Morgunblaðið - 17.04.2012, Page 13

Morgunblaðið - 17.04.2012, Page 13
Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 Landeigendur á Efribyggðarleið fyrirhugaðrar Blöndulínu 3 um Skagafjörð segjast verja lönd sín og hagsmuni komandi kynslóða með öllum tiltækum ráðum. Kemur það fram í ályktun sem þeir hafa sent frá sér. Helga Rós Indriðadóttir, talsmaður landeigenda, hvetur íbúa til að kynna sér vel áform Lands- nets og segja álit sitt á þeim í því umsagnarferli sem nú er í gangi. Í frummatsskýrslu Landsnets kemur fram að tveir valkostir eru til skoðunar í Skagafirði vegna lagningar nýrrar háspennulínu frá Blönduvirkjun til Akureyrar. Ann- ars vegar er Efribyggðarleið þar sem loftlína myndi liggja um blóm- lega byggð að hluta. Hin leiðin er í farvegi Héraðsvatna þar sem hún verður áberandi frá fjölförnustu ferðaleið svæðisins, Hringveginum. Ekki er boðið upp á valkosti við lagningu línunnar um Vatnsskarð þar sem línan fer fyrir mynni Vala- dals og skammt frá vinsælum án- ingar- og útsýnisstað, við minn- ismerkið um Stephan G. Stephansson á Arnarstapa. Landeigendur á Efribyggðarleið hafna alfarið lagningu loftlínu og segja hana hafa í för með sér óá- sættanleg áhrif á ásýnd og ímynd landsins og skerða möguleika til landbúnaðar og ferðaþjónustu. Benda þeir á lagningu 132 kílóvolta jarðstrengs enda telja þeir að flutn- ingsgeta hans væri rífleg til að sinna raforkuþörf almennings. Helga Rós segir að 220 kV loftlína sé fyrst og fremst til að þjóna hags- munum stóriðju og bendir í því sambandi á að gamla byggðalínan sem talað sé um að verið sé að styrkja muni áfram standa uppi og þjóna byggðunum. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Hnjúkurinn Háspennulína um Efribyggðarleið myndi þvera héraðið framan við Mælifellshnjúk sem er eitt af helstu kennileitum Skagafjarðar. Munu verja lönd sín með öllum ráðum Smiðjuvegi 7 • 200 Kópavogi • Sími 54 54 300 • Opnunartími 8:00-17:00 alla virka daga • www.ispan.is • ispan@ispan.is CE- VOTTUN ER OKKAR GÆÐAMERKI Sérfræðingar í gleri … og okkur er nánast ekkert ómögulegt • Gler á skápahurðir • Gler á milli innréttinga • Öryggisgler • Speglar • HERT GLER: - Í sturtuklefa - Í handrið - Í skjólveggi - Í rennihurðir frjalsilif.is – 444 7000 Frjálsi lífeyrissjóðurinn Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 25. apríl nk. kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Dagskrá 1. Skýrsla stjórnar 2. Kynning ársreiknings 3. Tryggingafræðileg athugun 4. Fjárfestingarstefna sjóðsins 5. Kosning stjórnar Á fundinum verður kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og einn varamann til eins árs. Framboð til stjórnar þarf að liggja fyrir eigi síðar en á morgun, miðvikudag- inn 17. apríl og ber að tilkynna framboð til stjórnar með sannanlegum hætti. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins eru aðgengilegar á frjalsilif.is. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn. 6. Kjör endurskoðanda 7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins 8. Laun stjórnarmanna 9. Önnur mál

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.