Morgunblaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fyrsti hópur þýskra veiðimanna sem kemur gagngert til Íslands í sumar til að veiða á sjóstöng er væntanlegur í næstu viku. Draumur þeirra flestra er eflaust að koma að landi með stór- lúðu, en hængur er á, því frá síðustu áramótum skal sleppa allri lífvæn- legri lúðu aftur í sjóinn. Hjá Hafrannsóknastofnuninni fást þær upplýsingar að lúða sem veiðist á sjóstöng eigi yfirleitt góða lífsmögu- leika. Þar á bæ er í undirbúningi að fá veiðimennina til liðs við stofnunina og þeir merki lúður sem veiðast áður en þeim er sleppt. Þannig gætu þeir gert allt í senn; veitt sér til ánægju, merkt í þágu vísindanna, myndað fyrir minningabankann og sleppt fiskinum til uppbyggingar stofninum. Mikilvæg útgerð á Vestfjörðum Árið 2009 var áætlað að þessi ferðaútvegur hefði skilað um einum milljarði í þjóðarbúið og skapað yfir 30 störf á Vestfjörðum. Auk fyrir- tækja fyrir vestan skapa ferðirnar tekjur fyrir flugfélög, hótel og fleiri aðila á Suðvesturhorninu. Fyrirtækið Hvíldarklettur gerir út 22 báta frá Suðureyri og Flateyri. Tvö önnur fyr- irtæki eru með slíkan rekstur á Vest- fjörðum, m.a. í Súðavík, Bolungarvík og Tálknafirði. Gisting á stöðunum er hluti af pakkanum sem erlendu veiði- mennirnir kaupa, yfirleitt er um viku- ferðir að ræða. Jón Svanberg Hjartarson, fram- kvæmdastjóri Hvíldarkletts, segir að sumarið líti ágætlega út. Bakslag hafi komið í ferðamannastrauminn fyrir þremur árum í kjölfar hrunsins, en markaðurinn sé hægt og bítandi að taka við sér á ný. Jón segir að undan- farin ár hafi um tvö þúsund erlendir ferðamenn komið að meðaltali hingað til lands til að stunda sjóstangaveiðar frá Vestfjörðum. Flestir frá Þýska- landi, en einnig frá Austurríki, Pól- landi, Hollandi og Svíþjóð svo dæmi séu tekin. Getur ógnað starfseminni „Helsta áhyggjuefni okkar er reglugerðin um bann við beinum lúðuveiðum sem gefin var út um ára- mót og krafan um að sleppa allri líf- vænlegri lúðu,“ segir Jón. „Við eigum í harðri samkeppni við ferðaþjónustu í Norður-Noregi og þar eru engar slíkar hömlur. Við höfum fengið margar fyrirspurnir um hvað þessi reglugerð þýði og hún eykur óvissu meðal veiðimanna. Reglugerðin getur ógnað starfseminni. Fyrirtækin hafa reynt að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðuneytið og reynt að ná tali af ráðherra. Við höfum meðal annars bent á að í fyrra veiddist eng- in stórlúða, en hugsanlega nokkrar smálúður. Fyrir tveimur árum veidd- ust tvær verulega stórar lúður og ein af millistærð. Varla geta þessar veið- ar raskað öryggi stofnsins, en við höf- um fengið þau skilaboð að reglugerð- inni verði ekki breytt.“ Jón segist hafa skilning á að bann- að sé að stunda beinar lúðuveiðar, en ekki sé um neitt slíkt að ræða á sjó- stönginni. Komi lúða á krókana sé hún oft hálfdauð þegar hún kemur upp á yfirborðið eftir kannski tveggja tíma baráttu. Hann telji til lítils að skera á tauminn og sleppa lúðunni þannig með krókinn og jafnvel sökk- una í kokinu. Meti sjómenn að lúðan sé ekki lífvænleg eigi að koma með hana að landi sem Hafró-afla. „Vandinn er hins vegar reglu- gerðin, sem vekur margar spurn- ingar meðal útlendinganna. Hún get- ur haft slæmar afleiðingar og haft áhrif á sölu og markaðssetningu,“ segir Jón. Lúti sömu reglum og aðrar veiðar Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar segir mikilvægt að þessi atvinnustarfsemi sem snúist um sjóstangaveiði lúti sömu reglum og aðrar veiðar. Hann segir að rannsóknir sýni að lúða sem komi á króka í sjóstangaveiði eigi mjög mikla lífsmöguleika. Hún sé fljót að losa sig við krókana og eigi yf- ir 90% lífslíkur. Talsverður munur sé annars vegar á lífslíkum lúðu sem komi í troll af miklu dýpi og liggi í fiskmóttöku skips og hins vegar lúðu sem veiðist á sjóstöng og komi dösuð að borðstokk eða upp á dekk. Báðar eigi þó að geta lifað af, en meðhöndlunin skipti miklu máli. „Það hafa átt sér stað skoðana- skipti milli ráðuneytisins og þeirra sem selja og skipuleggja þessar ferð- ir um samstarf,“ segir Jóhann. „Við hjá Hafrannsóknastofnuninni höfum áhuga á að koma á samvinnu þannig að ferðamennirnir sem eru á þessum veiðum og draga lúðu myndu merkja hana með sýnilegu merki áður en þeir sleppa henni. Þetta gæti orðið hluti af okkar rannsóknum og veiðimennirnir geta lagt sitt af mörkum til vernd- unar og uppbyggingar stofnsins. Þetta er hins vegar enn á vinnslu- stigi,“ segir Jóhann. Veiða, merkja, mynda, sleppa Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson. Draumur veiðimannsins Þessi reyndist vera 175 kg og 240 sm við löndun á Suðureyri árið 2007. Þjóðverjinn Andre Rosset hafði á orði að hann hefði reynt að veiða lúðu í mörg ár án árangurs „og svo lendi ég á þessu ferlíki“.  Fyrsti hópur erlendra sjóstangaveiðimanna væntanlegur  Drjúg grein í atvinnulífi á Vestfjörðum  Óttast áhrif reglugerðar um lúðuveiðar  Hugmyndir um samstarf vísindamanna og veiðimanna Bann frá áramótum » Með almennu banni á lúðuveiðum, sem tók gildi um áramót, eru sjómenn skyld- aðir til að sleppa í sjóinn aft- ur lífvænlegri lúðu en afla- verðmæti þeirrar lúðu sem kemur að landi rennur til rannsókna » Friðun lúðunnar er tilkomin vegna tillögu Hafrannsókna- stofnunarinnar sem hefur um langt árabil bent á slæmt ástand stofnsins. Gögn stofn- unarinnar benda til að lúðu- stofninn hafi um langt skeið farið minnkandi. » Samkvæmt upplýsingum á vef Fiskistofu er í ár búið að landa um sex tonnum af lúðu . Á sama tíma í fyrra hafði um 65 tonnum verið landað. » Í reglugerðinni er kveðið á um að við handfæra- og sjóstangaveiðar skuli var- færnislega losa lúðuna af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð. » Lúðan er stærsti beinfiskur á Íslandsmiðum og getur stærst orðið á fimmta metra að lengd. Hún er botnfiskur sem þvælist þó um allan sjó. » Lúða nær kynþroska við 8- 10 ára aldur, en hún getur orðið allt að 50 ára gömul. Verð á kjarnfóðri til bænda hefur hækkað nokkuð nú í apríl. Í gær hækkaði tilbúið fóður hjá Fóður- blöndunni um 2-8%. Í byrjun apríl hækkaði Lífland kjarnfóður um 3-7% og í dag hækkar allt tilbúið fóður hjá Bústólpa um 3-7% og flutningskostnaður um 10%. SS hef- ur ekki enn hækkað verð á kjarn- fóðri en hækkaði flutningskostn- aðinn á fóðrinu um 9% í mars. Eyjólfur Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Fóðurblöndunnar segir að ástæðan fyrir hækkuninni nú sé hækkun á verði aðfanga á er- lendum hráefnamörkuðum og veik- ing íslensku krónunnar. Þungur róður svínabænda Svínarækt á Íslandi byggist að stærstum hluta á innfluttu fóðri og segir Hörður Harðarson, formaður Svínaræktarfélags Íslands, að þess- ar hækkanir geri róðurinn þyngri fyrir svínabændur. „Hækkanir á öllum rekstrarliðum hafa að sjálf- sögðu komið illa við greinina á síð- ustu mánuðum. Það er ekki bara fóður, það er rafmagn og vextir og laun og olía.“ Hörður segir að fóðurverð til svínabúa sé mest bundið við hráefni en ekki tilbúnar blöndur. „Það er aðallega bygg, hveiti og soja. Ef ég tek sem dæmi mánuðina apríl og mars hækkaði bygg um 5,05%, hveiti um 2,24% og soja um 5,48% á milli mánaða. Þá er ég bara að taka mið af verði sem gildir út þennan mánuð. Almennt hefur verð á svína- kjöti til framleiðenda ekki hækkað síðan í byrjun september á síðasta ári og verðhækkanir til neytenda hafa ekki verið miklar,“ segir Hörður. Spurður hvort svínaræktin þoli meiri hækkanir er Hörður efins. „Við höfum verið að skoða aðeins hvaða forsendur greinin hefur til að takast á við nýja reglugerð um aðbúnað og þar hefur komið fram að í ljósi þeirra hremminga sem greinin hefur gengið í gegnum á liðnum árum hefur hún í rauninni enga getu til að takast á við auknar byrðar m.v. það sem á undan er gengið.“ ingveldur@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Svín Rekstrarkostnaður við hvert svínabú hefur hækkað mikið. Kjarnfóðurverð hækkar til bænda – fyrst og fre mst ódýr! Skemmtileg ar sumargjafi r – í miklu úr vali! Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sjö í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Garða- bæ. Þetta voru níu karlar á aldrinum 18-52 ára og tvær konur, 27 og 54 ára. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og tveir ekki öðlast það. Sex ökumenn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir akstur undir áhrif- um fíkniefna. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 19-33 ára og ein kona, 18 ára. Einn hafði verið sviptur ökuleyfi og annar aldrei öðlast ökuréttindi. Sautján teknir um helgina undir áhrifum Landsdómur kemur saman 23. apríl næstkomandi í Þjóðmenningarhús- inu til dómsuppkvaðningar í máli Geirs H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra, sem ákærður er fyrir brot gegn lögum um ráðherra- ábyrgð. Þetta staðfesti Andri Árna- son, verjandi Geirs, í gær. Alþingi samþykkti hinn 28. sept- ember 2010 þingsályktun um máls- höfðun gegn Geir H. Haarde, fyrr- verandi forsætisráðherra. Var Geir gefið að sök að hafa framið brot sín á tímabilinu febrúar til október 2008. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Ís- lands sem landsdómur kemur sam- an, en hann kom fyrst saman vegna málsins 8. mars 2011. Aðalmeðferð málsins hófst 5. mars 2012 og var það dómtekið 16. mars. ipg@mbl.is Niðurstöður landsdóms 23. apríl Morgunblaðið/Kristinn Landsdómur Dómur yfir fv. ráð- herra verður kveðinn upp 23. apríl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.