Morgunblaðið - 17.04.2012, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.04.2012, Qupperneq 16
16 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 VIÐTAL Hörður Ægisson hordur@mbl.is „Þrátt fyrir að hér séu til staðar nátt- úrulega góð skilyrði til þess að byggja upp gagnaversiðnað þá hefur gengið hægar en við vildum að koma á fót slíkum iðnaði. Óhagstæð skattalög- gjöf gerði það meðal annars að verk- um að stór erlend fyrirtæki töldu Ís- land ekki fýsilegan kost til að koma með starfsemi sína hingað til lands fyrir aðeins fáum árum. Í dag hefur staðan hins vegar breyst til hins betra og nú þegar koma inn viðskiptavinir í gegnum Thor Data Center og Verne Global gagnaverið sem hóf starfsemi fyrr á þessu ári,“ segir Orri Hauks- son, framkvæmdastjóri Samtaka iðn- arins, í samtali við Morgunblaðið. Hann flytur erindi um hagrænt mikilvægi gagnavera á Íslandi á ráð- stefnu Opinna Kerfa um upplýsinga- tækni á tímum tölvuskýja sem fram fer í dag, en þar verður meðal annars fjallað um tölvuský, gagnaver og nálgun alþjóðlegra fyrirtækja á borð við HP og Intel við kröfur um orku- sparnað og vistvæna orku. Orri segir að það hafi skipt sköpum þegar Alþingi samþykkti lög fyrir meira en ári síðan um að afnema virð- isaukaskatt á netþjóna og sölu á þjón- ustu til erlendra aðila sem hýsa á í ís- lenskum gagnaverum. „Nú stendur Ísland jafnfætis gagnvart gagnaver- um í nágrannaríkjum okkar. Að öðr- um kosti er ljóst að erlend fyrirtæki hefðu ekki kosið að koma með starf- semi sína hingað til lands.“ Að sögn Orra er mikil og hörð sam- keppni milli ríkja um að laða gagna- ver til sín. „Ísland hefur hins vegar samkeppnisforskot á mörg önnur ríki – hér er græn orka og mikil nátt- úruleg kæling.“ Þrátt fyrir að forskot Íslands á þessu sviði sé fyrst og fremst í heildarkostnaði við að koma upp gagnaveri, að sögn Orra, þá er það hið lagalega umhverfi sem skiptir ekki síður máli. „Fyrirtæki þurfa að treysta því að hér sé pólitískur stöð- ugleiki fyrir hendi; það sé gætt hóf- semdar í skattlagningu og leikreglun- um sé ekki breytt eftir á,“ segir Orri. Hann bendir á í því samhengi að stórfyrirtæki á borð við bandaríska tölvurisann IBM hafi hætt við að koma með verkefni inn í ÍSLENSK Tgagnaver árið 2009 þar sem skatta- löggjöfin, eins og hún var á þeim tíma, hafi gert það að verkum að Ísland var ekki nægjanlega samkeppnishæft í samanburði við mörg önnur ríki í Evrópu. Njótum ávaxtanna Að sögn Orra er það ekki síst sú af- leidda starfsemi sem verður til í kringum gagnaversiðnað sem skiptir máli fyrir efnahagslífið. „Gagnavers- iðnaður er í sinni hráustu mynd raun innviðarekstur með ekkert sérstak- lega mikla framlegð. Tækifærin felast jafnframt í því að samhliða slíkum gagnaversiðnaði verði til virðisauk- andi þjónusta innan upplýsingatækni- geirans.“ Orri segir að eftir þá fjárfestingu sem ráðist hafi verið í á umliðnum ár- um til að bæta tengingar Íslands við umheiminn séum við vel í stakk búin til að byggja upp gagnaversiðnað. „Við erum með nógu mikinn hraða og bandvídd í kerfinu til að sinna stórum hluta þeirra viðskiptavina sem gagna- verin horfa til.“ Innviðirnir eru því fyrir hendi til að byggja upp gagnaversiðnað – ekki síst vegna þess að tengingar við út- lönd hafa stórbatnað á síðustu árum. „Það er mikill sokkinn kostnaður inni í kerfinu,“ segir Orri. „Það væri því grátlegt ef ekki tækist að nýta þessa fjárfestingu til fulls og njóta ávaxtanna sem fyrst af þeirri vinnu sem hefur verið lögð í að koma á fót öflugum gagnaversiðnaði.“ Njótum ávaxtanna sem fyrst Morgunblaðið/Ómar Gagnaver Verne Global hóf starfsemi á þessu ári og selur þjónustu sína fyrirtækjum bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu.  Góð samkeppnisskilyrði fyrir gagnaversiðnað á Íslandi  Hefur gengið hægar vegna óhagstæðrar skattalöggjafar  Mikil samkeppni um að laða til sín gagnaver ● Viðskiptajöfnuður evrusvæðisins var jákvæður um 2,8 milljarða evra í febrúar samanborið við 2,8 milljarða evra viðskiptahalla í sama mánuði á síðasta ári. Eurostat, hagstofa Evr- ópusambandsins, greindi frá þessu í gær. Bætt staða að þessu leyti er rak- inn til 11% aukningar í útflutningi og innflutningur dróst saman um 7%. Jákvæður jöfnuður                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 ,1,.+, +,-.23 ,,.44+ ,+.52/ +0.25- +40.,+ +./-5, +5/.5/ +22.+3 +,-.00 ,1,.2+ +,0.1+ ,,.452 ,,.14 +0.-/, +40.2 +./040 +52./4 +22.2 ,,5.1404 +,0.+0 ,14.+ +,0.40 ,,.32+ ,,.15/ +0.01- +40.55 +./003 +5-.++ +2-.12 Þrátt fyrir að Ísland hafi gengið í gegnum djúpa fjármála- og efna- hagskreppu á síðustu árum þá er Ísland enn sem fyrr ríkt land og landsframleiða á mann með því hæsta sem þekkist í heiminum. „Hins vegar er framleiðni ekki sér- staklega mikil í íslensku efnahags- lífi,“ bendir Orri á, en landsfram- leiðsla hér á landi á vinnustund er undir meðaltali OECD. „Við vegum það upp með löngum vinnutíma.“ Að sögn Orra getur þessi stað- reynd aftur á móti verið lán í óláni á botni kreppunnar. „Það er því um- talsvert svigrúm til efnahagslegra framfara. Með öðrum orðum að framleiða meira með minna vinnu- framlagi – og við erum með skýrar fyrirmyndir um hvað þurfi að gera til þess hægt verði að auka framleiðni. Upp- bygging gagnavers- iðnaðar væri einn liður í þeim efnum, en það er ljóst að slíkur iðnaður og tengd starf- semi mun auka fram- leiðni,“ seg- ir Orri. Lán í óláni á botni kreppunnar TÆKIFÆRI TIL AÐ AUKA FRAMLEIÐNI Orri Hauksson Hagnaður Kaupfélags Skagfirðinga (KS) var 2.451 milljón kr. á árinu 2011 á móti 2.418 milljónum kr. á árinu 2010. Þar af var rekstrarhagnaður móðurfélagsins (kaupfélagsins sjálfs) fyrir fjármagnsliði 931 milljón kr. á móti 548 milljón kr. hagnaði ársins 2010. Frá þessu er greint á vefsíðunni Skagfirðingur. Heildartekjur KS-samstæðunnar á árinu 2011 voru 26,2 milljarðar kr. sem er lítilsháttar aukning frá árinu 2010 þegar heildartekjur voru 25,7 milljarðar kr. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði voru rúmir 3,2 millj- arðar kr. á móti tæplega 3,2 millj- örðum króna á árinu 2010. Heildar- launagreiðslur KS-samstæðunnar voru ríflega 5,5 milljarðar á árinu 2011 og þar voru launagreiðslur móð- urfélagsins ríflega milljarður króna. Eiginfjárhlutfall 60,6% Skuldir samstæðunnar lækkuðu úr 12,7 milljörðum kr. í 11,5 milljarða á árinu 2011 og hækkaði eiginfjárhlut- fallið úr 54,8% í 60,6%. Sömuleiðis hækkaði handbært fé frá rekstri úr tæplega 3,5 milljörðum kr. í tæplega 3,8 milljarða kr. Meðal félaga sem koma inn í sam- stæðureikning Kaupfélags Skagfirð- inga eru Fisk-Seafood, Fóðurblandan og Vörumiðlun. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Verið Öflug starfsemi er í Verinu, vísindagörðum á Sauðárkróki. Hagnaður KS 2,45 milljarðar  Heildartekjur 26,2 milljarðar Rektor Jim Yong Kim. ● Læknirinn Jim Yong Kim verður næsti forstjóri Alþjóðabankans en Kim var frambjóðandi Bandaríkjanna. Hefð er fyrir því að Bandaríkjamaður stýri bankanum. Fjármálaráðherra Nígeríu, Ngozi Okonjo-Iwealaas, var einnig í framboði til starfans. Þriðji frambjóð- andinn, kólumbíski hagfræðingurinn Jose Antonio Ocampo, hætti við fram- boð sitt á föstudag og sagði af því til- efni að ferlið í kringum ráðninguna snerist ekki um hæfileika frambjóðenda heldur pólitík. Kim er rektor Dartmo- uth-háskólans í Bandaríkjunum en hann er fæddur í Suður-Kóreu. Hann lærði læknisfræði í Harvard og stýrði áður HIV/AIDS deild WHO. Jim Yong Kim næsti for- stjóri Alþjóðabankans ● Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s hefur lækkað lánshæfiseinkunn finnska farsímafyrirtækisins Nokia úr Baa3 í Baa2. Hlutabréf í Nokia féllu mikið í verði í síðustu viku eftir að fyrirtækið sendi frá sér afkomuviðvörun. Er einkunn Nokia lækkuð þar sem útlit er fyrir að sala á Nokia-símum muni dragast saman á næstunni. Nokia tókst ekki að standa við spá um sölu á sím- um á fyrsta ársfjórðungi og þykir það merki um að líklegt sé að salan eigi ekki eftir að standast væntingar á næstunni. Stjórnendur finnska fyrirtækisins reikna með að félagið skili tapi á fyrri helmingi ársins. Nokia lækkar í einkunn STUTTAR FRÉTTIR Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á www.falkinn.is ...sem þola álagið! TRAUSTAR VÖRUR... Raftæknivörur Mótorvarrofar og spólurofar Það borgar sig að nota það besta! E i n n t v e i r o g þ r í r 3 1 .3 0 1 Skynjarar Töfluskápar Hraðabreytar Öryggisliðar Aflrofar Iðntölvur th or ri@ 12 og 3. is /3 1. 31 3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.