmælt. Allt eru þetta kunnugleg stef úr hinu kalda stríði en vindar þess voru aldrei naprari en á þessum árum. Af diplómatískri kurteisi sagði Johnson að sig langaði aftur að koma til Íslands. Svo varð ekki. Raunar þótti í frásögur færandi hjá erlend- um fréttamiðlum eftir heimsóknina að Johnson hefði farið til Noregs, Finnlands, Svíþjóðar og Danmerkur en Ísland var hvergi nefnt. „Þessi þögn varaforsetans um Ísland er óviðkunnanleg og ókurteis í meira lagi, og hæfir varla þeim innilegum móttökum, sem hann fékk hér,“ sagði Indriði G. Þorsteinsson í Tímanum. – Af Johnson er það svo að segja að tveimur mánuðum eftir Íslandsheimsóknina höguðu örlög málum svo að hann varð forseti Bandaríkjanna þegar Kennedy féll fyrir morðingjahendi í Dallas í Texas. Gegndi Johnson embætti forseta til 1969. Þótti hann sem forseti áorka ýmsu á innlendum vettvangi í Bandaríkjunum en stríðsrekstur í Víetnam bakaði honum hins vegar miklar óvinsældir. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Íslendingar hafa sjaldan fagnað er lend- um gesti jafn innilega og heils hugar og í gær Indriði G. Þorsteinsson. Strong fer með hlutverk sögukonunnar, Mary Alice Young, Metcalfe lék John Rowland, hinn barnunga ástmann Gabrielle Solis, og Henderson Austin McCann, frænda Edie Britt, sem dró bæði dóttur Susan Mayer og Bree Van De Kamp á tálar. Ætli þeir verði jafnfleðulegir í Dallas? Brewster er kunnust fyrir leik sinn í has- armyndunum Fast & Furious og Gonzalo fyrir að hafa verið í sjónvarpsþáttunum Veronica Mars. Dallas er að margra mati best heppnaða sápu- ópera sem gerð hefur verið og fyrir vikið bíða aðdáendur þáttarins með öndina í hálsinum. Stendur framhaldið undir væntingum eða verður það mislukkað? TNT, sem sýna mun þættina, hafði velt því fyrir sér um nokkurt skeið að hleypa Dallas aftur af stokkunum en það var ekki fyrr en húsbændur þar á bæ lásu handrit Cynthiu Cidre að kynningarþætti (e. pilot) að hjólin fóru að snúast. Svo vel líkaði þeim verkið að þátt- urinn var tekinn upp í fyrra. Hann þótti svín- virka og í framhaldinu var hlaðið í níu þætti til viðbótar. Cidre er líklega þekktust fyrir að hafa skrifað handritið að kvikmyndinni The Mambo Kings. „Það er ótrúlega spennandi að sjá gaml- ar og nýjar persónur koma saman í túlkun stórskotaliðs leikara undir handleiðslu hinna gríðarlega hæfileikaríku Cidre og Mikes Robins [leikstjóra]. Við gætum ekki verið ánægðari með nýju þættina,“ segir Michael Wright, aðstoð- arforstjóri TNT. Stór orð. Ætli nýja-Dallas standi undir þeim? Nýja kynslóðin á Southfork: Christopher (Jesse Metcalfe), Rebecca (Julie Gonzalo), John Ross (Josh Hend- erson) og Elena (Jordana Brewster). Frændurnir John Ross og Christopher þykja um margt líkir feðrum sínum. ’ Eftir allt sem á undan er gengið hefðu fáir veðjað á að þau yrðu ennþá saman árið 2012. Fólki sem átti leið um almennings- garð nokkurn í Montara í Kaliforníu á dögunum brá heldur betur í brún þegar snörpum orðaskiptum hundaeiganda og garðvarðar lauk með því að sá síðarnefndi skaut hundaeigandann í bakið. Byssan gaf til allrar hamingju frá sér raf- stuð en ekki blý. Engdist maðurinn um í jörðinni. Garðvörðurinn, kona, stöðvaði manninn, þar sem hundur hans var ekki í ól. Maðurinn ansaði ekki tilmælum hennar og að auki grunaði garðvörðurinn hann um að segja ranglega til nafns. Skipti þá engum togum að hún skaut hann með stuðbyssu sinni. Sjónarvottur segir garðvörðinn ekki hafa gefið manninum neina viðvörun. Málið er nú til rannsóknar hjá þar til bærum aðilum. Skaut hundaeiganda Allir í stuði? Kona í Fitchburg í Massachu- setts og þriggja ára gömul dóttir hennar fengu klums þegar keðjusög var skyndilega beitt á hurð að íbúð þeirra. Stjarfar af skelfingu horfðu þær á gjörning- inn. Þegar hurðin féll var hróp- að: „Leggist á gólfið, þetta er al- ríkislögreglan.“ Mæðgurnar létu ekki segja sér það tvisvar. „Þið farið íbúðavillt, þið farið íbúðavillt,“ hrópaði aumingja konan en var svarað með starandi byssuhlaupi. Eftir japl, jaml og fuður gerði alríkislögreglan (FBI) sér hins vegar grein fyrir því að konan hafði á réttu að standa, meintur fíkniefnasali bjó í næstu íbúð í stigaganginum. FBI hefur beðið mæðgurnar velvirðingar og greitt fyrir skemmdirnar. FBI fór íbúðavillt

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.