Morgunblaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 Það sjást merki þess að landinnsé að ná sér á strik.    Taktarnir minna á það sem varer sveiflan var mest á óska- börnum þjóðarinnar, frá klapp- stýru og niðrúr.    Þá keyptu snill-ingarnir ómál- aða mynd af hirð- skáldi sínu fyrir á þriðja tug milljóna.    Sjálfsagt hefðu þeir líka keyptóort ljóð af hirðmálurum sín- um fyrir svimandi upphæðir, ef tími hefði gefist til.    Uppboðin eru byrjuð aftur.    Og eins og forðum er Samfylk-ingin nálæg þegar notið er lífsins.    Nú var plastmál boðið upp ogfór það á 105 þúsund krón- ur.    Upphæðin er aðeins skugginnaf því sem var, en þó í áttina.    Plastmálið fékk aukið verðgildivegna þess að Jóhanna Sig- urðardóttir úr gömlu „hrunstjórn- inni“ hafði drukkið úr því.    Listunnendur á Akureyrikeyptu málið.    En málið hefur ekki aðeins list-rænt gildi heldur einnig póli- tískt gildi.    Því þetta er eina málið sem Jó-hanna hefur klárað á kjör- tímabilinu. Ekkert mál STAKSTEINAR Dalvegi 6-8 201 Kópavogur S. 535 3500 www.kraftvelar.is kraftvelar@kraftvelar.is Kraftvélar bjóða breitt vöruúrval atvinnubifreiða frá Iveco Kraftvélar í samvinnu við Iveco leggja áherslu á skjóta og góða varahluta- og viðgerðarþjónustu. Hafið samband varðandi þjónustu eða ósk um tilboð í nýja atvinnubifreið. Veður víða um heim 16.4., kl. 18.00 Reykjavík 8 skýjað Bolungarvík 5 heiðskírt Akureyri 7 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 4 skýjað Vestmannaeyjar 4 skýjað Nuuk -2 snjókoma Þórshöfn 2 alskýjað Ósló 3 léttskýjað Kaupmannahöfn 8 heiðskírt Stokkhólmur 7 heiðskírt Helsinki 5 heiðskírt Lúxemborg 7 heiðskírt Brussel 7 léttskýjað Dublin 7 skúrir Glasgow 8 léttskýjað London 11 heiðskírt París 10 heiðskírt Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 7 léttskýjað Berlín 8 heiðskírt Vín 6 skúrir Moskva 17 heiðskírt Algarve 21 heiðskírt Madríd 12 léttskýjað Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 12 léttskýjað Róm 16 léttskýjað Aþena 18 skýjað Winnipeg -2 skýjað Montreal 23 alskýjað New York 24 heiðskírt Chicago 12 alskýjað Orlando 25 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 17. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:47 21:09 ÍSAFJÖRÐUR 5:42 21:23 SIGLUFJÖRÐUR 5:24 21:07 DJÚPIVOGUR 5:14 20:41 Rétt eins og farfuglarnir streyma til landsins á vordögum kemur senn að því að námsmenn streymi út á vinnumarkaðinn til sumarstarfa að loknum vorprófum. „Framhaldsskólanemar almennt reyna að vera þokkalega bjartsýnir á sumarið en gera sér jafnframt fulla grein fyrir að margir eru um hituna. Í það heila teljum við hjá SÍF að stjórnvöld mættu hafa atvinnumál ungs fólks framar í forgangsröðinni,“ segir Andri Steinn Hilmarsson, formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF). Hundruð umsókna Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið og hafa fjölmargir nemar nú þegar haft samband við ýmis fyrirtæki og stofnanir í leit að starfi. Hjá stórum fyrirtækjum og stofnunum nema umsóknir um sumarstörf nú nokkrum hundr- uðum, líkt og á síðasta ári. Fjöldi starfa í boði ýmist stendur í stað eða dregst eilítið saman. Til Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma bárust yfir 700 umsóknir um sumarstörf og eru allt að 150 ungmenni á aldrinum 16-24 ára ráð- in til að sinna umhirðustörfum í görðunum fimm sem eru í umsjón prófastsdæmanna. Svip- aða sögu er að segja hjá Landsvirkjun en 740 umsóknir bárust fyrirtækinu um samtals 220 stöðugildi. Þar af eru 50 stöður eingöngu ætl- aðar háskólanemum. Hjá Orkuveitu Reykjavík- ur voru umsóknir 800 talsins en 70 stöðugildi í boði. Hjá Reykjavíkurborg hafa 3.500 einstakling- ar sótt um sumarstarf. Endanlegur fjöldi starfa í boði hjá borginni þetta sumarið liggur enn ekki fyrir en auk þess að ráða fólk í sumarstörf heldur borgin einnig úti ýmsum atvinnuskap- andi verkefnum fyrir ungt fólk, m.a. í samstarfi við Hitt húsið, Vinnumálastofnun o.fl. Hafa ber í huga að umsækjendur í ofan- greindum dæmum eru líklegir til að vera þeir sömu hjá fleiri en einum viðmælanda. Af nið- urstöðunum má engu að síður ráða að töluvert vantar upp á að framboð af störfum fyrir unga fólkið sé í einhverju samræmi við eftirspurn. gunnhildur@mbl.is Margir um sumarstörfin  700 umsóknir bárust um 150 störf hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastdæma  Framhaldsskólanemar segjast þó þokkalega bjartsýnir á að fá vinnu í sumar Morgunblaðið/Eggert Sumarstörf Fjölmargir námsmenn streyma senn út á vinnumarkaðinn að loknum vorprófum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.