Morgunblaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012
✝ Pétur KarlAndrésson
fæddist á Stöðv-
arfirði 30. janúar
1918. Hann lést á
Elli- og hjúkr-
unarheimilnu
Grund 7. apríl
2012.
Foreldrar hans
voru hjónin Andr-
és Lúdvík Carls-
son trésmiður, f.
15. maí 1892 á Stöðvarfirði, d.
15. apríl 1965 og Vilfríður
Bjarnadóttir húsfreyja, f. 28.
september 1893 að Höfnum, d.
15. apríl 1965. Bræður Péturs
voru: Haukur, f. 4. febrúar
1921, d. 21. október 2011.
Andrés, f. 1. nóvember 1928,
d. 16. ágúst 1983.
Pétur kvæntist Öldu Jens-
dóttur 1950 en hún lést 16.
júní 1991. Þau áttu saman
einn son, Ólaf Örn, f. 7. júlí
Stöðvarfirði og ólst þar upp til
fjórtán ára aldurs, þá flutti
hann ásamt foreldrum sínum
og bræðrum til Reykjavíkur.
Bjuggu þau á nokkrum
stöðum í Reykjavík en lengst
af í Samtúninu þar sem faðir
Péturs byggði hús fyrir fjöl-
skyldu sína.
Pétur gekk í Ingimund-
arskóla og síðan í Iðnskólann,
þaðan sem hann útskrifaðist
sem trésmiður og síðan húsa-
míðameistari.
Pétur vann alla tíð sem tré-
smiður og byggði sér og fjöl-
skyldu sinni hús í Smáíbúða-
hverfinu. Hann rak sitt eigið
trésmíðaverkstæði í Borg-
artúninu í mörg ár. Hann var
afbragðssmiður og liggja eftir
hann mörg stór verk hér í bæ.
Pétur var mikill tónlistar-
unandi og spilaði bæði á píanó
og harmonikku og oft spilaði
hann á böllum hér áður fyrr.
Hann var mikill náttúruunandi
og hafði mjög gaman af að
ferðast hér innanlands.
Útför Péturs fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 17. apríl
2012, kl. 15. Jarðsett verður í
Fossvogskirkjugarði.
1948. Hann er
kvæntur Inger
Steinsson, f. 8.
apríl 1948 og eiga
þau tvö börn, son-
inn Helga, f. 5.
febrúar 1967, á
hann synina Adam
Karl og Hrafn
Helga með fyrr-
verandi sambýlis-
konu sinni, Hrefnu
Benediktsdóttur.
Dóttirin Inger Rós, en hún á
Ólaf Inga, Pétur Jarl, Helga
Frey og Ingibjörgu Öldu með
fyrrverandi eiginmanni sínum,
Gunnari Inga Halldórssyni.
Núverandi sambýlismaður
hennar er Baldvin Þór Bald-
vinsson. Fyrir átti Ólafur son-
inn Arnar Má og á hann þrjár
dætur. Alda átti son frá fyrra
hjónabandi, Jens Guðna, en
hann lést árið 1966.
Pétur fæddist að Hóli á
Elskulegur tengdafaðir minn
hefur kvatt þennan heim eftir
langa ævidaga, 94 ár. Það er allt-
af erfitt þegar ættingi manns
fellur frá en það er ótrúlega sárt
að sjá á bak yndislegum vini.
Pétur var ekki bara góður
tengdafaðir heldur ótrúlega góð-
ur vinur alla tíð. Þegar ég kom
inn á heimilið hans fyrir 46 árum
tengdumst við strax. Ljúf-
mennska hans og rólegheit bar
af öllu sem ég hef þekkt. Það var
ekkert sem hann vildi ekki gera
fyrir mann. Við bjuggum um tíð í
sama húsi, tvær fjölskyldur, og
alltaf var Pétur friðarstillirinn ef
eitthvað kom upp á. Það sem ég
dáðist mest að í fari hans var
hvað hann var natinn og góður
við eiginkonu sína, hann var fyr-
irvinnan eins og tíðkaðist þá en
alltaf kom hann heim í hádeginu
lagaði matinn, gekk frá og lagði
sig í 10 mínútur og vann til kl 18.
Ég hef oft vitnað í þetta þegar
fólk er að kvarta yfir tímaleysi.
Hann kom sér upp einbýlishúsi
með elju og krafti þó ekki hafi
verið til miklir peningar. Hann
var söngelskur maður og alltaf
raulandi, enda spilaði hann bæði
á píanó og harmonikku. Ég fékk
ekki mikið að njóta þess því Pét-
ur spilaði lítið eftir að við kynnt-
umst vegna þess að hann hafði,
eins og margir smiðir, sagað
framan af nokkrum fingrum.
Hann kunni alla texta og átti
mikið af plötum með karlakór-
um. Eftir að Alda konan hans
féll frá bjó hann hjá okkur eða
ekki langt frá svo við gætum litið
til hans. Hann var með í öllum
veislum og á stórhátíðum og
hafði yndi af langafabörnum sín-
um. Hann náði að koma í ferm-
ingu nafna síns 1. apríl sl. og
hitta alla. Hann lék á als oddi.
Það gladdi hann ótrúlega mikið
að heyra Helga, langafabarnið
hans sem er 10 ára, spila á
harmonikku í veislunni.
Hann bjó síðustu árin á Grund
þar sem hann fékk frábæra
þjónustu og var hann mjög
ánægður þar. Samverustundirn-
ar okkar þar voru ljúfur tími,
alltaf þakkaði hann mér í hvert
skipi fyrir að koma til sín og ef
ég ekki kom heldur maðurinn
minn þá var alltaf spurt: Hvar er
Inger? Af hverju kemur hún
ekki? Þannig að maðurinn minn
sagði alltaf: Pabbi vill bara fá
þig, honum hundleiðist að fá mig
í heimsókn. Enda þegar við fór-
um um gangana á Grund reigði
hann sig eins og montinn hani og
sagði: Mér finnst svo flott að
ganga með þér, Inger!
Hann sagði mér frá tilverunni
sinni hér áður fyrr og sagði alltaf
í gríni að hann hefði ekki fengið
nóg að borða fyrsta árið þar sem
hann fæddist frostaveturinn
mikla, þess vegna hefði hann
ekki orðið jafn stór og bræður
sínir sem voru tveggja metra
menn. Ég hafði á orði að hæðin
skipti ekki máli heldur hinn innri
maður. Hann var ánægður með
það.
Pétur var alltaf í góðu skapi
og kvartaði aldrei. Nú verða
ferðir mínar ekki lengur á
Grundina að maula með þér
súkkulaði eða drekka með þér
kaffi, kæri vinur minn. Þú ert
kominn til þinnar heittelskuðu
og sætti ég mig við það en það er
ótrúlega sárt að fá ekki að halda
í höndina þína lengur.
Að lokum vil ég segja við þig:
Eitt er það sem aldrei gleymist,
það er minning þín.
Þín tengdadóttir og vinur,
Inger Steinsson.
Pétur Karl
Andrésson
✝ Bjarni HalldórÞórarinsson
fæddist á Húsatóft-
um í Garði 9. maí
1928. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja laug-
ardaginn 7. apríl
2012.
Foreldrar
Bjarna voru Svein-
borg Jónfríður
Petrína Jensdóttir,
f. 1. janúar 1894, d. 19. apríl
1970 og Þórarinn Samúel Guð-
mundsson, f. 17. júlí 1896, d.
30. desember 1971. Systkini
Bjarna eru Guðmundur, f.
1924, Magnþóra, f. 1926, d.
2008, Þórarinn, f. 1930, d.
2000, Þórunn, f. 1933, Magnús,
Maki Kristjana Halldórsdóttir.
5) Sveinbjörn, f. 18. september
1968. Maki Ingibjörg Steinþórs-
dóttir.
Bjarni ólst upp í Garðinum
til ársins 1950 en þá fluttist
hann til Grindavíkur eftir að
hafa kynnst Ásdísi. Þau bjuggu
í Grindavík frá þeim tíma til
dagsins í dag. Þau eiga 19
barnabörn og 20 barna-
barnabörn. Bjarni var lengi til
sjós, m.a. sem skipstjóri og
farnaðist vel. Bjarni starfaði
hjá Grindavíkurhöfn frá 1973
til ársins 1995 þegar hann lét
af störfum vegna aldurs, lengst
af starfaði hann sem hafn-
arstjóri Grindavíkurhafnar.
Eftir starfslok Bjarna vann
hann sér til gamans við að
valsa harðfisk hjá dóttur sinni
og tengdasyni í Stjörnufiski í
Grindavík.
Útför Bjarna fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag,
þriðjudaginn 17. apríl 2012 kl.
14.
f. 1937, d. 1988,
Jónas, f. 1939.
Sammæðra systk-
ini Bjarna: Jenný,
f. 1917, d. 2006,
Sigurvin, f. 1916,
d. 1917.
Þann 31. maí
1952 giftist Bjarni
Ásdísi Eyrúnu Sig-
urgeirsdóttur, f.
19. ágúst 1932, frá
Hlíð í Grindavík.
Börn þeirra eru: 1) Einar
Björn, f. 23. nóvember 1949.
Maki Sæunn Kristinsdóttir. 2)
Guðrún, f. 26. desember 1951.
Maki Pétur Gíslason. 3) Þór-
katla, f. 26. júlí 1954. Maki
Lúðvík Gunnarsson. 4) Sig-
urgeir Þór, f. 26. mars 1959.
Elsku afi, nú er komið að
þeirri stund sem ég vissi að væri
ekki langt undan en vonaði svo
innilega að kæmi ekki svona
fljótt. Söknuðurinn er gífurlegur
og í hvert sinn sem ég kem til
ömmu finnst mér eins og þú sért
rétt ókominn heim. Ég trúi því
og finn að þú sért enn með okk-
ur. Þú ert bara kominn á betri
stað þar sem þér líður mun betur
á en síðustu vikur meðal okkar.
Það voru forréttindi að hafa
fengið að dvelja hjá þér og ömmu
megnið af fyrstu æviárunum
mínum. Þú hefur verið svo stór
hluti af lífi mín, kennt mér svo
margt sem ég hef getað tileinkað
mér. Þú varst alltaf svo góður og
hlýr og sá allra flottasti sem ég
hef kynnst. Alltaf gafstu þér tíma
með mér, útskýrðir hlutina og
kenndi mér hvað væri rétt frá
röngu. Minningarnar um þig eru
margar og margar þeirra fá mig
til þess að brosa út í annað. Það
eru nú ekki mörg ár síðan að við
hittumst reglulega í ræktinni.
Þrisvar í viku varstu mættur kl.
6:45, hjólaðir í 20 mínútur og
rúllaðir þér áfram í magaæfingar
eins og unglingsstrákur. Rosa-
lega var ég stolt yfir að eiga
svona flottan afa, kominn á átt-
ræðis aldurinn og svo yndislegur
í alla staði. Síðustu árin þín hjól-
aðir þú á hverjum degi hringi í
kringum hverfið ef veður leyfði.
Stundum stoppaðir þú hjá okkur
rétt til létta á þér og athuga
hvort að það væru ekki allir
frískir.
Sem skipstjóri og fyrrum
hafnarstjóri þá var sjómennskan
og lífið á bryggjunni þitt yndi.
Bryggjurúntarnir voru margir
eftir að þú hættir störfum og allt-
af varstu með á hreinu hvað hver
var að fiska. Ég var svo heppin
að fá að fara með þér í einum af
þínum síðustu bryggjurúntum
þar sem við horfðum á loðnubát-
ana moka inn loðnunni rétt upp
undir landi, mikið hrikalega er
það mér dýrmætur tími í dag.
Við barnabörnin og barna-
barnabörnin áttum alltaf stóran
part af hjarta þínu. Þú varst al-
veg snillingur í að finna það góða
í öllum. Við vorum öll í sérflokki,
hvert á sínu sviði.
Ég er svo fegin að Tómas
Darri og Guðrún Sif fengu að
kynnast langafa sínum og eyða
með honum góðum tíma, það eru
ekki allir svo heppnir. Þau bera
með sér góðar minningar um afa
Badda eins og þú kenndir þeim
sjálfur að segja. Söknuður þeirra
er mikill, mörg tár hafa fallið hjá
Tómasi Darra og Guðrún Sif
syngur um afa Badda sem er
engill á himninum. Allaf kvaddir
þú þau með handabandi og kossi
á kinnina. En í dag kveðjum við
þig öll með miklum söknuði og
eftirsjá. Það sem hlýjar okkur er
vitandi það að þér líður vel núna,
ert sáttur og varst tilbúin að
kveðja. Svo mikill friður var yfir
þér þegar við kvöddum þig á
spítalanum.
Við hugsum vel um ömmu fyr-
ir þig og sjáum til þess að krílið
okkar sem væntanlegt er á
næstu dögum fái að kynnast
langafa sínum í gegnum yndis-
legar minningar.
Elsku afi, takk fyrir allt sem
þú gafst okkur, hvíli þú í friði.
Kveðja,
Ásdís Ester Kristinsdóttir
og fjölskylda.
Elsku afi, við fjölskyldan á
Selsvöllunum söknum þín sárt og
rifjum upp þær góðu minningar
sem við eigum frá því að heim-
sækja þig, ömmu og kisa. Þú
tókst alltaf vel á móti okkur og
nýttir tímann vel til að spyrja
okkur út í okkar hagi; ekki lástu
heldur á ráðunum til okkar sem
þú hafðir við öllu sem hugsast
gat. Um leið fylgdistu með hrifn-
ingu með Pétri Þór elta kisa um
allt hús og sást til þess að hann
fengi góða hressingu í svangan
maga á eftir. Að heimsókn lok-
inni var maður orðinn fullviss um
hvað við, öll þín barnabörn og
barnabörn, værum einstök.
Bestu ráðin sem við Villi sóttum
til þín var þegar við settum niður
kartöflurnar, því þar varstu á
heimavelli og gerðir þér óteljandi
heimsóknir til okkar að fylgjast
með hvernig okkur gengi í kart-
öfluræktinni.
Við erum þakklát fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum
með þér þegar við heimsóttum
hvert annað, borðuðum saman
um hátíðir og aðra merkisdaga
og hefði verið gaman að upplifa
svoleiðis stund með þér og
bumbubúanum sem þú beiðst svo
spenntur eftir.
Elsku afi, ég mun alltaf hugsa
til þeirra góðu minninga sem við
áttum saman árlega á afmælinu
mínu þegar fórum tvö saman til
Keflavíkur og Reykjavíkur með
jólapakkana og jólakortin. Við
munum ekki heyra þig lengur
segja: „Allt í fína“ þegar þú
kvaddir okkur eða sjá þig rúnta
um á bryggjunni og þegar þú og
amma voruð að gefa öndunum,
en við vitum að þú ert hjá okkur.
Afi, við munum halda áfram að
heimsækja ömmu og kisa þar
sem ég veit að þú verður með
okkur.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesú, í þína hönd.
Síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Þín afastelpa,
Sigurlaug Pétursdóttir.
Bjarni Halldór
Þórarinsson
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR SIGRÍÐAR
ÞORSTEINSDÓTTUR
frá Arnarfelli,
síðast til heimilis
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir hlýja og góða
umönnun.
Lilja Guðrún Finnbogadóttir, Gunnar M. Sveinbjörnsson,
Þorsteinn Finnbogason, Hulda B. Skarphéðinsdóttir,
Ingibjörg Finnbogadóttir, Jón Pétursson,
barnabörn og langömmubarn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR HAFSTEINN BJÖRNSSON,
Lambastöðum,
Seltjarnarnesi,
lést föstudaginn 13. apríl.
Útför verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jónína K. Helgadóttir.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
INGÓLFS AÐALSTEINSSONAR
veðurfræðings og fyrrv. forstjóra
Hitaveitu Suðurnesja,
síðast að Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Aðalsteinn Ingólfsson, Janet S. Ingólfsson,
Ólafur Örn Ingólfsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Birgir Ingólfsson, Auður Jónsdóttir,
Ásrún Ingólfsdóttir, Magnús Snæbjörnsson,
Leifur Ingólfsson, Lilja M. Möller,
Atli Ingólfsson, Þuríður Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
KRISTJÁN KARL NORMAN,
varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn
6. apríl.
Kveðjuathöfn fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 20. apríl kl. 13.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að hugur hans var til
langveikra barna.
Gréta Þórs,
Einir Kristjánsson,
Baldur Sigurðsson,
Þór Björnsson,
tengdadætur,
afabörn, langafabörn og fjölskyldur.
✝
GARÐAR BJÖRNSSON
bakarameistari
frá Hnjúkum
lést þriðjudaginn 27. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Kirkjuhvols, Hvolsvelli
fyrir góða umönnun.
Börn hins látna.