SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Side 43

SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Side 43
29. janúar 2012 43 Fyrir stuttu kom út bókin List-gildi samtímans - Handbók umsamtímalist á Íslandi eftir JónB.K. Ransu. Í kynningu á bók- inni segir meðal annars að í henni sé ís- lensk myndlist á okkar tímum skoðuð í ljósi alþjóðlegra kenninga um list. Þar kemur einnig fram að ekki sé um list- söguleg skrif að ræða heldur sé Ransu að fjalla um listgildið og það hvernig við metum hluti og gefum þeim merkingu sem list. Að þessu sögðu segir Ransu að þó bókin sé handbók þá sé hún ekki ætluð þeim sem ekkert viti um list, hann geri ráð fyrir því að lesandinn hafi einhverja nasasjón af list. „Það má lýsa því svo, að ég sé að reyna að skýra litsgildi samtímans miðað við eldri list og hvernig við horfum á hana öðruvísi í dag og hvaða mælikvarða við notum. Sá fagurfræðilegi mælikvarði sem menn studdust við áður, þegar fagurlist- irnar voru ráðandi og módernisminn byggist líka á, er ekki lengur gildur og við skoðum samtímalist út frá þremur þátt- um, hugmyndafræði markaðsfræði og fagurfræði; hugmyndafræðin er það sem gefur verki merkingu, markaðsfræðin gefur því verðmæti og staðsetur í sam- tímalistasögunni og fagurfræðin er myndmálið og það sem listamaðurinn notar til að miðla listaverkinu til annarra. Í bókinni skoða ég þessa þrjá þætti og hvernig þeir birtast í íslenskri samtímalist síðustu ára.“ Flakkað fram og aftur í tíma Ransu segist flakka fram og aftur í tíma í umfjöllun sinni, hann láti kenningarnar ráða en ekki tímann. Elstu verk sem hann tekur fyrir eru verk á sýningu Ívars Val- garðssonar á Kjarvalsstöðum og Finnboga Péturssonar í Nýlistasafninu 1988 og síðan nær umfjöllun hans fram á okkar daga þar sem hann setur meðal annars verk eftir Ragn- ar Kjartansson í kenn- ingalegt samhengi. „Sem dæmi get ég nefnt að ég ræði um verk Finnboga í sam- hengi við fagurfræði, um hið háleita, og ræði það í samhengi við tæknirómantík þar sem við sjáum hið háleita í tækninni en ekki í nátt- úrunni, og verk Ívars, sem sýndi bygging- arvörur úr Byko, ræði ég út frá hugmynda- fræðinni og spurningunni um hvað sé list. Annað dæmi sem ég ræði er það að bera saman mynd af Þingvöllum eftir Jóhannes Kjarval við skipti sem Einar Garibaldi stal á Þingvöllum. Við horfum á verk Kjarvals með gleraugum fagurfræðinnar en getum ekki notað þau gleraugu á verk Einars Garibaldis.“ Ransu segist hafa skrifað bókina vegna þess að honum fannst brýn þörf á að slík bók væri til og hann segist í raun ekki skilja af hverju einhver var ekki búinn að skifa svona bók fyrir löngu. „Ég bara reið á vaðið og stal tíma frá öðrum verkefnum; þegar ég átti að vera að gera eitthvað ann- að þá fór ég að skrifa frekar, þannig að þetta hefur tekið dágóðan tíma, sennilega þrjú ár þó þetta sé ekki stór og mikil bók.“ Gamalt bókverk úr gömlum kassa Listgildi samtímans er til sýnis og sölu á markaðnum sem getið er um hér til hlið- ar, en þar verður einnig bókverk eftir Ransu sem hann segist hafa dregið upp úr gömlum kassa. „Þetta er gamalt bókverk sem heitir Teikningar og er frá því ég sýndi fyrst hér á landi í Nýlistasafninu. Þá var ég með átta málverk sem hétu Composition 1-8, málverk á striga en í A4- stílabókastærð og voru í raun stílabækur og reikn- ingsbækur, má kalla það poppmínimalisma. Ég hafði þetta bókverk með, fann til ólíkar stílabækur og reikningsblöð og nótnablöð og ýmislegt og blandaði því saman í bók þar sem hver síða var ólík, svona eins og fundnar teikningar, en ég hef ekki verið að flagga þessu mikið hér heima, var aðallega með þetta úti í Hollandi,“ segir Ransu en hann stundaði nám í Akademie voor Beeldende Kunst í Enschede í Hollandi og útskrifaðist þaðan 1995. Ransu hefur ekki gert mikið af bókverk- um, en segist þó hafa fengist aðeins við það í myndlistarnáminu á sínum tíma, „var að leika mér með einhverja stafi og búa til geómetríu úr þeim, en í seinni tíð hef ég skrifað stafi sem mynda setningar og segja einhver orð,“ segir hann og hlær við. Aðspurður hvort það sé aðallega fólk í myndlistarnámi sem spreyti sig á bók- verkum segir hann að eflaust sé allur gangur á því, „en ég get trúað því að nem- endur geri margir hverjir einhver bók- verk, enda er fólk oft að skoða hluti á þeim tíma og velta fyrir sér hlutverki þeirra og hvernig megi nýta formið. Listamenn spyrja gjarnan hvað list sé og það er ekki óeðlilegt að spyrja þessarar sömu spurn- ingar um bók.“ Jón B.K. Ransu skrifaði bók um Listgildi samtímans vegna þess að honum fannst brýn þörf á að slík bók væri til. Morgunblaðið/Sigurgeir S. ’ Við horfum á verk Kjarvals með gleraugum fagurfræðinnar en getum ekki notað þau gleraugu á verk Einars Garibaldis. Listgildi íslenskrar samtímalistar skoðað an texta og klippur úr bókum í verk sín. Hún hefur þannig unnið fjölmörg bókverk og líka gefið út það sem kalla má mynd- listarbók, bók með myndum af bókverk- um hennar. Sú bók, sem heitir SemSé, er gefin út í 100 eintökum og árituð og núm- eruð - bók um bókverk sem er bókverk í fjölfeldi.“ Margrét segir að stundum verði mörkin milli bókar og bókverks óskýr og nefnir að fyrirhugaður gjörningur Katrínar I. Jóns- dóttur Hjördísardóttur, sem fluttur verð- ur í dag og á sunnudag kl. 14, muni enn rugla menn í ríminu, „en í honum vinnur hún með bók sem gefin var út í tengslum við sýninguna Sjónarmið - Á mótum myndlistar og heimspeki sem haldin var í Listasafni Reykjavíkur síðastliðið haust. Það má segja að í gjörningnum sé hún að breyta bók um myndlist í myndlist og breytir bókinni í bókverk um leið.“ Af öðrum verkum sem sýnd verða og seld nefnir Margrét verk og bækur eftir Hlyn Hallsson, Hörpu Árnadóttur, Ransú, sem á þar bók um myndlist og bókverk, Birgi Snæbjörn Birgisson, verk sem Daði Guðbjörnsson vann með Kees Visser, og Helga Þorgils Friðjónsson meðal annarra. Morgunblaðið/RAX ’ Mörg bókverk segja sögu viðkomandi listamanns, sér- staklega hjá þeim lista- mönnum þar sem bókverk- ið er nánast eins og skissubók hugmynda.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.