SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Síða 12
12 29. janúar 2012
Sunnudagur
Sigurbjörg Þrast-
ardóttir
Maður á kaffihúsi,
forvitinn: Frá Íslandi?
Minns: Já.
Maður, órólegur: Segðu mér
eitt, er það satt sem mér er
sagt … að á áramótunum borði Ís-
lendingar (fölnar upp) … uh, ísúr
eistu af gömlum sveitahrútum??
Minns: Nei, nei, helber þvætt-
ingur!
Maður varpar ön …
Minns: Það er ekki um áramót-
in. Það er núna!
Exit maður.
Ólafur Stephensen
Stefán Björn (7 ára):
Er það satt að Ítalir
fái pasta í þorramat?
Við fáum svið og
hrútspunga. Mér finnst þetta
ósanngjarnt!
Miðvikudagur
Örn Úlfar Sævarsson
Viðburðaríkur janúar
að baki. Það hefði nú
mátt gera heilt Skaup
um þennan iðnaðar-
saltaða kadmíummengaða ofsa-
veðursmánuð með lekandi brjósta-
púða og Landsdómsrugli
Fésbók
vikunnar flett
Snertiskjáinn er með helstu uppfinn-
ingum síðustu áratuga, eins og allir
þekkja sem á annað borð hafa prófað
slíkt, hvort sem það er í farsíma,
spjaldtölvu, lestölvu eða einhverju
öðru apparati. Það er þó ekki eintóm
hamingja að hafa slíkt við höndina,
eins og þeir þekkja sem svara vilja í
símann í rigningu eða kulda.
Framleiðendur hafa brugðist við
þessu á ýmsa vegu, enda skiptir það
miklu um notagildið, ekki síst ef um
er að ræða síma sem á að vera hægt
að nota í útvistarævintýri. Símann
sem getið er hér til hliðar er hægt að
nota við flest skilyrði, þar með talið í
raka, en það eru fleir símar brúklegir
við slíkar aðstæður, til að mynda Sony
Ericsson Xperia active, sem er prýðis-
sími, en líka hampa menn ytra Mot-
orola DEFY+, sem ekki hefur fengist
hér að ég best veit.
Önnur leið er að fá sér vettlinga og
það ekki venjulega vettlinga heldur
vettlinga sem sérsniðnir eru fyrir
snertiskjái, alla jafna með sérstaka
fingurgóma.
Samsung Galaxy Xcover stenst svo-
nefndan IP-67 staðal, en 6 í þessu sam-
bandi þýðir að hann er algerlega rykv-
arinn og 7 að hann þolir að vera að
minnsta kosti hálftíma í 1 metra djúpu
vatni. Að auki er glerið í honum sér-
staklega styrkt Gorilla Glass sem þolir
högg og rispur.
Eins og getið er er skjárinn,
sem er 3,65", með sér-
styrktu gleri og rispuþolinn,
en er fyrir vikið ekkert til að
hrópa húrra yfir; upplausnin á
honum er ekki nema 320 x
480 dílar og skjáupplausn því
ekki nema 158 dílar á
tommu. Til samburðar er
Samsung Galaxy S2, sem
er náttúrlega mun dýrari og
viðkvæmari sími, með 217
ppi.
Stýrikerfið á símanum er
Android 2.3.4 Gingerbread
með TouchWiz-notendaskil-
unum frá Samsung. Örgjörv-
inn er 800 MHz Marvell
MG2 og knýr símann vel,
fannst mér; hann er með
fína svörun, en verður
stirður ef það er of mikið í
gangi. Myndavélin er ekki
nema þokkaleg, 3,2 milljóna
díla með LED-flassi sem líka
má nota sem vasaljós.
Bakið á símanum er skrúf-
að á til að tryggja að það
sé vatnshelt, og tengi-
raufar á símanum, fyrir
heyrnartól og USB-hlæðslu
eða snúru, vel lokaðar.
Rauf fyrir minniskortið er
undir rafhlöðunni og því
ekki hægt að setja það í
eða taka úr nema með því að
skrúfa bakið af. Hljóðneminn er
mjög fínn og eins hátalarinn í símanum.
Hátæknihörkutól
Snjallsímar eru til margra hluta nytsamlegir, en þeir henta illa til að reka niður
tjaldhæla eða brjóta svellbungur. Til eru þó snjallsímar sem eru traustari en
gengur og gerist, nefni sem dæmi ryk- og rakavarinn Samsung Galaxy Xcover.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Snertiskjárvandi
Varúð:
Blautir fingur