Monitor - 22.03.2012, Síða 3
FYRIR ÍSLENDINGA
Monitor mælir með því að fólk fari
að ráðum forsíðufyrirsætunnar og
auki orðaforða sinn með því að lesa
íslenskar bókmenntir. Það er um að
gera að vera með eina góða bók á
náttborðinu sem hægt er að glugga
í fyrir svefn. Ekki skemmir fyrir hve
þægilegt það er að þreyta sig fyrir
svefninn með lestri.
Í GOGGINN
Það getur verið svo gaman að borða
og því hættir mönnum til að vera
alltaf að narta í eitthvað.
Ef þú ert einn af
þeim, þá mælir
Monitor
með að
fólk narti í
hnetumix
sem hægt
er að fá frá
ýmsum framleið-
endum í hinum ýmsu matvöruversl-
unum. Hneturnar eru fínn nartkost-
ur en þær innihalda töluvert hollari
fi tu en til að mynda súkkulaði.
FYRIR FÓTBOLTAFRÍK
Það er alltaf gaman af því þegar
metnaðarfullar íslenskar vefsíður
eru settar á laggirnar. Um síðast-
liðna helgi fór heimasíðan 433.
is í loftið sem tekur á öllu sem
viðkemur fótbolta. Monitor mælir
með því að fótboltaáhugamenn gefi
þessari síðu gaum um næstkomandi
boltahelgi.
Í dag kemur út 100. tölublað Monitor í vikuútgáfu en um leið eru 2 ár liðin
frá fyrsta vikublaðinu. Hve oft hefur þá Monitor ekki komið út á þeim tíma?
fyrst&fremst
Saga Sig
so ANGRY
right now, my
gay friends are
being attacked
on the streets
of London just because they
are gay, what is wrong with
people!!!!!!! 21. mars kl. 14:00
„Þegar við fórum að skoða hvaða
málefni í kringum okkur við
gætum styrkt leist okkur að lokum
best á Kraft. Það er sem sé styrkt-
arfélag fyrir ungt fólk sem greinist
með krabbamein og aðstandendur
þess. Krabbamein er eitthvað sem
fl estir kannast við úr sínu lífi , hvort
sem um er að ræða nána ættingja
eða ekki, svo við tengdum við það,“
segir Anna Lísa Ríkharðsdóttir sem
ásamt þremur bekkjarsystrum
sínum í tómstunda- og félagsmála-
fræði stendur fyrir styrktartón-
leikum annað kvöld. Bekkjarsystur
Önnu eru þær Ásta Þórðardóttir, Sandra Dís
Káradóttir og Sunna Árnadóttir. „Við erum í
kúrs í skólanum sem heitir viðburðastjórnun og
fengum það verkefni að halda alvöruviðburð.
Úr varð að við ákváðum að halda styrktartón-
leika en það var í raun alveg valfrjálst hversu
stóran viðburð við héldum, það hefði þess
vegna mátt vera afmælisveisla. Með tónleik-
unum viljum við ekki bara safna pening til að
styrkja félagið heldur einnig hvetja fólk til að
kynna sér starfsemi styrktarfélagsins, til dæmis
með því að fara inn á heimasíðu þess.“
Allur ágóði til Krafts
Tónleikarnir fara fram á Faktorý annað kvöld
og opnar húsið klukkan
22:00. „Faktorý var í
raun fyrsti staðurinn
sem okkur datt í hug fyrir svona
viðburð. Þegar við settum okkur í
samband við eigendur staðarins
voru þeir allir af góðum vilja gerðir
og þeir styrkja okkur algjörlega
í þessu. Yfi rleitt þarf að leggja til
kostnað fyrir tæknimann á svona
tónleikum en þeir ákváðu að fella
þann kostnað niður. Niðurstaðan
er því að allir sem að þessu koma
eru að gefa vinnuna sína svo
hver einasta króna sem skilar sér
inn rennur beint til Krafts,“ segir
Anna og ítrekar að þær stöllur hafi
fundið fyrir virkilega góðum við-
brögðum frá fólkinu í kringum sig. „Við höfum
fengið ótrúlega jákvæð viðbrögð svo það stefnir
í gott djamm. Raftónlistarmaðurinn Viktor
Birgiss opnar kvöldið, í kjölfarið stíga Úlfur
Úlfur á stokk, þar á eftir For a Minor Refl ection
og svo slúttar Sykur þessu. Þetta verður mikið
húllumhæ.“ elg
Mynd/Golli
ÞAÐ ER KRAFTUR Í
ÞESSUM KVARTETT
ANNA LÍSA Á 30 SEKÚNDUM
Fyrstu sex: 270288.
Námsstaða: Tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ.
Uppáhaldsmatur: Jólamatur.
Uppáhaldsstaður í heiminum: Los Angeles, ég var
þar í síðustu viku.
Uppáhaldstónlistarmaður: Adele.
Bíómynd sem ég get horft á aftur og aftur: Titanic.
Anna Lísa og félagar í tómstunda- og félagsmálafræði standa fyrir góð-
gerðatónleikabombu annað kvöld til styrktar stuðningsfélaginu Krafti
Þetta verður húllumhæ
Vikan á
Jóhann Alfreð
Kristinsson
Það skyggði
víst aðeins á
gleðina við
fæðingu 5 millj-
ónasta norðmannsins að allar
silfurskeiðar eru nú uppseldar í
landinu. 20. mars kl. 13:28
Jóhanna Guð-
rún Jónsdóttir
Æðislegt vídjó.
Við komumst
langt í ár, alveg
viss um það ! :)
19. mars kl. 19:31
Margrét Erla
Maack
Sirkúsar sig upp
á laugardegi.
Silfurspandex
og gullvængir.
Photos coming soon.
17. mars kl. 14:21
MONITOR MÆLIR MEÐ...
MONITOR@MONITOR.IS Ritstjóri: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Þórhildur Þorkelsdóttir (thorhildur@monitor.is) Umbrot: Monitorstaðir
Auglýsingar: Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.is) Forsíða: Ernir Eyjólfsson (ernir@ernire.is)
Myndvinnsla: Ingólfur Guðmundsson Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569 1136
Efst í huga Monitor
Rafmagnaðar
Það hafði bætt verulega í snjókomuna þegar við settumst
niður í anddyri Morgunblaðshússins
til að bíða eftir gestinum okkar.
Það var sunnudagur og því enginn í
móttökunni svo við þurftum að búa
til okkar eigin móttökunefnd. Við
höfðum gætt þess að baða okkur,
greiða hárið fallega og á boðstóln-
um var bakkelsi og kaffi .
Klukkan nálgaðist tvö þennan eftirmiðdaginn og spennan
jókst með hverju andartaki. Við
vorum farnir að stara óvenju mikið
á hringtorgið við Hádegismóana
til að fylgjast með umferð bílanna.
„Þetta hlýtur að vera hún,“ sögðum
við annað slagið þegar okkur
fannst einstakir bílar skera sig úr
fjöldanum. En þegar jepplingur
með TAXI-skilti á toppnum keyrði
löturhægt inn í hringtorgið eins og
eitthvað brothætt væri í bílnum þá
var ágiskunarleiknum lokið. Það
fór ekki á milli mála að þar var á
ferðinni frú Vigdís Finnbogadóttir.
Fyrir tveimur árum fór Monitor að koma út vikulega og síðan þá
hafa komið út 100 tölublöð. Tvöföld
ánægja segja sumir, tvöföld ástæða
til að fagna. Okkur Monitor-liðum
langaði að fá einhvern með ákafl ega
sterkan persónuleika til að prýða
forsíðuna þessa vikuna og vorum
við frá upphafi sammála um að
það væri bara ein manneskja sem
kæmi til greina. Okkur langaði að
fagna okkar jákvæðu blaðamennsku
með því að fá holdgerving kærleika
og alls hins góða til að sitja fyrir
svörum og á myndum.
Til að gera langa sögu stutta þá eyddum við hér fi mm klukku-
stundum með þessum fyrsta þjóð-
kjörna kvenforseta heimsins. Vigdís
fór í förðun, hárgreiðslu, myndatöku
og spjall og gæddi sér á vínarbrauði
og kaffi . Við vorum í skýjunum með
daginn. Í raun hefðum við viljað
eiga heila viku með Vigdísi því
frá henni streymdi fróðleikurinn,
húmorinn og auðmýktin og allt
var þetta framreitt af hógværð og
virðingu. Vigdís kenndi okkur að
senda „rafmagnaðar stuðkveðjur“
og hrósaði okkur fyrir fagmannleg
vinnubrögð. Það hrós var á við tólf
þúsund gallon af bensíni, það er
að segja ef vinnubrögð væru bíll og
hrós væri orkan.
Takk fyrir okkur, Vigdís. Þú ert alltaf velkomin í heimsókn.
Jón Ragnar
stuðkveðjur
ELGURINN, HIMMI,
VIGGA OG JOHNNY
SYKUR
ÚLFUR ÚLFUR
FOR A MINOR REFLECTIONVIKTOR BIRGISS
Greta Salóme
Stefánsdóttir
THANK YOU
Hannes Þór
Halldórsson
and Sagafilm
for directing and making the
video! You all really did an
amazing job!! 17. mars kl. 14:21
3 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2012 MONITOR