SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Qupperneq 21

SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Qupperneq 21
29. janúar 2012 21 samband við Júpiter og sagt, hvernig væri ástatt hjá okkur,“ sagði Kristján. „Var þá skotið línu frá okkur, sem heppnaðist í fyrstu tilraun, og drógum við gúmmíbjörgunarbát yfir til okkar, og höfðu skipverjar á Júpiter sett línu í bát- inn, sem þeir ætluðu að draga okkur á yf- ir til sín á eftir.“ Kristján virðist ekki hafa nefnt við sjóprófin að það var hann sjálf- ur sem vann hið mikla afrek að skjóta línunni á milli skipanna. „Þegar allir mennirnir voru komnir um borð í bátinn, gáfum við merki um að þeir mættu draga okkur yfir, en þá hafði taugin festst í skrúfu Elliða, sem kom af og til upp úr sjónum, og gátum við ekki losað hana og urðum við því að skera hana frá okkur,“ segir skipstjórinn. Birgir segir að snarræði Halls báts- manns hafi komið í veg fyrir að illa færi því hann hafi náð að ýta gúmmíbátnum með handafli frá togaranum. Hallur, sem nú er látinn, sagði svo frá í viðtali við Fiskifréttir árið 2007: „Ég stóð í opi björgunarbátsins, sem við fengum frá Júpiter, og hélt í línuna sem bundin var við Elliða. Ég átti að passa að bátinn ræki ekki frá. Kristján [skipstjóri] var þá einn eftir um borð. Ég var svo loppinn á höndunum að línan rann úr greipum mér. Kristján kom að í þessu og hann halaði inn línuna og henti henni til mín. Ég dró bátinn að Elliða og Kristján stökk í hann. Síðan sleppti ég línunni. Taugin sem Júpitersmenn höfðu bundið í gúm- bátinn til að draga hann til baka var föst í skrúfu Elliða og við drógumst aftur með skipinu og undir það því skrúfan stóð upp úr sjó. Ég var mest hræddur að við fengjum skrúfuna og skipið í hausinn þegar það sykki. Ég opnaði vasahnífinn minn með krókloppnum höndum, skar á taugina til að losa bátinn og ýtti honum frá. Þegar Elliði sökk sneri op bátsins frá Júpiter en ég horfði beint út í svart myrkrið. Ég fékk skyndilega þá sér- kennilegu tilfinningu að ég væri einn í veröldinni.“ Allir voru komnir í björgunarbátinn um það bil 20 mínútum fyrir klukkan tíu og fáeinum mínútum síðar var Elliði sokkinn; fimm til tíu mínútur liðu, sagði Kristján skipstjóri við sjóprófin. Klukkan ellefu, eftir hátt í klukku- stund í björgunarbátnum, voru allir skipverjarnir af Elliða komnir um borð í Júpiter. Fjöldi skipa og báta tók þátt í björg- unarstarfinu. Þegar ljóst var að næðist að bjarga áhöfn Elliða yfir í Júpiter fóru öll önnur skip að leita að gúmmíbátnum sem vitað var að Egill og Hólmar voru í. Það var ekki fyrr en um hádegi á sunnudag að flugvél Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli sá björgunarbátinn og voru þá mennirnir báðir látnir. Varð- skipið Óðinn kom á staðinn og voru líkin færð um borð í það. Til stóð að Óðinn sigldi með áhöfn Ell- iða til Reykjavíkur, en vegna veðurs var ekki hægt að flytja menn á milli skipa og varð því úr að Júpiter sigldi með skip- brotsmennina til höfuðborgarinnar og var komið að landi að kvöldi sunnudags. Vert er að geta þess að félagsskapurinn Hafliði SI2, sem nefndur var eftir sam- nefndum síðutogara, var stofnaður fyrir fáeinum árum af gömlum jöxlum sem voru á honum. Helsti tilgangurinn var að safna fé til smíði líkans af Hafliða og það tókst. Var líkanið afhent FÁUM - Félagi áhugamanna um minjasöfn á Siglufirði – á Síldarævintýrinu þar í bæ árið 2008. Í framhaldinu var ákveðið að ráðast í smíði líkans af Elliða líka og nú hillir undir að því verki ljúki. „Enginn af ný- sköpunartogurunum siglir nú um höfin blá og teljum við Hafliðamenn minningu þeirra og kallanna sem mönnuðu þá alls ekki haldið á lofti sem skyldi,“ segir á heimasíðu Hafliðafélagsins, þar sem allar nánari upplýsingar má sjá. www.si2.is/sofnun Egill Steingrímsson og Hólmar Frímannsson voru jarðsungnir frá Siglufjarðarkirkju þriðjudaginn 20. febrúar. Aldrei höfðu fleiri verið við- staddir jarðarför áður í kirkjunni. Skipsfélagar þeirra af Elliða báru kisturnar í kirkju og stóðu þar heiðursvörð meðan athöfnin fór fram. Bræður um borð: Rögnvaldur vélstjóri, Kristján skipstjóri og Jón matsveinn, Rögnvaldssynir. Hluti áhafnar Elliða SI eftir að Júpíter kom með mannskapinn að landi í Reykjavík. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Þrír úr áhöfn Elliða, Sigurjón Björnsson Matthías Jóhannsson og Rögnvaldur Rögnvaldsson. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Ljósmynd/Hannes P. Baldvinsson Ljósmynd/Hannes P. Baldvinsson

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.