Morgunblaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012
veislusalir
Tökum á móti litlum og stórum
hópum í rómaðar veislur
Suðræn stemming
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Draghálsi 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is
KPMG og Félagsvísindasvið Há-
skóla Íslands hafa undirritað samn-
ing um samstarf til þriggja ára og
varðar sameiginlega framkvæmd
könnunar meðal íslenskra stjórn-
armanna í fyrirtækjum og lífeyr-
issjóðum. Markmið samstarfsins er
að afla upplýsinga um stjórnir ís-
lenskra fyrirtækja og meta þær,
m.a. með tilliti til lagasetningar sem
tekur gildi 1. september 2013 um
hlutfall hvors kyns í stjórnum hluta-
félaga, einkahlutafélaga, opinberra
hlutafélaga, samlagshlutafélaga og
lífeyrissjóða. Auk þess verða áhrif af
breyttu lagaumhverfi könnuð. Sam-
starfsaðilar hafa sammælst um að
framkvæma könnun meðal stjórn-
armanna í íslenskum fyrirtækjum á
hverju ári næstu þrjú árin. Sigurður
Jónsson framkvæmdastjóri KPMG
og Ólafur Þ. Harðarson prófessor
undirrituðu samninginn.
Upplýsingar um
stjórnir fyrirtækja
Vorfundur Jarðhitafélags Íslands
verður haldinn í dag, þriðjudaginn
17. apríl, kl. 14:00 í húsakynnum
Arion banka, Borgartúni 19.
Á fundinum mun Daði Már Krist-
ófersson, dósent í auðlinda-
hagfræði við Háskóla Íslands, fjalla
um þjóðhagslegan ávinning af jarð-
hitanýtingu. Þá munu fulltrúar HS
Orku, RARIK, Orkuveitu Reykja-
víkur og Landsvirkjunar fjalla um
helstu jarðhitaframkvæmdir sem
eru á döfinni. Fundurinn er öllum
opinn og aðgangur ókeypis
Ræða um jarðhita
Í Fjarðabyggð er hafin söfnun und-
irskrifta íbúa þar sem skorað er á
Alþingi og ríkisstjórn Íslands að
framkvæmdir hefjist nú þegar við
gerð Norðfjarðarganga. Meðlimir
félagasamtaka, bæjarfulltrúar,
bæjarstjóri, stjórnendur fyrirtækja
og stofnana í Fjarðabyggð verða
meðal þeirra sem ganga á milli
húsa í bæjarhverfunum sex til þess
að safna undirskriftum. Íbúar eru
hvattir til þess að taka vel á móti
því fólki sem bankar uppá.
Safna undirskriftum
STUTT
FRÉTTASKÝRING
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Íslensk ættleiðing hefur tilkynnt
innanríkisráðuneytinu að félagið sjái
sér ekki fært að standa að undirbún-
ingsnámskeiði fyrir verðandi kjör-
foreldra undir núverandi kringum-
stæðum. Aðalfundi félagsins, sem
halda átti fyrir skömmu, var frestað
þar sem enginn félagsmaður hafði
boðið sig fram til stjórnarsetu en fé-
lagið segir 54 milljónir króna vanta
upp á fjárveitingu þessa árs til að
það geti uppfyllt skyldur sínar til
samræmis við lög og reglugerðir.
Innanríkisráðuneytið segir málið í
skoðun og væntir þess að svara for-
svarsmönnum Íslenskrar ættleið-
ingar í næstu viku.
Íslensk ættleiðing var stofnuð
fyrir um 34 árum en starfaði nánast í
lagalegu tómarúmi þar til Ísland
gekkst undir alþjóðasamninga og
-sáttmála um ættleiðingar milli
landa, segir Hörður Svavarsson, for-
maður félagsins. „Í Haag-samn-
ingnum um alþjóðlegar ættleiðingar
er mjög vel tíundað hvað á að gera
og í sumum tilfellum hvernig á að
gera það en ríkið hefur framselt
þessar skyldur til Íslenskrar ætt-
leiðingar, ýmist með löggjöf eða
reglugerðum,“ segir hann.
Á móti hefur félagið fengið fjár-
veitingar frá ríkinu en hefur frá
árinu 2009 bent á að fimmfalda þurfi
það framlag til þess að hægt sé að
sinna þessum skyldum með góðu
móti. Auk þess að uppfylla skilyrði
alþjóðlegra samninga þarf félagið að
standast kröfur þeirra fimm landa
sem Íslendingar geta ættleitt frá og
þarf félagið m.a. að hafa lækni og
lögfræðing á sínum snærum, búa
kjörforeldra undir að taka á móti
börnunum og sinna ákveðinni eft-
irfylgni eftir að börnin eru komin í
faðm nýrrar fjölskyldu.
„Hinar Norðurlandaþjóðirnar
sinna þessu mjög glæsilega og okkar
tillögur snúast aðeins um brot af
þeirri þjónustu sem þar er sinnt,“
segir Hörður, raunar sé kraftaverk
að stjórnvöld landanna fimm hafi
sýnt félaginu svo mikið traust þar
sem heimsóknir félagsins þangað
hafi verið með minnsta móti.
Í fyrra voru lögð drög að þjón-
ustusamningi milli ríkisins og Ís-
lenskrar ættleiðingar þar sem rætt
var um að framlög til félagsins yrðu
62 milljónir króna á ári. Fjárlög
þessa árs gera hins vegar aðeins ráð
fyrir að 9,2 milljónum verði varið í
málaflokkinn en alls eru 100 fjöl-
skyldur á biðlista eftir að fá að ætt-
leiða, þar af 44 sem eru í umsókn-
arferli hjá sýslumanni og 33 sem
eiga eftir að sitja áðurnefnt nám-
skeið.
„Staðan er bara mjög óljós,“
segir Hörður um horfurnar fyrir fé-
lagið. „Félaginu er uppálagt að eiga
varasjóð til að tryggja að hægt sé að
fylgja eftir þeim umsóknum sem
komnar eru af stað ef félagið hættir
og við munum að óbreyttu óska eftir
því fljótlega að fá að ganga í þann
sjóð,“ segir hann.
AFP
Börn Íslenskar fjölskyldur geta ættleitt börn frá Indlandi, Kína, Kólumb-
íu, Tékklandi og Taílandi í gegnum Íslenska ættleiðingu.
Munu ganga á sjóðinn
til að klára umsóknir
Ættleiðingar
» Það kostar 2,5-3 millj-
ónir að ættleiða barn en ríkið
greiðir þann kostnað niður
um hálfa milljón.
» Eftirfylgni skiptir miklu
máli þar sem börnin geta átt
við vandamál að stríða vegna
dvalar sinnar á stofnunum.
Þessu hefur ekki verið sinnt
hér á landi með skipulögðum
hætti, segir Hörður.
» Hann segist ekki kannast
við að ágreiningur sé uppi um
áætlaða fjárþörf ÍÆ.
» Aðrar tekjur félagsins
nema um 10 milljónum króna
á ári en þær eru aðallega
vegna greiðslna frá fjöl-
skyldum fyrir milligöngu um
ættleiðingu.