Monitor - 22.03.2012, Síða 6
6 MONITOR FIMMTUDAGUR 22. MARS 2012
Hvers vegna tókuð þið þátt? Það var bara eitthvað „thing“ í þá daga. Allir
sem voru að gera tónlist tóku þátt í Músíktilraunum. Af því að við vorum frá
Sauðárkróki þá langaði okkur að fara suður og spila og þetta var auðveld leið
til að fara suður til Reykjavíkur og spila tónlist.
Voruð þið aðalgaurarnir á Sauðárkróki? Nei, það vissi eiginlega enginn af
okkur. Við höfðum bara spilað einu sinni eða eitthvað.
Hvaða þýðingu hafði sigurinn? Þetta sýndi okkur að þetta var alveg hægt.
Eins fáránleg hugmynd og þetta var upphafl ega, þessi blanda að rappa yfi r
lifandi tónlist, þá var auðvitað snilld að vinna Músíktilraunir 5 mánuðum
seinna.
Fóruð þið strax í hljóðver? Við fórum í Tankinn og tókum upp tvö lög og svo
sömdum við eitt lag þar sem Mugison hálfpartinn leikstýrði. Það var mjög
gaman.
Er mikilvægt að afmá Músíktilraunastimpilinn eða er hann borinn með
stolti? Hann er borinn með stolti fyrstu mánuðina. En maður vill alltaf verða
eitthvað meira en bara bandið sem vann Músíktilraunir. Ef maður horfi r til
að mynda á Agent Fresco þá hefur þeim tekist að gera svo ótrúlega margt
síðan þeir unnu svo það hugsar enginn „hey, þetta er bandið sem vann
Músíktilraunir.“ Okkur tókst það í raun aldrei enda hættum við
frekar snemma. Stimpillinn var bara of þungur kross að bera
(hlær). En mér fi nnst mjög þægilegt að vera að ná einhverjum
árangri án þess að vera með stimpilinn á mér.
Hvar værir þú í dag ef þú hefðir ekki tekið þátt? Ég væri
vonandi á nákvæmlega sama stað og ég er í dag. Mér líður
mjög vel.
OMAM unnu Músíktilraunir og eru komin með plötu-
samning hjá Universal. Hvenær fáið þið plötusamning
hjá Universal? Ég veit það ekki. Þegar við förum að
rappa á ensku og um peninga.
Hvaða ráð hefur þú fyrir þá sem keppa í ár? Ef þú
vinnur ekki, ekki hætta. Ef þú vinnur þá er eins gott að
þú haldir áfram. Það er ekkert leiðinlegra en að vera
bandið sem vann Músíktilraunir en gerði síðan ekki
rassgat. Auðvitað er margt leiðinlegra en þú veist
hvað ég á við. jrj
Væri líklega í ræsinu
Hvers vegna tókuð þið þátt? Við tókum þátt til að fá að leggj‘ann. Það hefur ekki
liðið það hálfdægri að menn hafi ekki dýpt honum. Það er búið að rjúka úr draslinu
á okkur félögunum síðan. En svo var mönnum auðvitað mjög umhugað um að
peppa rapp á íslensku.
Hvaða þýðingu hafði sigurinn? Hann gerði það að verkum að við fengum geð-
veika athygli, það kom alvara í þetta og við fórum „all-in“ í þetta. Þetta hafði
verið lausara í reipunum fram að þessu en metnaðurinn jókst mjög mikið við
sigurinn því hann var mikil hvatning.
Er mikilvægt að afmá Músíktilraunastimpilinn eða er hann borinn með
stolti? Stimpillinn er eins og „V.S.O.P“ á lambakjötinu. Hann þýðir bara að þetta
sé „good shit.“ Sérstaklega var þetta góður stimpill af því að við vorum fyrsta rapphljóm-
sveitin sem vann keppnina. Svo er það bara undir sigurvegurunum komið hvort þeir
haldi áfram og geri eitthvað meira en bara vinna keppnina. Ég og félagar mínir í Rottweiler
höfum síðan við unnum keppnina unnið nánast fl estöll verðlaun í íslenskri tónlist. Þannig
að þetta er frábær stökkpallur fyrir tónlistarmenn inn í íslenska tónlistarheiminn.
Hvar værir þú í dag ef þú hefðir ekki tekið þátt? Ég væri örugglega í ræsinu. Ég væri
örugglega í vændi, viðskiptafræði, vímuefnum eða einhverju álíka ógeði.
OMAM unnu Músíktilraunir og eru komin með plötusamning hjá Uni-
versal. Hvenær fáið þið plötusamning hjá Universal? Það
gerist þegar íbúafjöldi á Íslandi fer að tikka í 30 milljónir því
við munum auðvitað alltaf rappa á íslensku.
Hvaða ráð hefur þú fyrir þá sem keppa í ár? Þetta verður
að vera skemmtilegt allan tímann. Ef þú getur byrjað að lifa
á þessu þá ertu að lifa drauminn, fyrir utan það auðvitað
að þú munt örugglega fá meira borgað ef það sést að þér
fi nnist þetta skemmtilegt. Svo er gott ráð að gefa ekki
„dick“ um hvað öðrum fi nnst.
jrj
Um helgina fara fram undanúrslitakvöldin fyrir Músíktilraunir þar sem 48 hljómsveitir og lista-
menn stíga á svið. Til að hita upp fyrir herlegheitin tók Monitor púlsinn á gömlum sigurvegurum.
Tilraunir sem gengu upp
Erpur Eyvindarson
Sigursveit: XXX Rottweiler hundar.
Sigurár: 2000.
í dag: Blaz Roca.Á TOPPNUM EINS OG
KVENNADEILD BREIÐABLIKS
Hætti við leiklistina
Hvers vegna tókuð þið þátt? Strákarnir ákváðu að gera þetta áður en ég kom
í hljómsveitina. Agent Fresco var fyrst „instrumental“ hljómsveit en Boggi,
sem var bassaleikari, sendi mér email tveimur vikum fyrir Músíktilraunir þar
sem hann segir: „heyjó, við þurfum fl ippaðan frontmann. Ertu í stuði?“ og
sendi mér demo. Mér fannst þetta svo fl ott að ég sagði bara: „Já klárlega.“
Við vorum allir saman í FÍH en þeir höfðu aldrei heyrt mig syngja og ég hafði
ekki heyrt í þeim spila á hljóðfærin sín. Ég þurfti svo að bæta við söng ofan á
lögin þeirra.
Hvaða þýðingu hafði sigurinn? Við hefðum aldrei hist og stofnað
hljómsveitina ef keppnin væri ekki til. Ég var kominn inn
í leiklistarskóla í Danmörku og ætlaði þangað aftur um
haustið en ég hætti við til að vera með bandinu. Þetta í
raun breytti lífi mínu.
Er mikilvægt að afmá Músíktilraunastimpilinn
eða er hann borinn með stolti? Hann er borinn
með stolti. Það er svo mikið af ótrúlega góðum
hljómsveitum sem hafa stigið sín fyrstu skref þar,
Mínus, Múm, Of Monsters and Men, Mammút, Úlf-
ur Úlfur varð til út frá Bróður Svartúlfs, XXX og
Jónsi í Sigurrós. Þetta er ótrúlegur listi. Titillinn
verður líka til þess að maður vill spila á fullu og
sýna að maður eigi hann skilið.
OMAM unnu Músíktilraunir og eru komin með
plötusamning hjá Universal. Hvenær fáið þið
plötusamning hjá Universal? Það er spurning
hvort slíkt fyrirtæki væri gott fyrir Agent
Fresco. Við erum með öðruvísi hljóm. Ég dýrka
krakkana í OMAM og þau eru með þennan
hljóm sem er viðurkenndur í dag. Þetta eru
líka svo grípandi lög og þau munu án efa slá í gegn. Við munum örugglega
halda áfram að taka skítatúra út um allt. En það er margt sem er hægt að gera
sjálfur. Platan okkar kemur út núna í maí í Þýskalandi og fl eiri löndum í Mið-
Evrópu og það erum við sjálfi r sem gefum hana út. Svo þetta á að vera hægt
upp á eigin spýtur líka.
Hvaða ráð hefur þú fyrir þá sem keppa í ár? Njótið augnabliksins. Takið
fjórar til fi mm sekúndur til að njóta þess að vera á fl ottu sviði og vera hluti af
einhverju sem hægt er að vera stoltur af. Það er ekki á hverjum degi sem það
er fullt hús af fólki að horfa á þig og hlusta. jrj
AGENTINN Í SÍNU
GAMLA FORMI
Arnór Dan Arnarson
Sigursveit: Agent Fresco.
Sigurár: 2008.
Sveit í dag: Agent Fresco.
HVAÐ ERU
VÖRUBRETTIN MÖRG?
Stimpillinn var of þungur kross að bera
Arnar Freyr Frostason
Sigursveit: Bróðir Svartúlfs.
Sigurár: 2009.
Sveit í dag: Úlfur Úlfur.